52 hafa farist á Gaza svæðinu og 2.400 slasast

Mesta mannfall á Gaza-svæðinu síðan árið 2014 hefur átt sér stað í dag með árásum Ísraels­hers á Palestínu­menn vegna mótmæla færslu á sendiráði Banda­ríkjanna til Jerúsalem.

Samtals hafa 52 látið lífið á Gaza-svæðinu í dag og 2.400, í árásum Ísraels­hers á Palestínu­menn. Mómælt hefur verið víða á Gaza-svæðinu vegna opnunar á sendiráði Banda­ríkjanna í Jerúsalem, en Donald Trump Bandaríkja­forseti ákvað að færa það þangað, þrátt fyrir hávær mótmæli þjóðar­leiðtoga víða um heim, og Sameinuðu þjóðanna.

Í umfjöllun breska ríkis­útvarpsins BBC segir að Ísraelsher hafi gert árásir á hópa fólks, en talið er að um 40 þúsund hafi verið saman komin til að mótmæla ákvörðun Bandaríkja­stjórnar.

Mahmoud Abbas, forseti Palestínu­manna, hefur lýst yfir þriggja daga sorg vegna mann­fallsins en boðað hefur verið til mótmæla við landamæri Palestínu og Ísraels á morgun.

Benjamín Netanyahu, forsætis­ráðherra Ísraels, varði árásirnar á Palestínu­menn í dag og sagði að þær væru liður í því að verja Ísrael, enda hefðu Hamas samtökin lýst því yfir að þau vilji eyða Ísrael.

Donald Trump hefur þegar tjáð sig um opnun sendi­ráðsins á Twitter. Hann segir þar að dagurinn sé stór fyrir Ísrael og óskar Ísraelum til hamingju.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár