„Enn þá spurningar sem bíða okkar“

Starfs­hópur KSÍ mun skila af sér skýrslu á morgun sem snýr að verk­ferlum og skipu­lagi þegar kemur að ofbeldis- og kyn­ferð­is­brotum innan hreyf­ing­ar­innar.

Vanda Sigurgeirsdóttir, formaður KSÍ.
Vanda Sig­ur­geirs­dóttir, for­maður KSÍ. Mynd: Skjáskot: RÚV

„Við erum á fleygi­ferð í þeirri vinnu að búa til betra vinnu­lag, betri reglur, betri ferla,“ sagði Vanda Sig­ur­geirs­dóttir, for­maður Knatt­spyrnu­sam­band Íslands (KSÍ), í Silfrinu á RÚV í dag. Fjórir starfs­hópar eru að störfum og mun fyrsti hóp­ur­inn skila af sér til­lögum á morgun. Þá á Vanda á fund á þriðju­dag með starfs­fólki KSÍ sem kemur að fræðslu­málum. „Við erum að fara að leggja fram metn­að­ar­fulla for­varnar- og fræðslu­á­ætlun.“

Gustað hefur um KSÍ frá því í ágúst þegar frá­sagnir af kyn­ferð­is­of­beldi og áreitni lands­liðs­manna í knatt­spyrnu komu upp á yfir­borðið. Þjarmað var að KSÍ í kjöl­farið en sam­bandið neit­aði ítrekað að slík mál hefðu „komið á þeirra borð“. Guðni Bergsson, þáver­andi for­maður KSÍ, sagði af sér auk stjórnar KSÍ og Vanda var kjör­inn for­maður á auka­þingi sam­bands­ins í októ­ber.

Hvenær eru mál í skoðun?

[links]Val í lands­liðs­hóp karla hefur verið til umræðu í und­an­förnum verk­efnum liðs­ins en Arnar Þór Við­ars­son, þjálf­ari karla­lands­liðs­ins, stóð ekki til boða að velja alla þá leik­menn sem hann hafði hug á. Að sögn Vöndu er þetta sé eitt af því sem vinna starfs­hópanna felist í, það er að setja reglur um hvenær lands­liðs­menn eru gjald­gengir í leik­manna­hóp.

„Þetta er flókið en við erum að vinna að þessu. Við erum að viða að okkur upp­lýs­ingum og ætlum svo að búa til reglur,“ sagði Vanda. Meðal þess sem hóp­arnir líta til er vinna ÍSÍ að nýrri reglu­gerð sem á að kynna í mars og gildir um öll íþrótta­fé­lög. „En við verðum að gera eitt­hvað þangað til, það eru þessar bráða­birgða­reglur.“ Almenna reglan nú sé að á meðan mál eru í skoðun stígi leik­menn til hliðar en Vanda telur að mik­il­vægt sé að skýra hvenær mál telj­ist til skoð­unar, þ.e. hvort það nægi að fjallað hafi verið um mál á sam­fé­lags­miðlun, sem er að hennar mati ekki nægj­an­legt, eða hvort mál hafi verið til­kynnt, eða jafn­vel ákært, til lög­reglu.

„Við þurfum líka að spá í „hvað svo?“ Er leið til baka? Já mér finnst það. En hvernig er hún? Það eru enn þá spurn­ingar sem bíða okkar. Við ætlum að gera þetta fag­lega og við ætlum að gera þetta vel. Við ætlum að standa við þessi orð okkar sem við höfum sagt að við líðum ekki ofbeldi,“ sagði Vanda í sam­tali við Þóru Arn­órs­dóttur í Silfrinu.

Ársþing KSÍ fer fram í febr­úar á næsta ári og hyggst Vanda sækj­ast áfram eftir for­manns­sæt­inu. „Þetta er áhuga­vert við­fangs­efni og mér finnst ég henta vel í það út frá minni reynslu.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kynferðisafbrot

Leiðari

Þórður Snær Júlíusson

Klefa­menn­ing sem hyllir og verndar ofbeld­is­menn

Guðni Bergsson sagði af sér sem for­maður KSÍ í gær. Það var rétt ákvörðun hjá Guðna enda blasti við að honum var ekki stætt að sitja áfram. Ástæðan var ann­ars vegar yfir­lýs­ing sem KSÍ sendi frá sér 17. ágúst síð­ast­lið­inn, sem eng­inn innan sam­bands­ins hafði dug til að skrifa sig fyrir, vegna umræðu um þögg­un­ar­til­burði sam­bands­ins yfir kyn­ferð­is­brotum lands­liðs­manna. Þar...
Kjaftæði

Margrét Erla Maack

Viðbrögð við við­brögðum við við­brögðum við...

Í síð­ustu viku varð mér á í mess­unni. Ég missti út úr mér ógeðs­legan brand­ara sem betur hefði átt heima í pistli sem þessum, í við­tali eða á uppi­stands­kvöldi en alls ekki í beinni útsend­ingu rétt fyrir frétta­lestur á Rás 2. Brand­ar­inn var útúr­snún­ingur á orðum Páleyjar Borg­þórs­dóttur, lög­reglu­stjóra í Vest­manna­eyjum. Fyrst hugs­aði ég með mér „skilduð þið ekki djó­kið...
Aðsent

Friðrik Þór Gestsson

Hvenær er nauðgun rétt­læt­an­legur fórn­ar­kostn­aður?

Núna þegar stytt­ist í versl­un­ar­manna­helg­ina þá kemur upp umræðan um Þjóð­há­tíð í Vest­mann­eyjum og allt það sem þar ger­ist. Eins og flestir vita þá hefur Lög­reglu­stjór­inn í Vest­mann­eyjum ákveðið að til­kynna ekki fjöl­miðlum um kyn­ferð­is­brot sem til­kynnt verða á hátíð­inni fyrr en ein­hverjum dögum eftir hátíð­ina. Þannig áður en hátíðin byrjar og áður en nokkur gestur er kom­inn í dal­inn...
Skýring

Sökuð um löggu­þöggun í Druslu­viku

Á sama tíma og skipu­lagn­ing hinnar árlegu Druslu­göngu stendur sem hæst, lýsir lög­reglan í Vest­manna­eyjum því yfir að ekki verði upp­lýst um mögu­leg kyn­ferð­is­brot sem kærð verða á Þjóð­há­tíð fyrr en lög­regla telji það tíma­bært. Nítján nauðg­anir hafa verið til­kynntar á Þjóð­há­tíð frá árinu 2004. Páley Borg­þórs­dóttir, lög­reglu­stjóri í Vest­manna­eyjum, hefur verið harð­lega gagn­rýnd fyrir ummæli sín í Frétta­blað­inu og...

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár