Eggert Gunnþór segist saklaus

Knatt­spyrnu­mað­ur­inn Eggert Gunnþór Jónsson hafnar ásök­unum um kyn­ferð­is­brot í Kaup­manna­höfn árið 2010 og seg­ist full­kom­lega sak­laus.

Eggert Gunnþór Jónsson er hér til vinstri í leik gegn Hvíta-Rússlandi á Evrópumóti U-21 landsliða árið 2011.
Eggert Gunnþór Jónsson er hér til vinstri í leik gegn Hvíta-Rúss­landi á Evr­ópu­móti U-21 lands­liða árið 2011. Mynd: EPA

Eggert Gunnþór Jónsson leik­maður FH í knatt­spyrnu, sem sak­aður er um að hafa brotið kyn­ferð­is­lega á konu í keppn­is­ferð karla­lands­liðsl­ins í fót­bolta í Kaup­manna­höfn 2010, seg­ist full­kom­lega sak­laus í til­kynn­ingu sem lög­mað­ur­inn hans sendi á fjöl­miðla fyrr í dag.

Stundin greindi frá því fyrr í dag að Eggert hafi verið annar þeirra sem var kærður vegna máls­ins, ásamt lands­liðs­fyr­ir­lið­anum Aroni Einari Gunn­ars­syni. Vegna máls­ins ákvað KSÍ að velja Aron Einar ekki í lands­liðs­hóp­inn, en sam­kvæmt frétt Stund­ar­innar hefur FH ekki brugð­ist við með sama hætti gagn­vart Eggerti Gunnþóri.

Í yfir­lýs­ingu sinni seg­ist Eggert hafa reynt að skýla sér og fjöl­skyldu sinni fyrir kast­ljósi fjöl­miðla vegna máls­ins, þar sem hann hafi ekki verið nafn­greindur fram til þessa. Hann hafi hins vegar óskað eftir því að vera boð­aður í skýrslu­töku hjá lög­regl­unni til að skýra frá sinni hlið.

„Þar sem ég hef ekki enn fengið tæki­færi til að skýra mál mitt á réttum vett­vangi og sökum umfjöll­unar frétta­miðla í dag tel ég mig hins­vegar ekki eiga annan kost en að stíga fram og lýsa því opin­ber­lega yfir að ég er full­kom­lega sak­laus af því sem ég hef verið sak­aður um,“ bætir Eggert við.

Yfirlýsing Eggerts Gunn­þórs í heild sinni:

Und­an­farnar vikur hafa fjöl­miðlar fjallað um atvik sem á að hafa átt sér stað í Kaup­manna­höfn árið 2010 þar sem tveir lands­liðs­menn hafa verið bornir þungum sökum. Ég er annar umræddra lands­liðs­manna.

Það er hrika­legt áfall að vera ásak­aður um hræði­legt ofbeld­is­brot vegna atviks sem var svo sann­ar­lega ekki með þeim hætti sem lýst er í fjöl­miðlum.[links]

Ég hef reynt að skýla mér og fjöl­skyldu minni fyrir kast­ljósi fjöl­miðla þar sem ég hafði fram að birt­ingu fréttar Stund­ar­innar í dag ekki verið nafn­greindur. Föstu­dag­inn 1. októ­ber síð­ast­lið­inn hafði ég hins­vegar þegar óskað eftir því að vera boð­aður í skýrslu­töku til að skýra frá minni hlið.

Þar sem ég hef ekki enn fengið tæki­færi til að skýra mál mitt á réttum vett­vangi og sökum umfjöll­unar frétta­miðla í dag tel ég mig hins­vegar ekki eiga annan kost en að stíga fram og lýsa því opin­ber­lega yfir að ég er full­kom­lega sak­laus af því sem ég hef verið sak­aður um.

Ég vona að málið kom­ist í réttan far­veg hið snarasta svo ég geti hreinsað mig af þessum ásök­unum.

Eggert Gunnþór Jónsson.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Metoo

LífiðMetoo

Brota­þol­inn tekur skell­inn

Konur eru í miklum meiri­hluta þeirra sem verða fyrir kyn­ferð­is­legri áreitni karl­kyns yfir­manns á vinnu­stöðum. Drífa Snædal, tals­kona Stíga­móta, segir að slík áreitni geti orðið til þess að konur upp­lifi jafn­vel skömm og sumar hrökkl­ast úr starfi þegar ástandið er orðið óbæri­legt. Þetta ofbeldi getur haft áhrif á sjálfs­mynd og sjálfs­traust við­kom­andi konu og and­lega líðan.

10 mín. lestur

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár