Mynd um afhjúpun á kynferðisbrotum presta besta myndin á Óskarnum

Kvik­myndin Spotlight, sem leikstýrt var af Tom McCarthy, hlaut í nótt Óskars­verðlaun fyrir bestu kvikmynd síðasta árs. McCarthy og Josh Singer hlutu einnig verð­launin fyrir besta frumsamda handrit. Mad Max: Fury Road hlaut flest verðlaun allra mynda, eða sex talsins, á hátíðinni í nótt. Eini Íslend­ingurinn sem var tilnefndur til Óskar­verðslauna, Jóhann Jóhannsson, þurfti að eftirláta sjálfum Ennio Morricone verð­launin fyrir bestu tónlistina. Morricone fékk verð­launin fyrir tónlist sína fyrir Tarantino-myndina The Hateful Eight. Morricone er 87 ára gamall og varð því elsti Óskars­verðlauna­hafi frá upphafi.

Leonardo Di Caprio fékk loks Óskar fyrir hlutverk sitt í The Revenant og Brie Larsson hlaut verð­launin sem besta leikkona í aðal­hlutverki fyrir frammistöðu sína í Room. Alejandro González Iñárritu var valinn besti leiks­stjórinn annað árið í röð, í þetta sinn fyrir The Revenant. Hægt er að sjá yfirlit yfir alla verðlauna­hafa neðst í fréttinni.

Það þarf heilt þorp til að þagga niður

Kjarninn fjallaði ítarlega um Spotlight í síðasta mánuði. Myndin segir sanna sögu rannsóknar­blaða­mennsku­teymisins Spotlight hjá dagblaðinu Boston Globe, sem afhjúpar gríðarlegt umfang kynferðis­brota innan kaþólsku kirkjunnar í Boston í Banda­ríkjunum 2001 og 2002. Umfjöllun Spotlight leiddi til þess að kardinálinn í Boston, Bernard Law, var fluttur til í starfi og kynferðis­brot 249 presta litu dagsins ljós, eftir áratuga­langa þöggun. Fjöldi þolenda sem kaþólskir prestar höfðu níðst á, var yfir þúsund. Langflest fórnar­lömbin voru ungir drengir, en einnig stúlkur.

Myndin leyfir áhorf­endum að skyggnast inn í líf og aðstæður blaða­mannanna sem vinna að málinu, og ritstjórnarinnar allrar, og sýnir á grímu­lausan og raunsæjan hátt hvernig samfélagið var orðið gegnsýrt af spillingu og þöggun í kring um glæpi prestanna. Vitneskja um brotin var til staðar innan allra helstu innviða samfélagsins; kirkjunnar, skólanna, dóms­kerfisins og fjöl­miðlanna sjálfra.

Sögu­þráðurinn er á vissan hátt keimlíkur þeim atburðum sem skóku íslenskt samfélag fyrir nokkrum árum þegar kynferðis­brot innan þjóð­kirkjunnar, og síðar kaþólsku kirkjunnar og sértrúar­safnaðarins Krossins, litu dagsins ljós.

Hægt er að lesa umfjöllun Kjarnans í heild sinni hér.

Óskar­verðlauna­hafarnir í heild sinni:

Besta kvikmynd: Spotlight

Besti leik­stjóri:

Alejandro González Iñárritu - The Revenant

Besta leikkona í aðal­hlutverki:

Brie Larson - Room

Besti leikari í aðal­hlutverki:

Leonardo di Caprio

Besta leikkona í auka­hlutverki:

Alicia Vikander - The Danish Girl

Besti leikari í auka­hlutverki:

Mark Ryland - Bridge of Spies

Besta kvik­myndin á öðru máli en ensku:

Son of Saul/Sonur Sauls - Ungverja­land

Besta heimilda­myndin:

Amy

Besta frumsamda handrit:

Tom McCarthy og Josh Singer - Spotlight

Besta handrit byggt á öðru verki:

Charles Randolph og Adam McKay - The Big Short

Besta hreyfi­myndin í fullri lengd:

Inside Out

Besta kvik­myndataka:

Emanuel Lubezki - The Revenant

Besta klipping:

Margaret Sixel - Mad Max: Fury Road

Besta tónlist:

Ennio Morricone - The Hateful Eight

Besta lagið:

Writing's on the Wall e. Jimmy Napes og Sam Smith - Spectre

Besta stuttmyndin:

Stutterer/Stamarinn

Besta stutta heimilda­myndin:

A Girl in the River

Besta stutta hreyfi­myndin:

Historia de un oso/Bjarnar­saga

Bestu tækni­brellur:

Andrew Whitehurst, Paul Norris, Mark Ardington og Sara Bennett - Ex Machina

Besta hljóð­klipping:

Mark Mangini og David White - Mad Max: Fury Road

Besta hljóð­blöndun:

Chris Jenkins, Gregg Rudloff og Ben Osmo - Mad Max: Fury Road

Besta leikmynd:

Colin Gibson og Lisa Thompson - Mad Max: Fury Road

Bestu búningar:

Jenny Beavan - Mad Max: Fury Road

Besta förðun/hár: Elka Wardega og Damian Martin - Mad Max: Fury Road

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár