Það þarf þorp til að þagga niður

Kyn­ferð­is­brot innan kirkj­unnar eru orðin þekkt alþjóð­leg fyr­ir­bæri. Ýmsar hlið­stæður er að finna í kvik­mynd­inni Spotlight og íslenskum veru­leika.

Kvik­myndin Spotlight hefur vakið verð­skuld­aða athygli und­an­farið. Hún var til­nefnd til Golden Globe verð­launa, sem fram fóru í gær, sem besta myndin og Tom McCarthy var til­nefndur sem besti leik­stjóri og fyrir besta hand­rit. 

Myndin segir sanna sögu rann­sókn­ar­blaða­mennskuteym­is­ins Spotlight hjá dag­blað­inu Boston Globe, sem afhjúpar gríð­ar­legt umfang kyn­ferð­is­brota innan kaþ­ólsku kirkj­unnar í Boston í Banda­ríkj­unum 2001 og 2002. Umfjöllun Spotlight leiddi til þess að kar­dinál­inn í Boston, Bernard Law, var fluttur til í starfi og kyn­ferð­is­brot 249 presta litu dags­ins ljós, eftir ára­tuga­langa þöggun. Fjöldi þolenda sem kaþ­ólskir prestar höfðu níðst á, var yfir þús­und. Lang­flest fórn­ar­lömbin voru ungir drengir, en einnig stúlkur.

Kynferðisbrot án landamæra

Myndin leyfir áhorf­endum að skyggn­ast inn í líf og aðstæður blaða­mann­anna sem vinna að mál­inu, og rit­stjórn­ar­innar allrar, og sýnir á grímu­lausan og raun­sæjan hátt hvernig sam­fé­lagið var orðið gegn­sýrt af spill­ingu og þöggun í kring um glæpi prest­anna. Vit­neskja um brotin var til staðar innan allra helstu inn­viða sam­fé­lags­ins; kirkj­unnar, skól­anna, dóms­kerf­is­ins og fjöl­miðl­anna sjálfra.

Sögu­þráð­ur­inn er á vissan hátt keim­líkur þeim atburðum sem skóku íslenskt sam­fé­lag fyrir nokkrum árum þegar kyn­ferð­is­brot innan þjóð­kirkj­unnar, og síðar kaþ­ólsku kirkj­unnar og sér­trú­ar­safn­að­ar­ins Krossins, litu dags­ins ljós.

Í Reykja­vík, rétt eins og í Boston, komu lang­flest fórn­ar­lömbin ekki fram fyrr en löngu eftir að brotin voru framin. Þau voru því flest fyrnd að lögum. Og, eðli­lega, vildu fæst þeirra koma fram í fjöl­miðlum eða segja sögu sína. Skömmin var slík.

Í Boston-mál­inu voru gögn send á Boston Globe árið 1996, fimm árum áður en Spotlight-teymið hóf rann­sókn á mál­unum. En 1996 höfðu málin fengið litla sem enga umfjöllun. Það sama ár komu fyrst fram ásak­anir á hendur Ólafi Skúla­syni, bisk­upi Íslands, um kyn­ferð­is­brot. Það sama gerð­ist í Reykja­vík og Boston: Málin röt­uðu ekki fram í dags­ljósið nema að örlitlu leyti og kirkjan hélt þeim fyrir sig. Fagráði íslensku þjóð­kirkj­unnar um kyn­ferð­is­brot var komið á lagg­irnar árið 1998, en það fór ekki hátt.

Spotlight-teymið í samnefndri kvikmynd. Hér eru leikararnir Rachel McAdams, Michael Keaton og Mark Ruffalo í hlutverkum sínum.
Spotlight-teymið í sam­nefndri kvik­mynd. Hér eru leik­ar­arnir Rachel McAdams, Michael Keaton og Mark Ruffalo í hlut­verkum sínum.

„Prestar eiga að vera góðu gæjarnir”

Stærsta afrek Spotlight teym­is­ins er án efa það að ná að afhjúpa rotið kerfi. Kar­dinál­inn vissi af brotum prest­anna án þess að færa þá til í starfi eða til­kynna þá til lög­reglu. Lögmenn þáðu greiðslur frá fórn­ar­lömbum fyrir að knýja fram örlitlar „sann­girn­is­bætur” fyrir að kæra ekki málin.

Law, kard­ínáli kaþ­ólsku kirkj­unnar í Boston, hafði fengið fjölda bréfa þar sem greint var frá kyn­ferð­is­legri mis­notkun af hálfu presta í hans umdæmi. Þau bréf end­uðu þó ein­ungis ofan í skúffu á Kard­ínála­skrif­stof­unni, rétt eins og bréfi Guðrúnar Ebbu Ólafs­dóttur um kyn­ferð­is­brot föður hennar, Ólafs Skúla­sonar bisk­ups, var stungið ofan í skúffu á Bisk­ups­stofu. Bréfið var ekki skráð í skjala­skrá Bisk­ups­stofu Íslands fyrr en einu og hálfu síðar.

„Ef það þarf þorp til að ala upp barn - þarf þorp til að mis­nota það,” segir Mitchell Gara­bedian, lög­maður fórn­ar­lambanna í Spotlight.

Fyrir nokkrum árum varð morg­un­ljóst að vit­neskja um að ekki væri allt með felldu innan tveggja öfl­ug­ustu trú­ar­stofn­ana lands­ins, þjóð­kirkj­unnar og kaþ­ólsku kirkj­unnar, var til staðar löngu áður en kyn­ferð­is­brota­málin komu fram í dags­ljósið. Tugir ein­stak­linga höfðu lagt fram kvart­anir á einn eða annan hátt eftir að hafa orðið fyrir kyn­ferð­is­brotum af hendi bisk­ups, presta eða ann­arra starfs­manna kirkj­unnar, án þess að nokkuð hafi verið að gert.

Skýrslur og rannsóknir - en enginn dæmdur

Allt í einu brast stíflan. Ásakanir á hendur Ólafi Skúla­syni, fyrr­ver­andi bisk­upi, komu fram hver á fætur annarri, rann­sókn­ar­nefnd um þær ásak­anir var stofnuð og skil­aði hún af sér ítar­legri skýrslu í júní 2011, þar sem nið­ur­staðan var sú að Karli Sig­ur­björns­syni, þáver­andi bisk­upi, og öðrum vígðum þjónum kirkj­unnar hafi orðið á mis­tök í bisk­ups­mál­inu. 

Hann baðst afsök­unar „ef hann hefði gert eitt­hvað rangt.” Það stakk í stúf við öllu skýr­ari ummæli hans frá árinu 2009, þegar hann bað þær konur og börn sem brotið hefur verið á af hálfu þjóna kirkj­unnar, opin­ber­lega afsök­unar. Mál Guðrúnar Ebbu kom inn á borð Bisk­ups­stofu það ár.

Í kjöl­farið reið svipuð alda yfir kaþ­ólsku kirkj­una á Íslandi. Á annan tug ein­stak­linga greindu frá grófu kyn­ferð­is­of­beldi sem þau urðu fyrir í Landa­kots­skóla af hendi prests og starfs­manns þar. Rann­sókn­ar­nefnd kaþ­ólsku kirkj­unnar gaf einnig út skýrslu um við­brögð stofn­un­ar­innar við ásök­un­unum í nóv­em­ber árið 2012.

Sann­girn­is­bætur voru greiddar til þolenda þjóð­kirkj­unnar og kaþ­ólsku kirkj­unnar. Enginn var dæmdur. 

Í Spotlight segir eitt fórn­ar­lambanna, maður sem hafði verið mis­not­aður kyn­ferð­is­lega af presti þegar hann var 11 ára gam­all:

„Þeir segja að þetta hafi bara verið lík­am­leg mis­notkun, en þetta var meira en það. Þetta var and­leg mis­notkun. Vitið þið hvers vegna ég sam­þykkti alltaf? Vegna þess að prestar eiga að vera góðu gæj­arnir.”

Í þessu sam­hengi má rifja upp frá­sögn íslensks manns sem greindi frá grófri kyn­ferð­is­legri mis­notkun af hendi séra A. George, valda­miklum kaþ­ólskum presti og skóla­stjóra Landa­kots­skóla, og Mar­grétar Müller, kennslu­konu við skól­ann, í sam­tali við Frétta­tím­ann 2011:

„Mér var líka sagt það strax að þetta væri Guði þókn­an­legt. Og þetta væri bara milli mín og Guðs.“

kynferðisbrot@kirkjan.is

Einn blaða­mann­anna í Spotlight-teym­inu, Sacha Pfeiffer, segir í mynd­inni að hún hafi misst lyst á því að fara í kirkju með ömmu sinni, eitt­hvað sem hún gerði áður nokkuð reglu­lega, eftir að þau hófu rann­sókn sína.

En þjóð­kirkjan reyndi að taka til hjá sér. Hún bjó til bæk­ling sem útskýrði hvað þolendur eiga að gera ef þeir upp­lifa kyn­ferð­is­lega mis­notkun af hendi starfs­manna kirkj­unnar. Hún bjó meira að segja til net­fangið kynferðisbrot@kirkjan.is til að veita betri aðgang að fagráði sínu. En það dugði ekki til.

Eftir að umræðan um kyn­ferð­is­brot innan þjóð­kirkj­unnar komst í hámæli 2009 fækk­aði skráðum félögum gríð­ar­lega á hverju ári. 2009 voru 253.000 með­limir, en þeir voru orðnir 243.000 í lok árs í fyrra, sem gerir fækkun um 10.000 manns. Á sama tíma fjölg­aði Íslend­ingum um sömu tölu, 10.000 manns.

Eftirlifendur misnotkunar um allan heim

Ásakanir á hendur kaþ­ólskum prestum og öðrum starfs­mönnum kirkj­unnar um kyn­ferð­is­brot gegn börnum hafa verið gegn­um­gang­andi í nokkra ára­tugi um allan heim. Stór mál í Írlandi, Kanada, Banda­ríkj­unum og Ástralíu hafa ítrekað ratað í heims­frétt­irnar. Mörg þús­und prestar hafa verið rann­sak­aðir og enn fleiri bornir sökum.

Samtök þolenda sem hafa orðið fyrir kyn­ferð­is­legri mis­notkun af hendi presta (SNAP - Survivor Network of those Abused by Priests) voru stofuð í Banda­ríkj­unum árið 1989 og ná nú til 56 landa með 12.000 félaga. 

Saga Spotlight í Boston sýnir okkur ein­ungis örlít­inn hluta af þessu furðu­lega alheims­vanda­máli, sem hefur náð að grass­era og sá sér í ára­tugi, ef ekki árhund­ruðir, án þess að nokkuð sé að gert. Og það er vert að rifja upp reglu­lega.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kynferðisafbrot

Leiðari

Þórður Snær Júlíusson

Klefa­menn­ing sem hyllir og verndar ofbeld­is­menn

Guðni Bergsson sagði af sér sem for­maður KSÍ í gær. Það var rétt ákvörðun hjá Guðna enda blasti við að honum var ekki stætt að sitja áfram. Ástæðan var ann­ars vegar yfir­lýs­ing sem KSÍ sendi frá sér 17. ágúst síð­ast­lið­inn, sem eng­inn innan sam­bands­ins hafði dug til að skrifa sig fyrir, vegna umræðu um þögg­un­ar­til­burði sam­bands­ins yfir kyn­ferð­is­brotum lands­liðs­manna. Þar...
Kjaftæði

Margrét Erla Maack

Viðbrögð við við­brögðum við við­brögðum við...

Í síð­ustu viku varð mér á í mess­unni. Ég missti út úr mér ógeðs­legan brand­ara sem betur hefði átt heima í pistli sem þessum, í við­tali eða á uppi­stands­kvöldi en alls ekki í beinni útsend­ingu rétt fyrir frétta­lestur á Rás 2. Brand­ar­inn var útúr­snún­ingur á orðum Páleyjar Borg­þórs­dóttur, lög­reglu­stjóra í Vest­manna­eyjum. Fyrst hugs­aði ég með mér „skilduð þið ekki djó­kið...
Aðsent

Friðrik Þór Gestsson

Hvenær er nauðgun rétt­læt­an­legur fórn­ar­kostn­aður?

Núna þegar stytt­ist í versl­un­ar­manna­helg­ina þá kemur upp umræðan um Þjóð­há­tíð í Vest­mann­eyjum og allt það sem þar ger­ist. Eins og flestir vita þá hefur Lög­reglu­stjór­inn í Vest­mann­eyjum ákveðið að til­kynna ekki fjöl­miðlum um kyn­ferð­is­brot sem til­kynnt verða á hátíð­inni fyrr en ein­hverjum dögum eftir hátíð­ina. Þannig áður en hátíðin byrjar og áður en nokkur gestur er kom­inn í dal­inn...

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár