Heimatilbúin sprengja ekki talin tengjast sendiráði Bandaríkjanna

Lögreglan á höfuð­borgar­svæðinu segir að hluturinn sem fannst í gær í ruslagámi við Mánatún hafi verið heima­tilbúin sprengja. Sérsveit ríkis­lögreglu­stjóra var kölluð til vegna málsins í gær og voru þrír hand­teknir. Tveir þeirra eru komnir í afplánun vegna fyrri refsidóma og þriðja manninum hefur verið sleppt.

Úr myndasafni
Úr mynda­safni Mynd: Pressphotos.biz

Lögreglan á höfuð­borgar­svæðinu stað­festir í tilkynningu til fjölmiðla að hluturinn sem fannst í gær í ruslagámi við Mánatún í Reykjavík hafi verið heima­tilbúin sprengja. Sérsveit ríkis­lögreglu­stjóra var kölluð út til að tryggja vettvang og eyða sprengjunni. 

Lögreglan segir að rannsókn miði vel og að ekkert hafi komið fram sem bendi til þess að málið tengist sendiráði erlends ríkis en Frétta­blaðið sagði frá því í gærkvöldi að bústaður sendi­herra Banda­ríkjanna væri næsta hús við gáminn þar sem sprengjan fannst. Samkvæmt heimildum Stundarinnar býr enginn í sendiráðs­bústaðnum um þessar mundir. 

Eins og fram hefur komið voru þrír handteknir í tengslum við málið. Einum þeirra hefur nú verið sleppt en tveir eru komnir í afplánun vegna fyrri refsidóma segir í tilkynningu frá lögreglu.  

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár