Tala látinna komin upp í 34 í Brussel

Spreng­ingar í Brussel. Flug­vell­inum og öllum helstu sam­göngu­leiðum lokað.

Sprengjuárás í Brussel
Sprengju­árás í Brussel Myndin er frá aðgerðum lög­reglu og hers í Brussel í nóv­em­ber. Mynd: Shutterstock

Fjöl­margar spreng­ingar ollu því að minnst 34 manns létu lífið í hryðju­verka­árásum á flug­velli og lest­ar­stöð í Brussel, höf­uð­borg Belgíu, fyrr í dag. Tuttugu eru sagðir hafa lát­ist á lest­ar­stöð­inni og 14 á flug­vell­inum. Talið er að mun fleiri hafi særst alvar­lega í árás­unum.

Tvær spreng­ingar áttu sér stað stuttu við inn­rit­un­ar­far­ar­svæðið eftir kl. 8 í morgun en klukku­tíma seinna var önnur spreng­ing á Maelbeek Metro stöð­inni nálægt sam­tökum Evr­ópu­sam­bands­ins, ESB.

Flug­vell­inum hefur verið lokað sem og öllum sam­göngu­leiðum þar í kring. Árás­irnar eru gerðar aðeins fjórum dögum eftir að Salah Abdeslam, einn helsti flótta­mað­ur­inn í hryðju­verka­árás­unum í París, var hand­tek­inn í Brussel. 

Belgísku yfir­völdin hafa ekki stað­fest hvað olli spreng­ing­unum, né nákvæm­lega hversu margir hafa særst eða látið lífið.

Charles Michel for­sæt­is­ráð­herra gaf það út á Twitter í dag að eins og staðan væri núna, ætti fólk að halda sig kyrru fyrir og sýna sam­stöðu á þessum sorg­ar­tíma í Belgíu.

Vill að öll Evrópa taki þátt í stríði gegn hryðjuverkamönnum

Frakkar sýna stuðning
Frakkar sýna stuðn­ing Þessari mynd eftir skop­mynda­teiknar­ann Plantu hjá Le Monde hefur verið dreift víða á sam­fé­lags­miðlum í dag.

Francois Hollande, Frakk­lands­for­seti tók það fram á blaða­manna­fundi í dag að Frakk­land og  Holland væru núna tengd sterkum böndum vegna hörm­ung­anna í kjöl­far hryðju­verka­árásanna í París í des­em­ber og núna í Brussel.

For­set­inn seg­ist ætla að veita belgísku rík­is­stjórn­ina fullan stuðn­ing og segir að stríðið á hendur hryðju­verka­mönnum ætti að vera fram­fylgt af allri Evrópu, með öllum nauð­syn­legum aðferðum.

Hann segir frönsku rík­is­stjórn­ina þegar hafa gert ráð­staf­anir til að efla öryggi á landa­mærum og höfnum Frakk­lands.

Fréttin verður upp­færð.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

4
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár