Er Michael Jackson of stór fyrir slaufunarmenningu?

For­sýn­ingar á söng­leik um Michael Jackson hófust á Broadway í des­em­ber. Handrit söng­leiks­ins var samið eftir að tveir menn stigu fram og sögðu frá hvernig Jackson mis­not­aði þá sem börn. Ekki er hins vegar minnst einu orði á barn­a­níð í söng­leiknum.

Söng­leikur um popp­stjörn­una Michael Jackson var for­sýndur á Broadway í des­em­ber fyrir fullu húsi. Lynn Nottage, sem hefur í tvígang hlotið Pulitzer-verð­launin, skrifar hand­ritið og leik­stjórn er í höndum Christopher Wheeldon, þekkts dans­höf­undar. Miklum fjár­munum hefur verið varið í gerð söng­leiks­ins og hans beðið með mik­illi eft­ir­vænt­ingu, ekki síst þegar kemur að því hvernig ásak­anir á hendur Jackson um barn­a­níð verða teknar fyrir í söng­leiknum. En svarið er ein­falt: Það er ekki gert.

Það ætti kannski ekki að koma á óvart þar sem aðstand­endur Jackson eru með í ráðum við gerð söng­leiks­ins. En samt.

„Hver í fjandanum er þessi fjölskylda sem hann vill taka með í tónleikaferðalagið?“

Söng­leik­ur­inn ber heitið MJ og ger­ist að mestu árið 1992, ári áður en Jackson var fyrst sak­aður um mis­notkun. Söng­leik­ur­inn dregur því upp mynd af honum, popp­kóng­inum, á toppi fer­ils­ins en á sama tíma glímdi hann við fjár­hags­vand­ræði tengd búgarð­inum Never­land og ofneyslu verkja­lyfja, sem á enfanum varð hans bana­mein sum­arið 2009. Á einum tíma­punkti er örlítið gefið til kynna að Jackson hafi mögu­lega átt í vafasömum sam­skiptum við unga drengi þegar umboðs­mað­ur­inn varpar fram spurn­ingu í einu atrið­inu þar sem hann spyr „hver í fjand­anum þessi fjöl­skylda sé sem hann vill taka með í tón­leika­ferða­lagið?“

Lífs­hlaup og frægð Jackson eru merki­leg fyrir margra hluta sakir, útlit hans var sífellt til tals og heims­byggðin fylgd­ist með umdeildum upp­á­tækjum hans, líkt og að halda á nýfæddum syni sínum yfir svala­hand­rið á hót­eli í Berlín. En á seinni hluta fer­ils­ins urðu raddir sífellt hávær­ari þess efnis að Jackson hafi mis­notað unga drengi.

Árið 1993 sak­aði fjöl­skylda 12 ára drengs Jackson um að hafa mis­notað dreng­inn á hót­el­her­bergi. Fjöl­skyldan hafði ferð­ast með Jackson til Las Vegas eftir að Jackson ving­að­ist við föður drengs­ins þegar hann leigði sér bíl eftir að bíll­inn hans bil­aði. Dreng­ur­inn varði síellt meiri tíma með Jackson og fór fjöl­skyld­una að gruna að ekki væri allt með felldu. Dreng­ur­inn greindi sál­fræð­ingi frá mis­notk­un­inni þar sem hann sagði Jackson hafa snert sig á óvið­eig­andi hátt og þvingað hann til munn­maka. Þá sagði hann að Jackson hafi við­ur­kennt að hafa átt í svip­uðu sam­bandi við aðra drengi. Málið fór aldrei fyrir dóm en lauk með 20 milljón doll­ara sátta­greiðslu frá Jackson til for­eldr­anna.

Um tíu árum síðar var gefin út ákæra í sjö liðum þar sem Jackson er sak­aður um barn­a­níð og fyrir að hafa gefa barni eit­ur­lyf í þeim til­gangi að deyfa það og tæla. Rétt­ar­höld fóru fram í febr­úar 2005 en Jackson var að lokum sýkn­aður af öllum ákæru­liðum.

Robson og Safechuck neita að tjá sig um söngleikinn

Wade Robson var meðal þeirra sem bar vitni í rétt­ar­höld­unum, en hann kom fram í nokkrum tón­list­ar­mynd­böndum með Jackson. Í rétt­ar­höld­unum þvertók hann fyrir að hafa verið mis­not­aður. Árið 2013, fjórum árum eftir and­lát Jackson, við­ur­kenndi Robson að hann hafi verið mis­not­aður af Jackson. Ári síðar steig annar maður fram, James Safechuck, og sak­aði Jackson um kyn­ferð­is­legt ofbeldi. Robson og Safechuck segja ítar­lega frá mis­notk­un­inni sem fór fram þegar þeir voru ungir drengir í heim­ilda­mynd­inni Leaving Never­land sem var frum­sýnd á Sundance-kvik­mynda­há­tíð­inni í jan­úar 2019. Hvorki Robson né Safechuck hafa viljað tjá sig um upp­færslu söng­leiks­ins þegar eftir því hefur verið leitað.

Jackson neit­aði öllum ásök­unum og eftir andlár hans í júní 2009 hefur fjöl­skylda hans hafnað öllum ásök­unum á hendur Jackson. Það ætti því ekki að koma á óvart að ásak­anir um barn­a­níð komi ekki fram í söng­leiknum þar sem fjöl­skylda Jackson kemur að upp­setn­ing­unni. Frá því að söng­leik­ur­inn var for­sýndur 6. des­em­ber hefur verið upp­selt á allar sýn­ingar. Stefnan er að þróa söng­leik­inn og koma að mögu­legum breyt­ingum til 1. febr­úar þegar almennar sýn­ingar hefj­ast.

Í því sam­hengi er áhuga­vert að velta fyrir sér áhrifum slauf­un­ar­menn­ingu (e. Cancel culture) í tengslum við feril Michael Jackson. Er hann ein­fald­lega of stór fyrir slauf­un­ar­menn­ingu?

Úti­lok­un­ar­menn­ing eða slauf­un­ar­menn­ing er til­tölu­lega nýtt fyr­ir­bæri sem varð aðal­lega til á net­inu. Með gríð­ar­lega miklu upp­lýs­inga­flæði og aðgengi almenn­ings að inter­net­inu hefur umræða færst yfir á opin­bera vett­vang­inn og geta allir verið sinn eigin fjöl­mið­ill.

[links]Slauf­un­ar­menn­ing gengur út á það að úti­loka ein­stak­linga sem brotið hafa gegn sam­fé­lags­legum gildum og hags­munum þjóð­fé­lags­ins – ýmist með því að hafa tjáð sig á ákveð­inn máta eða gert eitt­hvað á hlut ann­arra. Segja má að um ákveðið félags­legt aðhald sé að ræða. Almenn­ingur sýnir þannig andóf gegn þessum ein­stak­lingum sem brjóta af sér.

Kjarninn fjall­aði um þetta til­tölu­lega nýja fyr­ir­bæri í ítar­legri frétta­skýr­ingu í októ­ber 2020 þar sem meðal ann­ars var rætt við Arnar Eggert Thoraren­sen, aðjunkt við félags­fræð­i-, mann­fræði- og þjóð­fræði­deild við HÍ, fjall­aði um tím­ann í tengslum við slauf­un­ar­menn­ingu, þ.e. á hvaða tíma­punkti í ferli tón­list­ar­manns sem er úti­lok­aður sé eðli­legt að hætta að hlusta á hann? Arnar Egg­ert nefndi Mich­ael Jackson sem dæmi og spurði í því sam­hengi hvort það sé í lagi að hlusta á plöt­urnar sem hann gerði áður en hann varð full­orð­inn og hver ákveði það í raun?

Úr „Don’t Stop ’Til You Get Enough“ í „MJ“

Söng­leikur um Michael Jackson hefur lengi verið í smíðum en greint var frá fyr­ir­hug­aðri Broadway-upp­færslu vorið 2018. Hvort sem það er af ásettu ráði eða ekki er sögu­sviðið og tíma­línan afar þröng. Sögu­þráð­ur­inn er aðeins bund­inn við tvo daga og ger­ist í æfinga­hús­næði í Los Angeles þar sem Jackson ein­beitir sér að und­ir­bún­ingi fyrir næsta tón­leika­ferða­lag sitt um heim­inn: Dangerous. Með þessu móti er ein­blínt á snilli­gáfu Jackson, söng- og dans­hæfi­leik­ana. Einnig má finna nokkur end­ur­lit frá upp­hafi ferli Jackson, en ekk­ert þegar nær dregur ásök­unum um barn­a­níð.

Til stóð að setja upp söng­leik­inn í Chicago skömmu eftir frum­sýn­ingu heim­ilda­mynd­ar­innar Leaving Never­land en fallið var frá þeirri hug­mynd auk þess sem nafni söng­leiks­ins var breytt úr „Don’t Stop ’Til You Get Enough“ í aðeins hlut­laus­ara nafn, ein­fald­lega „MJ“. Í fram­hald­inu var stefnt á frum­sýn­ingu á Broadway sum­arið 2020 en þegar leik­hús­inu var lokað sökum kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins var frum­sýn­ing­unni frestað.

Nottage og Wheeldon, hand­rits­höf­undur og leik­stjóri MJ, sögðu verk­efnið áskorun eftir að heim­ilda­myndin kom út í mars 2019. Hvorki Nottage né Wheeldon tóku afstöðu um ásak­an­irnar á hendur Jackson. „Hluti af því sem við gerum sem lista­menn er að bregð­ast við flækju­stigum,“ sagði Wheeldon í við­tali vorið 2019. Að hans sögn er áherslan í söng­leiknum fyrst og fremst á sköp­un­ar­ferli Michael Jackson.

„Ég horfi á list­formið sem við erum að skapa sem leið til að dýpka skiln­ing okkar á Michael Jackson og vinna úr ýmsum til­finn­ingum,“ sagði Nottage, en að hennar mati er það einmitt það sem leik­húsið getur gert.

Form­legar sýn­ingar hefj­ast í febr­úar og þá kemur í ljós hvort tak­ist að fyll­ast þau 1.145 sæti Neil Simon-leik­húss­ins, en allt bendir til þess að almenn­ingur, eða stór hluti hans, sé til­bú­inn að segja skilið við ásak­anir á hendur Jackson, að minnsta kosti á meðan það fylgist með leik­urum og dönsurum segja frá hluta fer­ils popp­kóngs­ins með dansi og leik á Broadway.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kynferðisafbrot

Leiðari

Þórður Snær Júlíusson

Klefa­menn­ing sem hyllir og verndar ofbeld­is­menn

Guðni Bergsson sagði af sér sem for­maður KSÍ í gær. Það var rétt ákvörðun hjá Guðna enda blasti við að honum var ekki stætt að sitja áfram. Ástæðan var ann­ars vegar yfir­lýs­ing sem KSÍ sendi frá sér 17. ágúst síð­ast­lið­inn, sem eng­inn innan sam­bands­ins hafði dug til að skrifa sig fyrir, vegna umræðu um þögg­un­ar­til­burði sam­bands­ins yfir kyn­ferð­is­brotum lands­liðs­manna. Þar...
Kjaftæði

Margrét Erla Maack

Viðbrögð við við­brögðum við við­brögðum við...

Í síð­ustu viku varð mér á í mess­unni. Ég missti út úr mér ógeðs­legan brand­ara sem betur hefði átt heima í pistli sem þessum, í við­tali eða á uppi­stands­kvöldi en alls ekki í beinni útsend­ingu rétt fyrir frétta­lestur á Rás 2. Brand­ar­inn var útúr­snún­ingur á orðum Páleyjar Borg­þórs­dóttur, lög­reglu­stjóra í Vest­manna­eyjum. Fyrst hugs­aði ég með mér „skilduð þið ekki djó­kið...
Aðsent

Friðrik Þór Gestsson

Hvenær er nauðgun rétt­læt­an­legur fórn­ar­kostn­aður?

Núna þegar stytt­ist í versl­un­ar­manna­helg­ina þá kemur upp umræðan um Þjóð­há­tíð í Vest­mann­eyjum og allt það sem þar ger­ist. Eins og flestir vita þá hefur Lög­reglu­stjór­inn í Vest­mann­eyjum ákveðið að til­kynna ekki fjöl­miðlum um kyn­ferð­is­brot sem til­kynnt verða á hátíð­inni fyrr en ein­hverjum dögum eftir hátíð­ina. Þannig áður en hátíðin byrjar og áður en nokkur gestur er kom­inn í dal­inn...
Skýring

Sökuð um löggu­þöggun í Druslu­viku

Á sama tíma og skipu­lagn­ing hinnar árlegu Druslu­göngu stendur sem hæst, lýsir lög­reglan í Vest­manna­eyjum því yfir að ekki verði upp­lýst um mögu­leg kyn­ferð­is­brot sem kærð verða á Þjóð­há­tíð fyrr en lög­regla telji það tíma­bært. Nítján nauðg­anir hafa verið til­kynntar á Þjóð­há­tíð frá árinu 2004. Páley Borg­þórs­dóttir, lög­reglu­stjóri í Vest­manna­eyjum, hefur verið harð­lega gagn­rýnd fyrir ummæli sín í Frétta­blað­inu og...

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár