Þrír í haldi lögreglu eftir aðgerð sérsveitarinnar í Reykjavík í dag

Sérsveit ríkis­lögreglu­stjóra var kölluð að Mánatúni í nótt og að Hverfis­götu skömmu fyrir hádegi. Lögregla sendi frá sér tilkynningu rétt í þessu þar sem segir að þrír séu í haldi vegna grun­samlegs hlutar sem fannst í ruslagámi í Mánatúni í morgun.

Úr myndasafni
Úr mynda­safni Mynd: Pressphotos.biz

Sérsveit ríkis­lögreglu­stjóra var kölluð út tvívegis í Reykjavík í dag.  Fyrst að Mánatúni en þar var töluverður viðbúnaður lögreglu og götum lokað. Þrír voru síðan hand­teknir í tengslum við málið í dag. 

Morgun­blaðið greindi fyrst frá því að aðgerðir hefðu staðið yfir í Mánatúni.  Um hádegisbil var sérsveitin að störfum við Hverfis­götu. Stundin hefur haft samband við lögreglu á höfuð­borgar­svæðinu og ríkis­lögreglu­stjóra í dag og fékk staðfest að sérsveitin hafi verið með viðbúnað við Mánatún snemma í morgun en varðist að öðru leyti allra fregna af málinu.

Frétta­tilkynning var svo send á fjölmiðla um hálf fjögur þar sem segir að þrír séu í haldi Lögreglunnar á höfuð­borgar­svæðinu eftir að grun­samlegur hlutur fannst í ruslagámi í Mánatúni í Reykjavík á fjórða tímanum í nótt. Sérsveit ríkis­lögreglu­stjóra hafi verið kölluð til aðstoðar vegna málsins. Ekki kemur fram í tilkynningunni hvort aðgerðir sérsveitarinnar á Hverfis­götu um hádegisbil tengist málinu.  Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni verða ekki veittar frekari upplýsingar í dag en lögregla vonast til að geta tjáð sig meira um málið á morgun. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár