Aron Einar segist vera saklaust fórnarlamb útilokunarmenningar KSÍ

Fyr­ir­liði karla­lands­liðs­ins í knatt­spyrnu seg­ist draga þá ályktun að sjálf­kjörin stjórn KSÍ hafi umboðs­laus beitt sér fyrir því að honum yrði slaufað vegna „krafna sem byggj­ast á óljósum orðrómi um lands­liðs­menn“. Hann seg­ist aldrei hafa gerst brot­legur.

Aron Einar Gunnarsson
Aron Einar Gunn­ars­son Mynd: EPA

Aron Einar Gunn­ars­son, fyr­ir­liði karla­lands­liðs­ins í knatt­spyrnu, segir að hann hafni öllu ofbeldi og hafi „aldrei gerst brot­legur gagn­vart neinum eða neinni“. Það sem nú við­gang­ist sé „slauf­un­ar­menn­ing eða úti­lok­un­ar­menn­ing og hana ætti ekki að líða“ og að hann ætli sér ekki að vera með­virkur gagn­vart dóm­stól göt­unnar varð­andi atvik sem á að hafa átt sér stað fyrir ell­efu árum síðan. „Hafi ein­hver eitt­hvað út á mig að setja þá bið ég við­kom­andi vin­sam­leg­ast að hlífa mér ekki, ásaka mig frekar og nafn­greina og gefa mér kost á að verja mig. Það er heið­ar­legt.“

Þetta kemur fram í yfir­lýs­ingu sem lög­maður Arons Einars sendi á fjöl­miðla í dag, en hann var ekki í lands­liðs­hópnum sem til­kynntur var skömmu eftir hádegi og það sagt vera vegna „utan­að­kom­andi“ ástæðna.

[adspot]Í yfir­lýs­ing­unni segir Aron Einar að hann geti aðeins dregið þá ályktun að kom­andi sjálf­kjörin stjórn KSÍ hafi umboðs­laus beitt sér fyrir því að honum yrði slaufað. „Árangur lands­liðs­ins hefur ekki verið þannig að skyn­sam­legt sé að setja reynd­ustu menn­ina til hliðar og því er það ekki ástæðan. Ég hef heldur ekki beðið Arnar Þór um trúnað um þær ástæður að hann velji mig ekki. Fyrir mig, og fjöl­skyldu mína og vini sem þekkja til mín, er mjög sárt að KSÍ, sem ég hef í 97 lands­leikjum gefið alla mína krafta skuli setja mig til hliðar vegna krafna sem byggj­ast á óljósum orðrómi um lands­liðs­menn. Þetta er óverj­andi staða.“

Aron Einar segir í yfir­lýs­ing­unni að á sam­fé­lags­miðlum hafi verið til umræðu atburður sem sagt sé að hafi átt sér stað í Kaup­manna­höfn 2010. „Ég hef ekki fengið tæki­færi til að ræða málið form­lega við KSÍ, eða verið gef­inn kostur á standa á rétti mínum gagn­vart ávirð­ing­unum, og því sárnar mér þessi fyr­ir­vara­lausa ákvörðun um að verða settur út úr lið­inu. Í ofaná­lag hefur lög­regla aldrei haft sam­band við mig vegna nokk­urs máls. Ég hef engar til­kynn­ingar fengið um að ég hafi á ein­hverjum tíma­punkti verið undir grun og aldrei verið boð­aður í yfir­heyrslu.“

Hann seg­ist hafa ákveðið að óska eftir því við lög­reglu­yf­ir­völd að fá að gefa skýrslu um þetta kvöld fyrir ell­efu árum.

Sagði ákvörðunina í samráði við Aron Einar

Þegar Arnar Þór Við­ars­son lands­liðs­þjálf­arið var spurður út í það á blaða­manna­fundi í dag af hverju Aron Einar væri ekki í hópnum þá sagð­ist hann hafa tekið þá ákvörðun sjálf­ur. „Ástæð­urnar fyrir því eru utan­að­kom­andi og ég get ekki farið nánar út í það í dag. Ég bið ykkur að virða það.“

Hann sagð­ist hafa átt góð sam­töl við Aron Einar um málið en fyr­ir­lið­inn gaf kost á sér í lið­ið. Arnar Þór sagð­ist ekki vita hvað fram­tíðin bæri í skauti sér varð­andi veru Arons Ein­ars í lands­lið­inu en þessi ákvörðun ætti ein­ungis við um þessa tvo leiki.

Sam­kvæmt Arn­ari Þór var ákvörð­unin tekin í sam­ráði við Aron Ein­ar. Hann vildi ekki útskýra nánar hvað fælist í þessum „ut­an­að­kom­andi“ aðstæðum en þegar tím­inn væri kom­inn á að gera það myndu þeir útskýra málið frek­ar.

í sam­tali deild­­ar­­stjóra sam­­skipta­­deildar KSÍ við Kjarn­ann í dag kom fram að stjórn KSÍ hefði ekki haft afskipti af vali þjálf­ara karla­lands­liðs­ins í fót­bolta fyrir kom­andi leiki.

KSÍ segist hafa fengið ábendingu um málið

Málið hefur valdið miklum titr­ingi innan KSÍ en það hófst þegar Hanna Björg Vil­hjálms­dóttir skrif­aði grein í Vísi þar sem hún sak­aði KSÍ um þöggun varð­andi kyn­ferð­is­of­beldi af hendi lands­liðs­manna.

[links]Vís­aði hún til frá­sagnar ungrar konu af kyn­ferð­is­legu ofbeldi sem hún varð fyrir árið 2010 sem hún birti á sam­fé­lags­miðlum í byrjun maí en ger­end­urnir voru sagðir hafa verið lands­liðs­menn Íslands í fót­bolta. „Fleiri frá­sagnir eru um lands­liðs­menn sem eru sagðir beita konur ofbeldi – bæði kyn­ferð­is­legu og heim­il­is­of­beldi. Þetta virð­ist ekki hafa haft nein áhrif á vel­gengni þess­ara manna. Þeim er hampað og njóta mik­illa vin­sælda meðal þjóð­ar­inn­ar. Þögg­unin er alger, og KSÍ ber vita­skuld ábyrgð á henn­i,“ sagði meðal ann­ars í grein Hönnu Bjarg­ar.

Kjarninn greindi frá því í síð­ustu viku að KSÍ hafi fengið ábend­ingu um meint atvik eftir lands­leik Dan­merkur og Íslands í Kaup­manna­höfn í sept­em­ber 2010 þar sem tveir lands­liðs­menn voru ásak­aðir um kyn­ferð­is­legt ofbeldi gegn stúlku „snemm­sum­ars á þessu ári“ eða 2. eða 3. júní síð­ast­lið­inn. Seinnipart sum­ars barst svo aftur skrif­leg ábend­ing um sama mál.

Þetta kom fram í svari KSÍ við fyr­ir­spurn Kjarn­ans. KSÍ svar­aði ekki hvort málið hafi farið í sér­stakan verk­feril þegar ábend­ingin barst í byrjun júní.

Guðni neitaði því að ábending hefði verið formleg

Guðni Bergs­son fyrr­ver­andi for­maður KSÍ sem sagði af sér emb­ætti í lok síð­asta mán­aðar neit­aði því hins vegar í sam­tali við Kjarn­ann að sam­bandið hafi fengið form­lega ábend­ingu um meint kyn­ferð­is­brot lands­liðs­manna. KSÍ hefði borist nafn­laust bréf þar sem meðal ann­ars var spurt hvort þau vildu „virki­lega að fyr­ir­myndir allra barna sem hafa áhuga á fót­bolta“ væru kyn­ferð­is­af­brota- og ofbeld­is­menn.

„Við vissum um til­vist þessa máls í gegnum sam­fé­lags­miðla. Við vissum það. Það kom upp á yfir­borðið í júní­mán­uði en ég hefði ekki vit­neskju um það hvort þetta til­tekna nafn­lausa bréf beind­ist að þessu máli enda kemur það ekk­ert fram í bréf­inu,“ sagði Guðni. „Við reyndum auð­vitað að átta okkur á því miðað við hvernig sú frá­sögn var án nafn­grein­ingar hvað væri í raun og veru hægt að gera í mál­inu. Við reyndum í sjálfu sér að fá það fram í gegnum tengilið hvað hún vildi við­haf­ast í mál­inu þar sem hún væri með for­ræði á því.“

Þegar Guðni var spurður hvort KSÍ hefði náð sam­bandi við þol­and­ann svar­aði hann því neit­andi. „Við náðum alla­vega aldrei að ræða við hana. Þol­and­inn ræddi aldrei beint við okk­ur, nei.“

Í bréf­inu sem Kjarn­inn hefur undir höndum er ekki til­greint sér­stakt atvik eða nöfn þolenda eða ger­anda.

Ómar Smára­son, deild­ar­stjóri sam­skipta­deildar KSÍ, árétt­aði í sam­tali við Kjarn­ann sama dag að KSÍ hefði borist ábend­ing um mál­ið. Hann sagð­ist ekki hafa vit­neskju um það hvort umrætt bréf hafi verið ábend­ingin en hann stað­festir í tvígang að ábend­ing hafi borist KSÍ í byrjun júní. „Það er alveg klárt mál.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár