Alvarlegar ásakanir um þöggun skekja KSÍ – Fum og fát í viðbrögðum sambandsins

Kjarninn hefur gert ítrek­aðar til­raunir til að fá svör frá KSÍ en fyr­ir­spurnir mið­ils­ins hafa gengið á milli upp­lýs­inga­full­trúa og stjórn­enda án afger­andi svara.

Ætlar KSÍ að halda áfram að þagga niður ofbeldi sem ger­endur á þeirra vegum hafa beitt? Að vera ger­enda­með­virk og fórna stúlkum og konum á alt­ari keppn­iskarla? Er það afstaða sem hreyf­ingin vill standa fyrir?“

Að þessu spurði Hanna Björg Vil­hjálms­dóttir, kenn­ari við Borg­ar­holts­skóla og for­kona jafn­réttis­nefndar Kenn­ara­sam­bands Íslands, í aðsendri grein sem birt­ist á Vísi þann 13. ágúst síð­ast­lið­inn sem velti snjó­bolta af stað en ennþá er ekki fyr­ir­séð um afleið­ingar þeirrar atburða­rásar sem hófst í kjöl­farið.

Vísaði hún til frá­sagnar ungrar konu af kyn­ferð­is­legu ofbeldi sem hún varð fyrir árið 2010 en ger­end­urnir voru sagðir hafa verið lands­liðs­menn Íslands í fót­bolta. „Fleiri frá­sagnir eru um lands­liðs­menn sem eru sagðir beita konur ofbeldi – bæði kyn­ferð­is­legu og heim­il­is­of­beldi. Þetta virð­ist ekki hafa haft nein áhrif á vel­gengni þess­ara manna. Þeim er hampað og njóta mik­illa vin­sælda meðal þjóð­ar­innar. Þöggunin er alger, og KSÍ ber vita­skuld ábyrgð á henni,“ sagði meðal ann­ars í grein­inni.

Samkvæmt heim­ildum Kjarnans snýst málið sem um ræðir um atburði sem áttu sér stað eftir leik Íslands og Dan­merkur þann 7. sept­em­ber 2010 í Kaup­manna­höfn. Jafn­framt hefur Kjarninn heim­ildir fyrir því að vit­neskja sé um málið innan KSÍ.

Grein Hönnu Bjargar vakti mikla athygli og sá KSÍ sig knúið til að senda út yfir­lýs­ingu fjórum dögum síðar þann 17. ágúst þar sem því var hafnað að sam­bandið tæki þátt í því að þagga niður ofbeld­is­mál eða hylma yfir með ger­endum. Í yfir­lýs­ing­unni sagði jafn­framt að „dylgjum“ um slíkt væri alfarið vísað á bug.

Hanna Björg brást við yfir­lýs­ing­unni með því að rita aðra grein þar sem hún sagði að Knatt­spyrnu­sam­band Íslands hafði varpað frá sér allri ábyrgð. Hún sagði það áhuga­vert að KSÍ hefði kallað mál­flutn­ing sinn „dylgjur“, „í ljósi þess að þolendur kyn­ferð­is­of­beldis eru gjarnan sagðir með dylgjur þegar þeir stíga fram og segja frá ofbeld­inu“.

„Kvartanir um meint brot einstakra leikmanna hafa ekki borist inn á borð KSÍ“

Í kjöl­far umræðu um meint kyn­ferðis- og ofbeld­is­brot lands­liðs­manna og þöggun KSÍ sendi Kjarninn fyr­ir­spurn á deild­ar­stjóra sam­skipta­deildar KSÍ, Ómar Smárason, þann 18. ágúst með eft­ir­far­andi spurn­ingum:

Almennar fyr­ir­spurnir: Hefur KSÍ ein­hvern tím­ann haft vit­neskju um ásak­anir um kyn­ferð­is­brot eða ofbeldi á hendur lands­liðs­manna í fót­bolta, sér í lagi áður en verk­ferlar voru end­ur­bættir?

Hefur KSÍ ein­hvern tím­ann haft afskipti af málum sem tengj­ast slíkum ásök­unum gegn lands­liðs­manni, sér í lagi áður en verk­ferlar voru end­ur­bættir?

Hefur KSÍ hvatt til aðkomu lög­reglu­yf­ir­valda eða leitað aðstoðar hjá Sam­skipta­ráð­gjafa íþrótta- og æsku­lýðs­mála ef og þegar grunur hefur verið um lög­brot?

Sértæk fyr­ir­spurn: Hafði KSÍ vit­neskju af meintu atviki eftir lands­leik Dan­merkur og Íslands í Kaup­manna­höfn í sept­em­ber 2010 þar sem tveir lands­liðs­menn voru ásak­aðir um kyn­ferð­is­legt ofbeldi gegn stúlku? Ef svo er, í hvaða verk­ferla fór það mál?

Tveimur dögum síðar barst svar frá Ómari.

„Takk fyrir að hafa sam­band og afsak­aðu hversu seint svarið berst.

Eins og fram hefur komið getur KSÍ ekki tjáð sig um eða vísað til ein­stakra mála. Kvart­anir um meint brot ein­stakra leik­manna hafa ekki borist inn á borð KSÍ. Berist sam­band­inu slíkar kvart­anir liggja fyrir skýrir verk­ferlar. Eins og fram kemur í yfir­lýs­ingu á heima­síðu sam­bands­ins 17. ágúst sl., leggur sam­bandið áherslu á fag­leg vinnu­brögð þegar fram koma ábend­ingar eða kvart­anir um meint ofbeldi sem með einum eða öðrum hætti má rekja til starf­semi innan hreyf­ing­ar­innar. KSÍ tekur skýra afstöðu gegn ofbeldi og hvers konar ofbeldi verður ekki liðið innan hreyf­ing­ar­innar.

Hvað verk­ferla varðar þá er rétt að taka fram að í kjöl­far fyrstu #Metoo bylt­ing­ar­innar var farið yfir þá verk­ferla sem þá voru til staðar og þeir end­ur­bættir eftir þörfum og eftir til­vikum í sam­ráði við aðra arma íþrótta­hreyf­ing­ar­innar. Allir slíkir verk­ferlar eru jafn­framt í stöðugri þróun enda hefur þjóð­fé­lagið, sem betur fer, tekið miklum fram­förum þegar kemur að því að eiga við mál af þeim toga sem þú vísar til í fyr­ir­spurn­inni.“

Deildarstjóri samskipta vísar á framkvæmdastjóra sem vísar á formanninn

Kjarninn sendi ítrekun á fyrri spurn­ingum þar sem ekki var ljóst af svari KSÍ að dæma ann­ars vegar hvort KSÍ hefði haft vit­neskju um ásak­anir um kyn­ferð­is­brot eða ofbeldi á hendur lands­liðs­manna í fót­bolta og hins vegar hvort KSÍ hefði haft afskipti af málum sem tengj­ast slíkum ásök­unum gegn lands­liðs­manni. Í síð­asta lagi hvort KSÍ hefði ein­hvern tím­ann hvatt til aðkomu lög­reglu­yf­ir­valda eða leitað aðstoðar hjá Sam­skipta­ráð­gjafa íþrótta- og æsku­lýðs­mála.

Daginn eftir, þann 21. ágúst, svar­aði Ómar fyrir hönd KSÍ og sagði: „Eins og áður hefur komið fram getur KSÍ ekki tjáð sig um eða vísað til ein­stakra mála nema til að segja að kvart­anir um meint brot ein­stakra leik­manna hafa ekki borist inn á borð KSÍ.“

Kjarninn spurði í þriðja sinn sam­dæg­urs: „Hefur KSÍ eða starfs­menn KSÍ haft vit­neskju um mál eða beitt sér/haft afskipti í málum án þess að kvörtun hafi borist á borð KSÍ?“

Þremur dögum seinna, 24. ágúst, ítrek­aði Kjarninn fyr­ir­spurn­ina þar sem svar hafði ekki borist. Sama dag svar­aði Ómar tölvu­póst­inum: „Takk fyrir póst­inn og eft­ir­fylgn­ina. Best væri ef þú myndir fylgja fyr­ir­spurn­inni eftir við Klöru fram­kvæmda­stjóra.“

Kjarninn sendi í fram­hald­inu sömu fyr­ir­spurn til Klöru Bjartmarz fram­kvæmda­stjóra KSÍ. Daginn eftir ítrek­aði Kjarninn fyr­ir­spurn­ina þar sem ekk­ert svar hafði borist. Seinna um dag­inn hafði Kjarninn sam­band sím­leiðis við Klöru til að athuga hvort fyr­ir­spurnin hefði verið mót­tekin. Í því sam­tali kom fram að fyr­ir­spurnin hefði skilað sér til hennar og að hugs­an­lega væri von á svari. En hugs­an­lega myndi hún vísa fyr­ir­spurn­inni beint á Guðna Bergsson for­mann KSÍ.

Þann 27. ágúst sendi Kjarninn aðra ítrekun og fékk svar sam­dæg­urs frá fram­kvæmda­stjór­anum. „Ég er búin að vísa þess­ari fyr­ir­spurn á Guðna. Þykir leitt hvað þetta hefur tekið langan tíma hjá okkur.“ Enn hefur ekk­ert svar borist frá Guðna við fyr­ir­spurn Kjarnans.

Landsliðsþjálfarar spjölluðu við blaðamenn um þá leiki sem framundan eru. Stemningin var þung á fundinum í ljósi umræðu síðustu vikna.
Lands­liðs­þjálf­arar spjöll­uðu við blaða­menn um þá leiki sem framundan eru. Stemn­ingin var þung á fund­inum í ljósi umræðu síð­ustu vikna.

Hélt því fram að engar tilkynningar um ofbeldi hefðu komið inn á borð KSÍ í formannstíð hans

Í milli­tíð­inni var lands­liðs­hópur Íslands fyrir kom­andi verk­efni kynntur eða þann 25. ágúst. Lands­liðs­þjálf­arar og aðrir for­ystu­menn KSÍ neit­uðu meðal ann­ars að ræða mál Gylfa Sig­urðs­sonar, sem grun­aður er um kyn­ferð­is­brot gegn barni á Englandi. Arnar Þór Við­ars­son lands­liðs­þjálf­ari stað­festi þó að „ein­hver“ innan KSÍ hefði verið í sam­bandi við Gylfa.

Sama dag sagði Guðni Bergsson, for­maður Knatt­spyrnu­sam­bands Íslands, í sam­tali við Frétta­blaðið eftir blaða­manna­fund í höf­uð­stöðvum KSÍ að sam­bandið hefði ekki fengið inn á sitt borð til­kynn­ingar um að leik­menn lands­liða Íslands hefðu und­an­farin ár beitt ein­hvers konar ofbeldi.

„Við höfum ekki fengið neinar til­kynn­ingar né ábend­ingar um slíkt inn á okkar borð síðan ég tók við for­mennsku en hins vegar erum við með­vituð um frá­sagnir á sam­fé­lags­miðlum. Það er auð­vitað erfitt að alhæfa hvort að slík mál hafi komið inn á borð sam­bands­ins frá upp­hafi en ef að við fáum ábend­ingu um að leik­maður okkar hafi eða sé að beita ofbeldi, þá skoðum við það auð­vitað og grípum til aðgerða eins og við á og hægt er,“ sagði Guðni við Frétta­blaðið.

Daginn eftir fór hann í Kast­ljós­við­tal á RÚV og end­ur­tók þá stað­hæf­ingu að engar kvart­anir eða til­kynn­ingar um kyn­ferð­is­brot hefðu komið inn á borð KSÍ. „Okkur er mjög umhugað um öryggi okkar iðk­enda og almenn­ings og hegðun okkar iðk­enda gagn­vart umhverf­inu. Við höfum vissu­lega ekk­ert farið var­hluta af þeirri umræðu sem hefur verið upp á síðkastið og und­an­farin ár, við tökum mið af því, en við verðum að fá ein­hvers konar til­kynn­ingu eða eitt­hvað slíkt, frá vitnum eða þolendum, og ef það ger­ist gætum við þess að þol­and­inn fái ákveðna aðstoð og hjálp og við tökum á því af ábyrgð og festu, og við stöndum svo sann­ar­lega gegn öllu ofbeldi, ekki síst kyn­bundnu og kyn­ferð­is­of­beldi, við gerum það.“

Guðni sagði enn fremur að gagn­rýni á KSÍ vegna þessa væri ómak­leg.

Guðni sagði að þau hjá KSÍ hefðu ekki fengið neinar tilkynningar né ábendingar um ofbeldisbrot inn á þeirra borð síðan hann tók við formennsku en hins vegar væru þau meðvituð um frásagnir á samfélagsmiðlum.
Guðni sagði að þau hjá KSÍ hefðu ekki fengið neinar til­kynn­ingar né ábend­ingar um ofbeld­is­brot inn á þeirra borð síðan hann tók við for­mennsku en hins vegar væru þau með­vituð um frá­sagnir á sam­fé­lags­miðlum.

Furðar sig á ummælum formannsins

Miklar vend­ingar urðu í mál­inu í gær­kvöldi þegar kona sem varð fyrir ofbeldi og grófri kyn­ferð­is­legri áreitni af hálfu lands­liðs­manns í knatt­spyrnu árið 2017 steig fram í fréttum RÚV og greindi frá sam­skiptum við KSÍ. Hún furð­aði sig á að for­maður KSÍ full­yrti að engin til­kynn­ing hefði borist sam­band­inu um kyn­ferð­is­brot leik­manna. Konan sagði að lög­maður á vegum KSÍ hefði boðið henni þagn­ar­skyldu­samn­ing sem hún hafn­aði. Sjálfur hefði lands­liðs­mað­ur­inn geng­ist við brot­inu og greitt miska­bætur.

Hálfu ári eftir umrætt atvik ætl­aði faðir kon­unnar að fara á vin­áttu­lands­leik. Þegar hann átt­aði sig á að umræddur fót­bolta­maður væri í lands­liðs­hópnum sendi hann starfs­fólki KSÍ tölvu­póst og greindi frá kærunni.

Hann sendi á aðal­póst­fang KSÍ, Gunnar Gylfason sem starf­aði meðal ann­ars sem fjöl­miðla­full­trúi hjá sam­band­inu, Hauk Hin­riks­son yfir­lög­fræð­ing KSÍ, Jóhann Ó. Sig­urðs­son á sam­skipta­deild KSÍ, Klöru Bjartmarz fram­kvæmda­stjóra KSÍ, Óskar Örn Guð­brands­son á sam­skipta­deild KSÍ, Þorvald Ingi­mund­ar­son sem starfar meðal ann­ars sem heil­inda­full­trúi KSÍ og Guðna Bergsson for­mann KSÍ.

Yfir­skrift tölvu­pósts­ins var: „Ofbeldi og Lands­liðið í fót­bolta á enga sam­leið.“ Í póst­inum lýsti hann meðal ann­ars furðu sinni á því að mað­ur­inn sem dóttir hans kærði hálfu ári áður fyrir „lík­ams­árás og grófa kyn­ferð­is­lega áreitni“ væri í lands­liðs­hóp fyrir kom­andi verk­efni.

„Má vera að við­kom­andi sé sterkur kandídat til að senda and­stæð­inga okkar heim af HM með skottið á milli lapp­ana en síð­ast þegar ég heyrði þá er eng­inn þeirra með píku til að rífa í og setja leik þeirra þannig úr skorðum,“ stóð í póst­inum.

Fékk hann svar frá Guðna sem sagð­ist taka málið alvar­lega. Í kjöl­farið ræddi hann við báða for­eldra kon­unnar í síma og sagði að það yrðu afleið­ingar af þessu máli.

Faðir stúlkunnar sendi stjórnarmeðlimum KSÍ tölvupóst í mars 2018 og greindi þeim frá máli dóttur sinnar.
Faðir stúlkunnar sendi stjórn­ar­með­limum KSÍ tölvu­póst í mars 2018 og greindi þeim frá máli dóttur sinnar.

„Minnti að þetta brot hefði verið ofbeldisbrot og ekki af kynferðislegum toga“

Í ljósi fyrri ummæla for­manns KSÍ spurði frétta­maður RÚV hann hvers vegna hann hefði svarað með þeim hætti sem hann gerði í Kast­ljós­við­tal­inu dag­inn áður. Guðni svar­aði og sagði að það hefðu verið mis­tök að segja að engin til­kynn­ing hefði borist sam­band­inu um kyn­ferð­is­brot af hálfu leik­manns í lands­liði karla í knatt­spyrnu.

„Mig minnti að þetta brot hefði verið ofbeld­is­brot og ekki af kyn­ferð­is­legum toga. En miðað við það sem þú sendir á mig og ég las svo yfir þá sé að svar mitt var ekki nákvæmt og í raun og veru ekki rétt miðað við þessa atvika­lýs­ingu. Og ég biðst vel­virð­ingar á því að sjálf­sögðu,“ sagði Guðni.

KSÍ neitar að lögmaður á þeirra vegum hafi haft samband við þolanda

KSÍ sendi frá sér til­kynn­ingu í gær­kvöldi eftir umfjöllun RÚV en í henni vildi sam­bandið taka skýrt fram að það hefði ekki verið lög­maður á vegum KSÍ sem hefði haft sam­band við kon­una og beðið um þagn­ar­skyldu í umræddu máli. Brást hún við á sam­fé­lag­miðlum og sagð­ist muna vel að þetta hefði verið lög­fræð­ingur á vegum KSÍ þar sem henni hefði orð­rétt verið boðið á fund með „stjórn­ar­með­limum KSÍ og til­teknum lands­liðs­manni“ þar sem bera átti undir hana þagn­ar­skyldu­samn­ing­inn.

„Ég man hversu miklum kvíða það olli mér sú til­hugsun að labba inná fund með nán­ast ein­göngu karl­mönnum og standa ein á móti þeim. Og líkt og ég tók fram náð­ist sátt þar sem ég skrif­aði ekki undir neina þagn­ar­skyldu og það var með lög­fræð­ing lands­liðs­manns­ins ásamt honum sjálfum,“ skrif­aði hún á Twitter í gær­kvöldi.

Konan sagði jafn­framt í sam­tali við frétta­stofu RÚV í dag að umræddur lög­maður hefði kynnt sig sem lög­maður leik­manns­ins þegar hann hafði sam­band. Hann hefði verið að fiska eftir upp­lýs­ingum um hvað hefði átt sér stað og hvernig ofbeldið hefði verið. Hún hefði í fram­hald­inu sett sig í sam­band við rétt­ar­gæslu­mann sinn sem hefði aflað sér frek­ari upp­lýs­inga um málið og hann síðan tjáð henni að umræddur lög­maður hefði verið á vegum KSÍ.

Hún sagði að það hefði síðan verið á fundi hennar og ann­ars lög­manns, sem var lög­maður leik­manns­ins, þar sem sátt náð­ist. Leik­mað­ur­inn ját­aði það sem Þór­hildur sagði hann hafa gert sér og greiddi henni miska­bætur.

Stjórn KSÍ fund­aði í hádeg­inu í dag. Ekki náð­ist í Guðna Bergsson for­mann KSÍ við vinnslu frétta­skýr­ing­ar­innar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Metoo

LífiðMetoo

Brota­þol­inn tekur skell­inn

Konur eru í miklum meiri­hluta þeirra sem verða fyrir kyn­ferð­is­legri áreitni karl­kyns yfir­manns á vinnu­stöðum. Drífa Snædal, tals­kona Stíga­móta, segir að slík áreitni geti orðið til þess að konur upp­lifi jafn­vel skömm og sumar hrökkl­ast úr starfi þegar ástandið er orðið óbæri­legt. Þetta ofbeldi getur haft áhrif á sjálfs­mynd og sjálfs­traust við­kom­andi konu og and­lega líðan.

10 mín. lestur

Mest lesið undanfarið ár