Barist um Gasa – aftur og aftur og aftur

Hin hrjáða byggð á Gasa á sér langa sögu. Hér segir frá Kana­ans­mönnum og fara­ónum Amosis, frá fræki­legri vörn í virk­inu Sharuhen og dul­ar­fullum sæþjóðum og loks eld­gosi í Heklu.

Hyksos stríðsmaður í vagni
Hyksos stríðs­maður í vagni Eftir því sem best er vitað var Hyksos fólkið það fyrsta sem flutti hesta til Egifta­lands, senni­lega frá Gasa og Palest­ínu. Allra nýj­ustu rann­sóknir benda raunar til að Hyksos hafi upp­haf­lega verið far­and­verka­menn (eða flótta­menn) í Egifta­landi sem síðan gerðu upp­reisn og tóku völdin í land­inu í eina öld áður en þeir voru hraktir til Gasa aftur.

Gasa hefur alltaf notið þess, nú, eða goldið, að vera í þjóð­braut milli Afríku og Asíu, Sýrlands og Egifta­lands, Mið­jarð­ar­hafs­botns og Arab­íu­skaga. Þar hefur verið byggð frá árdögum mann­kyns­ins.

Það sanna mik­il­vægir forn­leifa­fundir í nágrenn­inu, reyndar fleiri í Ísrael en á svæðum Palest­ínu­manna, ein­fald­lega af því meira hefur verið grafið á vegum Ísra­els­manna en Palest­ínu­manna; þeir síð­ar­nefndu hafa haft öðru að sinna.

Verslunarstöð frá Egiftalandi

Elstu leifar um eig­in­lega bæj­ar­byggð á svæði Gasa­borgar eru meira en 5.000 ára gamlar. Íbúarnir á því svæði sem nú kall­ast Ísrael og Palest­ína töl­uðu semískt mál og köll­uð­ust Kana­ans­menn en fyrsti bær­inn á Gasa virð­ist hafa byggst sem frið­sæl versl­un­ar­stöð frá Egifta­landi, Tell es-Sakan. Kana­ans­menn­irnir í nágrenn­inu virð­ast ekki síst hafa stundað veiðar en smátt og smátt færð­ist land­bún­aður í auk­ana.

Tell es-Sakan er nú aðeins tveim kíló­metrum norðan við Nuseirat-flótta­manna­búð­irnar sem ísra­elski flug­her­inn hefur látið sprengjum rigna yfir síð­ustu daga.

Eftir nokkur hund­ruð ára byggð í Tell es-Sakan virð­ist egifski versl­un­ar­bær­inn hafa verið yfir­gef­inn og í margar aldir blésu eyði­merk­ur­vind­arnir ótrufl­aðir til sjávar og kaup­manna­lestir fóru fram­hjá rústum hans. Senni­lega var ástæðan sú að umsvif Egifta færð­ust norður til þess svæðis þar sem seinna hét Fönikía en nú Líbanon. Íbúar þar voru Kana­ans­menn og þar spratt sedru­svið­ur­inn níð­sterki sem Egiftar not­uðu meðal ann­ars í hlunna undir þá tröllauknu steina sem þeir hlóðu píramídana úr.

Blómlegur landbúnaður á Gasa

Um árið 2500 FT byggð­ist Tell es-Sakan aftur og nú voru það Kana­ans­menn sem bjuggu þar. Borgin varð mið­stöð í býsna blóm­legu land­bún­að­ar­hér­aði þar umhverfis (já! í alvöru!) en hefur áreið­an­lega líka verið þó nokkur versl­un­ar­mið­stöð á kross­götum. Velsæld virð­ist hafa ríkt í borg­inni þá. Hveiti, bygg, ólífur, vín­ber og græn­meti, allt var þetta ræktað í námunda við borg­ina, fiskur var veiddur út af strönd­inni og skel­fiski safnað í fjör­unni, hjarðir af naut­gripum, kindum og geitum gengu um sveitir.

Athygl­is­vert að Kana­ans­menn­irnir í Tell es-Sakan töldu sig þurfa að víg­girða vel borg sína og voru borg­ar­múr­arnir úr sól­þurrk­uðum leir­steinum allt að átta metra þykkir. 

Ekki hafa þó fund­ist merki um stríðs­á­tök eða umsátur óvina við borg­ina en vera má að slíkt upp­götv­að­ist ef meira væri grafið. Svo mikið er víst að eftir að Kana­ans­menn höfðu búið þarna í fimm hund­ruð ár, þá var borgin skyndi­lega yfir­gefin og hafa menn enga skýr­ingu fundið á því. Ekki er vitað til að nein stór­slys hafi þá orðið í nátt­úr­unni sem hefðu átt að kippa grund­velli undan manna­byggð á svo mik­il­vægum og fjöl­förnum slóðum.

Hrun á Gasa, ekki í fyrsta sinn

En eitt­hvað hefur þó gerst því verslun við Egifta­land virð­ist hafa lagst nálega af og reyndar virð­ist bæjum og þorpum í bæði hinum núver­andi Palest­ínu og Ísrael hafa hnignað mjög veru­lega á þessu brons­ald­ar­skeiði – af meira og minna ókunnum ástæðum.

Þegar aftur fór að rísa byggð norðan til á Gasa var um að ræða lítil hirð­ingja­þorp en ekki öfl­ugan bæ eða borg eins og Tell es-Sakan. Um 1800 FT var hirð­ingja­byggðin orðin þokka­leg blóm­leg og verslun milli Egifta­lands og Sýrlands um Gasa komin nálægt fyrra horfi.

Um árið 1500 FT virð­ist Gasa svo hafa verið síð­asta vígi hinnar dul­ar­fullu Hyksos-þjóðar sem þá hafði ráðið neðri (nyrðri) hluta Egifta­lands í um hund­rað ár en harla fátt er vitað um. Margir fræði­menn efast reyndar um að Hyksos hafi verið sér­stök þjóð, heldur frekar eins konar banda­lag eða jafn­vel ein­fald­lega her­flokkur í upp­hafi. Svo mikið virð­ist þó víst að Hyksos hafi komið úr vestri og náð yfir­ráðum yfir neðri hluta Nílar og óshólmanna.

Hinir dularfullu Hyksos, voru þeir Gyðingar?

Hyksos bjuggu svo í vellyst­ingum í Egifta­landi þessa öld en Forn-Egiftum (sem töl­uðu afróa­síska tungu) gramd­ist ósegj­an­lega að þurfa að lúta yfir­ráðum útlend­inga.

Sagna­rit­ar­inn Jósefus – Gyðingur sem gerð­ist Rómverji og skrif­aði undir lok fyrstu aldar ET – hélt því fram á einum stað að Hyksos hefðu verið Gyðingar en fræði­menn eru ekki á því að það eigi sér nokkra stoð. Í fyrsta lagi er mjög vafa­samt að svo snemma sé yfir­leitt hægt að tala um nokkra sér­staka Gyð­inga­þjóð og í öðru lagi benda líkur loks til þess að upp­runi Hyksos hafi verið tölu­vert norðar eða í Fönikíu.

Jósefus nefnir reyndar að aðrir telji að Hyksos hafi verið Arabar en það er líka ærið vafa­samt og fræði­menn láta sér nú flestir duga að kalla Hyksos semi­tíska og/eða Kana­ans­menn.

Hér sérðu hvernig landa­merki skipt­ast milli Gasa, vest­ur­bakk­ans og Ísraels.

Faraó ákveður að gereyða óvinum sínum

Svo mikið er víst að eftir að Amosis, ætt­ar­laukur kon­ungs­ætt­ar­innar í efra (syðra) Egifta­landi, hratt Hyksos á braut, þá hugð­ist hann láta kné fylgja kviði og útrýma Hyksos alger­lega. En leifar Hyksos bjuggu þá um sig í vel vörðu virki á Gasa, en þar hét Sharuhen. Þar héldu þeir út í þrjú ár (ein heim­ild segir sex). Að her Amosisar hafi setið um virkið svo lengi sýnir hví­líkt kapp hann lagði á að ger­eyða Hyksos því í þá daga stóðu her­ferðir yfir­leitt aldrei lengur en nokkra mán­uði.

Að lokum náði Amosis virk­inu og til er áletrun frænda hans sem kveðst hafa fengið tvær konur og einn þræl frá Sharuhen og auk þess heil­mikið gull sem her­fang „fyrir það hug­rekki sem ég sýndi“.

Engar heim­ildir eru því miður til um hlut­skipti verj­end­anna í virk­inu.

Einhver hluti þeirra komst undan og flúði til Sýrlands en þangað elti Amosis þá. Og nú fór í hönd einn af helstu stór­veld­is­tímum í langri sögu Egifta­lands. 

Hvar var Sharuhen-virkið?

Fræði­menn eru ekki alveg á eitt sáttir um hvar Sharuhen var nið­ur­komið. Hugs­an­lega var það inni á núver­andi Gasa­svæði, rétt hjá Tell es-Sakan og Nureirat-flótta­manna­búð­unum. Eða það var 20 kíló­metrum sunnar á lágri hæð skammt frá hinum núver­andi bæ Ein HaBesor í Ísrael. Sá bær er innan við 8 kíló­metra frá landa­mærum Gasa og eldsnemma í morg­unsárið 7. októ­ber réð­ust Ham­as­menn á bæinn.

Íbúarnir þar voru hins vegar reiðu­búnir. Um 70 manna varn­ar­lið hafði staðið vörð alla nótt­ina, búið nokkrum vél­byssum og skamm­byssum. Þessu liði tókst að hrekja Ham­as­menn­ina á flótta. Einn varn­ar­liða særð­ist og þegar ekið var með hann í snar­hasti á sjúkra­hús eltu Ham­as­menn á mót­or­hjólum og skutu á bíl­inn.

Bíllinn komst þó leiðar sinnar svo eng­inn féll í þess­ari nýju árás á Sharuhen – ef virkið var þá þar en ekki inni á Gasa-svæð­inu sjálfu.

Þetta við­bragðs­skjóta varn­ar­lið í Ein HaBesor var ekki að bíða eftir hryðju­verka­árás frá Gasa þótt svona hitt­ist á. Heldur hafði því verið ætlað að kveða niður bylgju bíla­þjófn­aða sem gengið hafði yfir Ein HaBesor og nágranna­þorpið næstu daga á undan.

Hekla er víða örlaga­valdur.

Gos í Heklu olli hamförum um veröld víða

En víkjum aftur til brons­aldar. Gasa var nú vel og tryggi­lega í höndum Egifta í 300 ár eða til á að giska 1200. Þá varð dul­ar­fullt áfall í mest­allri menn­ingu Mið-Aust­ur­landa, land­bún­aður hrundi, borgir fóru í eyði, heilu þjóð­irnar lögð­ust í flakk. Sjálf­sagt hafa orsakir fyrir þessu áfalli verið ýmsar en margir vís­inda­menn telja að gríð­ar­legt gos í Heklu um þetta leyti hafi haft sitt að segja.

„Sjálf­sagt hafa orsakir fyrir þessu hruni á Gasa verið ýmsar en gríð­ar­legt gos í Heklu hafði eflaust sitt að segja.“

Gosið er kallað „Hekla 3“ af jarð­fræð­ingum og fjallið þeytti svo mik­illi gosösku út í and­rúms­loftið að hita­stig á norð­ur­hveli jarðar, þar á meðal og ekki síst við Mið­jarð­ar­haf, kóln­aði veru­lega í mörg ár á eftir.

Ein af afleið­ingum hruns­ins var að snemma á tólftu öld FT gerðu hinar mjög svo dul­ar­fullu „sæþjóðir“ árás á Egifta­land og raunar fleiri lönd og héruð við aust­an­vert Mið­jarð­ar­haf. Mjög er málum blandið hverjar sæþjóð­irnar voru en í bili hall­ast flestir að því að þær hafi verið „frum­stæðir“ hópar frá Evrópu, ekki síst Ítal­íu­skaga og Grikk­landi, sem hafi flúið versn­andi lífs­skil­yrði í kjöl­far fyrr­nefndra ham­fara og leitað inn á hin auð­ugri og rót­grón­ari svæði við Mið­jarð­ar­hafs­botn.

En þau voru heldur ekki upp á sitt besta eftir hrunið.

Sigrast á sæþjóðunum: Palestína verður til

Að lokum tókst Ramesses 3. Egifta­lands­faraó að sigr­ast á sæþjóð­unum í gríð­ar­legri orr­ustu í óshólmum Nílar um 1175 FT og þá er svo að sjá sem hann hafi ákveðið að planta einni hinni sigr­uðu sæþjóða niður á Gasa. Og þar fékk sú þjóð heima­land.

Fólkið sem fyrir var – hirð­ingjar af ætt Kana­ans­manna – var eflaust ekki spurt frekar bæði fyrr og síðar.

En hér var komin sú þjóð sem brátt skaut svo djúpum rótum á Gasa og nágrenni að allt svæðið er síðan kennt við hana: Palest­ína.

Því þetta voru þeir frægu Filistear.

Kjósa
15
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Kristjana Magnúsdóttir skrifaði
    STRIÐ HAFA ALLTAF FYLGT MANNKYNINU ALVEG FRÁ BYRJUN!OG LIKA ALSKONAR ANNAÐ MIÐUR FALLEGT EÐA GOTT ÞETTA ER FAST INNBYGGT Í OKKUR ÖLL ALTAF HEFUR VERIÐ SEILST Í ÞAÐ SEM ANNAR A
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Flækjusagan

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár