Thorsil fær starfsleyfi frá Umhverfisstofnun

Thorsil hefur fengið leyfi til að reka kísil­verksmiðju í Helguvik. Í leyfinu eru viðameiri kröfur gegn mengun lagðar á herðar fyrir­tækisins en áður.

Frá undirritun um orkukaup 10. maí 2016. Fyrir miðju sitja Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar, og Hákon Björnsson, forstjóri Thorsil. Á myndinni eru líka Jón Sveinsson, stjórnarformaður Landsvirkjunar, og Eyþór Arnalds, stjórnarmaður í Thorsil.
Frá und­ir­ritun um orku­kaup 10. maí 2016. Fyrir miðju sitja Hörður Arnarson, for­stjóri Lands­virkj­unar, og Hákon Björns­son, for­stjóri Thorsil. Á mynd­inni eru líka Jón Sveins­son, stjórn­ar­for­maður Lands­virkj­unar, og Eyþór Arnalds, stjórn­ar­maður í Thorsil. Mynd: Landsvirkjun.

Umhverfis­stofnun hefur gefið úr starfs­leyfi fyrir Thorsil ehf. til að reka kísil­verksmiðju í Helguvik. Í leyfinu eru viðameiri kröfur gegn mengun lagðar á herðar fyrir­tækisins en áður. Fjöldi íbúa í Reykja­nesbæ sendi inn athuga­semdir í umsagna­ferli. Þetta kemur fram í frétta­tilkynningu frá Umhverfis­stofnun. Starfs­leyfið gildir til 11. september 2031.

Þann 27. október 2016 kvað úrskurðar­nefnd umhverfis- og auðlinda­mála upp úrskurð að fella úr gildi ákvörðun Umhverfis­stofnunar frá 11. september 2015 um að veita Thorsil ehf. starfs­leyfi fyrir rekstri kísil­verksmiðju á iðnaðar­svæðinu í Helguvík. Í kjölfarið tók Umhverfis­stofnun afgreiðslu málsins fyrir á ný.

Í frétta­tilkynningunni segir að þegar umsagnar­frestur var útrunninn höfðu borist athuga­semdir frá 30 einstaklingum, tvö minnis­blöð frá rekstrar­aðila og eitt áframsent erindi frá Samgöngu­stofu. „Nokkrir umsagnar­aðilar vöktu í athuga­semdum sínum athygli á undir­skriftar­lista þar sem farið var fram á að Umhverfis­stofnun gefi ekki út starfs­leyfi fyrir „kísilmálm­verksmiðju Thorsil í Helguvík að svo komnu máli“ eins og það er orðað í texta þeirra sem óskuðu þess að undir­skrifta­listinn yrði hafður til hliðsjónar við ákvörðun. Tæplega 3500 einstaklingar skrifuðu nöfn sín á undir­skrifta­listann. Umhverfis­stofnun fór yfir allar athuga­semdir sem bárust og breytti eins og áður segir nokkrum ákvæðum fyrra starfs­leyfis til að koma á móts við ábendingar almennings. Helst ber að nefna ný ákvæði um lykt í greinum 3.19 og 3.20 vegna reynslu sem skapast hefur af hinni verksmiðjunni. Ákvæði um lykt voru ekki í starfs­leyfinu sem fellt var úr gildi, enda var engin umræða um lykt frá starfseminni í mati á umhverfis­áhrifum eða í umsóknar­gögnum. Var fyrirfram ekki talin hætta á slíkum vanda­málum. Nokkrum öðrum atriðum í starfs­leyfinu var breytt lítillega og vísast þar til greinar­gerðar og starfs­leyfisins.“

Áætlanir gera ráð fyrir að fram­leiðsla í kísil­verið Thorsil hefjist í lok árs 2018 en Thorsil hefur tryggt sér orku frá Lands­virkjun og HS Orku. Kísil­verið á að framleiða 54 þúsund tonn af málmi í fyrsta áfanga en síðar ná ársframleiðslu upp á 110 þúsund tonn.

p.p1 {margin: 0.0px 0.0px 6.0px 0.0px; text-align: justify; font: 12.0px 'Times New Roman'; -webkit-text-stroke: #000000} span.s1 {font-kerning: none}

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár