Rafmagn og bensín hækka í verði

Verðbólga mælist nú í hæstu hæðum, en hana má að mestu leyti skýra með miklum verð­hækkunum á fasteigna­markaði.Hins vegar hefur verðið á bensíni og rafmagni einnig hækkað hratt á síðustu mánuðum.

Verð á rafmagni tók kipp í mánuðinum.
Verð á raf­magni tók kipp í mán­uð­inum. Mynd: Bára Huld Beck

Verðið á bensíni og olíum er nú 18 prósentum hærra en það var fyrir ári síðan. Sömuleiðis tók verðið á rafmagni, sem hefur haldist nokkuð stöðugt á síðustu árum, kipp í þessum mánuði. Þetta kemur fram í nýbirtum verðbólgu­tölum Hagstofu.

Samkvæmt tölunum mældist verð­bólgan í þessum mánuði 5,7 prósent og hefur hún ekki verið meiri í tæp tíu ár. Þar vega verð­hækkanir á fasteigna­markaði þungt, en ef ekki væri tekið tillit til þeirra í verðbólgu­mælingum myndi verð­bólgan mælast 3,7 prósent. Sömuleiðis hefur verðið á viðhaldi og viðgerðum á húsnæði hækkað hratt, en slík þjónusta kostar nú 7,4 prósentum meira en hún gerði í janúar í fyrra.

Hins vegar hafa aðrir vöru­flokkar einnig byrjað að hækka í verði. Þar ber helst að nefna verð­hækkanir á bensíni og olíum, en ef þeirra nyti ekki við væri verð­bólgan 0,6 prósentu­stigum lægri en hún er. Allt frá því í október í fyrra hefur verð­bólgan í vöru­flokknum „bensín og olíur“ verið um 20 prósent.

Miklar breytingar urðu einnig á verði rafmagns í mánuðinum, en verðið á því hækkaði um 5,8 prósent á milli mánaða. Rafmagns­verð hefur venjulega haldist nokkuð stöðugt, en verð­bólgan í vöru­flokknum hefur venjulega haldist í kringum tvö prósent á síðustu tveimur árum. Í þessum mánuði mældist hún hins vegar sex prósent.

Líkt og Kjarninn hefur áður minnst á hefur vægi matvöru í verð­bólgunni minnkað nokkuð á síðustu mánuðum, en í þessum mánuði jókst það aftur. Þó eru verð­hækkanirnar í vöruflokkinum nokkuð hóflegar á ársgrundvelli, en matur kostar nú þremur prósentum meira en hann gerði í janúar í fyrra. Mest hækka mjólkur­vörur í verði, en þær eru sjö prósentum dýrari en þær voru í fyrra.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár