Höfuðpaur Samherjamáls í Namibíu snerist gegn félögum sínum

Fyrr­verandi sjávar­útvegs­ráðherra Namibíu vísaði í gær allri sök á meðákærðu í Samherja­málinu og sagði þá hafa misnotað sér hann og stöðu hans til að afla Samherja kvóta í skiptum fyrir mútur. Hann sé saklaus af þeim alvarlegu afbrotum sem á hann eru bornar í Samherja­málinu.

Óvæntar vendingar
Óvæntar vend­ingar "Þeir nýttu sér nafn mitt og stöðu sem sjáv­ar­út­v­vegs­ráð­herra,“ sagði Bernhard Esau í vitna­stúku í hæsta­rétti í Namibíu í gær og lýsti því hvernig ónefndir aðrir sak­born­ingar í mál­inu hefðu nýtt sér hann og stöðu hans til þess að brjóta lög, þegar Samherja var færður millj­arða kvóti í skiptum fyrir greiðslur undir borðið.

Fram­burður Bernhard Esau, fyrr­verandi sjávar­útvegs­ráðherra Namibíu, sætir nokkrum tíðindum í Samherja­málinu. Þetta er í fyrsta skipti sem einhver þeirra sem sæta rannsókn eða ákærum hér á landi eða í Namibíu, gangast við því að lög hafi líklegast verið brotin í málinu, það er að segja að einhver annar en Jóhannes Stef­ánsson, uppljóstrarinn í málinu, hafi brotið lög. 

„Sönnunar­gögn munu leiða í ljós að umbjóðandi minn framdi ekki þessi lögbrot, hann var fórnar­lamb meðákærðu í málinu,“ áréttaði lögmaður Esau fyrir dómi í gær.

Í lykilhlutverki

Bernhard Esau hefur setið í varðhaldi í Namibíu í rúm þrjú ár, eða frá því stuttu eftir að Kveikur og Stundin birtu umfjöllun sína um framferði Samherja í Namibíu og hundruða milljóna króna greiðslur fyrir­tækisins til hóps embættis-, stjórn­mála- og áhrifa­manna í skiptum fyrir milljarða­virði af kvóta í landinu.

Esau gengdi lykil­hlutverki í því, að sögn Jóhannesar Stef­ánssonar, að …

Kjósa
10
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Samherjaskjölin

RannsóknirSamherjaskjölin

Lögmaður namibískra sjómanna við Samherja: „Borgið það sem þið skuldið þeim“

Lögmaður skip­verjanna tuttugu og þriggja sem dæmdar voru bætur vegna ólöglegrar uppsagnar Samherja­félags í Namibíu, kallar eftir því að Íslendingar axli ábyrgð á framkomu sinni í Namibíu. Það standist enga skoðun að Samherji hafi ekki vitað af málinu. Forstjóri Samherja lofaði því að fyrir­tækið myndi sjá til þess að staðið yrði við allar skuld­bindingar og sérstak­lega hugað að sjómönnum sem starfað hefðu fyrir félagið.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár