Aron Einar ekki með í landsliðshópnum – „Ástæðurnar fyrir því eru utanaðkomandi“

Þjálf­arar karla­lands­liðs­ins í fót­bolta hafa valið hvaða leik­menn spila tvo heima­leiki í und­ankeppni HM 2022 í októ­ber. Fyr­ir­lið­inn er ekki meðal leik­manna í hópnum. „Ástæð­urnar fyrir því eru utan­að­kom­andi og ég get ekki farið nánar út í það.“

Arnar Þór Viðarsson, þjálfari íslenska karlalandsliðsins í fótbolta.
Arnar Þór Við­ars­son, þjálf­ari íslenska karla­lands­liðs­ins í fót­bolta. Mynd: Skjáskot/Vísir

Arnar Þór Við­ars­son, lands­liðs­þjálf­ari karla­lands­liðs­ins í fót­bolta, hefur valið hóp fyrir leik­ina gegn Armeníu og Liechtenstein í októ­ber næst­kom­andi. Athygli vekur að Aron Einar Gunn­ars­son fyr­ir­liði lands­liðs­ins var ekki val­inn í hóp­inn.

Ísland mætir Armeníu föstu­dag­inn þann 8. októ­ber og Liechtenstein mánu­dag­inn 11. októ­ber. Báðir leik­irnir fara fram á Laug­ar­dals­velli og hefj­ast þeir klukkan 18:45. Armenía er í öðru sæti rið­ils­ins með 11 stig, Ísland í því fimmta með fjögur stig og Liechtenstein í því neðsta með eitt stig.

[adspot]

Hópurinn er sem hér segir:

  • Patrik Sigurður Gunn­ars­son - Viking FK
  • Rúnar Alex Rún­ars­son - Oud-Heverlee-Leuven - 12 leikir
  • Elías Rafn Ólafsson - FC Mid­tjyl­land
  • Jón Guðni Fjóluson - Hammarby IF - 18 leikir, 1 mark
  • Ari Leifsson - Stroms­god­set IF - 1 leikur
  • Brynjar Ingi Bjarna­son - US Lecce - 6 leikir, 2 mörk
  • Hjörtur Her­manns­son - Pisa - 23 leikir, 1 mark
  • Ari Freyr Skúlason - IFK Norrköp­ing - 81 leikur
  • Guð­mundur Þór­ar­ins­son - New York City FC - 9 leikir
  • Alfons Sampsted - FK Bodo/Glimt - 5 leikir
  • Birkir Már Sæv­ars­son - Valur - 101 leikur, 3 mörk
  • Þórir Jóhann Helgason - US Lecce - 3 leikir
  • Ísak Bergmann Jóhann­es­son - FC Köben­havn - 7 leikir
  • Birkir Bjarna­son - Adana Dem­ir­spor - 101 leikur, 14 mörk
  • Stefán Teitur Þórð­ar­son - Sil­ke­borg IF - 4 leikir
  • Andri Fannar Bald­urs­son - FC Köben­havn - 7 leikir
  • Guð­laugur Victor Pálsson - FC Schalke 04 - 28 leikir, 1 mark
  • Albert Guð­munds­son - AZ Alkmaar - 25 leikir, 4 mörk
  • Jón Dagur Þor­steins­son - AGF - 12 leikir, 1 mark
  • Mikael Neville Anderson - AGF - 10 leikir, 1 mark
  • Jóhann Berg Guð­munds­son - Burnley - 81 leikur, 8 mörk
  • Andri Lucas Guðjohn­sen - Real Madrid Castilla - 3 leikir, 1 mark
  • Sveinn Aron Guðjohn­sen - IF Elfsborg - 4 leikir
  • Viðar Örn Kjart­ans­son - Val­er­enga IF - 30 leikir, 4 mörk
  • Elías Már Ómarsson - Nimes Olympique - 9 leikir

Mótfallnir öllu ofbeldi

[links]Á blaða­manna­fundi í dag sagði Arnar Þór að íþrótta­hreyf­ingin stæði frammi fyrir miklum áskor­unum. Varla hefur farið fram hjá mörgum að ýmis­legt hefur gengið á und­an­farna mán­uði innan KSÍ eftir að frá­sagnir af kyn­ferð­is­of­beldi og áreitni lands­liðs­manna í knatt­spyrnu komu upp á yfir­borðið fyrr í sum­ar. For­maður KSÍ, Guðni Bergs­son, sagði af sér emb­ætti í kjöl­farið og sömu­leiðis stjórn­in.

Arnar Þór sagði á fund­inum að þau mál væru komin í ákveðið ferli og að innan KSÍ hefði verið hafið vinna til að laga verk­ferla innan hreyf­ing­ar­innar. Að hans mati er það mjög jákvætt en þeir Eiður Smári Guðjohn­sen aðstoð­ar­þjálf­ari eru sam­mála um að nauð­syn­legt sé að hafa ákveð­inn ramma til að vinna eftir hvað val á lands­liðs­mönnum varðar.

Hann benti jafn­framt á að þess­ari vinnu væri ekki lokið og að nú væri KSÍ í ákveðnu milli­bils­á­standi – en von er á nýrri stjórn og nýjum for­manni. „Vinnan mun klár­ast á næstu vikum,“ sagði Arnar Þór. Hann impraði á því að hann og Eiður Smári væru „að sjálf­sögðu mót­fallnir öllu ofbeldi“ og að þeir vildu taka þátt í íþrótta­hreyf­ingu sem væri viljug til að laga það sem laga þarf.

Tók ákvörðunina í samráði við Aron Einar sem gaf kost á sér

Þegar Arnar Þór var spurður út í það af hverju Aron Einar væri ekki í hópnum þá seg­ist hann hafa tekið þá ákvörðun sjálfur. „Ástæð­urnar fyrir því eru utan­að­kom­andi og ég get ekki farið nánar út í það í dag. Ég bið ykkur að virða það.“

Hann seg­ist hafa átt góð sam­töl við Aron Einar um málið en fyr­ir­lið­inn gaf kost á sér í liðið. Arnar Þór seg­ist ekki vita hvað fram­tíðin beri í skauti sér varð­andi veru Arons Einars í lands­lið­inu en þessi ákvörðun á ein­ungis við um þessa tvo leiki.

Samkvæmt Arnari Þór var ákvörð­unin tekin í sam­ráði við Aron Einar. Hann vildi ekki útskýra nánar hvað fælist í þessum „utan­að­kom­andi“ aðstæðum en þegar tím­inn væri kom­inn á að gera það myndu þeir útskýra málið frekar.

Á fund­inum var einnig spurt út í það af hverju Kolbeinn Sig­þórs­son hefði ekki verið val­inn í hóp­inn og benti Arnar Þór á að hann væri meiddur. Hann árétt­aði að eng­inn hefði bannað þjálf­ur­unum að velja ákveðna menn í hóp­inn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár