Sökuð um lögguþöggun í Drusluviku

Á sama tíma og skipu­lagn­ing hinnar árlegu Druslu­göngu stendur sem hæst, lýsir lög­reglan í Vest­manna­eyjum því yfir að ekki verði upp­lýst um mögu­leg kyn­ferð­is­brot sem kærð verða á Þjóð­há­tíð fyrr en lög­regla telji það tíma­bært. Nítján nauðg­anir hafa verið til­kynntar á Þjóð­há­tíð frá árinu 2004. 

Páley Borg­þórs­dóttir, lög­reglu­stjóri í Vest­manna­eyjum, hefur verið harð­lega gagn­rýnd fyrir ummæli sín í Frétta­blað­inu og Stöð 2 um nauðg­anir á Þjóð­há­tíð. Páley sagði svo við Frétta­stofu RÚV síð­degis í dag að hún hafni því alfarið að um þöggun sé að ræða.

„Við höfum upp­lifað sjálf, á eigin skinni, að það hefur sett mál í upp­nám hjá okkur þegar fjöl­miðla­um­ræða hefur farið af stað of snemma,“ sagði Páley. Þá und­ir­strikar hún að fjöl­miðlar eigi að fá upp­lýs­ingar um kyn­ferð­is­brot, bara ekki jafn óðum. Það fari eftir eðli mála og rann­sókn­ar­hags­munum hvenær það verði.

Mikilvægi fyrirbyggjandi aðgerða

Druslu­gangan verður gengin í sjötta sinn á laug­ar­dag­inn næst­kom­andi, 23. júlí, klukkan 14 frá Hall­gríms­kirkju. Sérstök áhersla er lögð á mik­il­vægi fyr­ir­byggj­andi aðgerða, for­varna og fræðslu. Yfirlýst mark­mið göng­unnar er að útrýma kyn­ferð­is­of­beldi, styðja við þolendur kyn­ferð­is­of­beldis og ítreka að klæðn­aður, hegðun eða fas þolenda er aldrei afsökun fyrir slíkum glæpum. Í ár er kast­ljós­inu sér­stak­lega beint að mik­il­vægi fyr­ir­byggj­andi aðgerða, for­vörnum og fræðslu.

Ein­kenn­is­orð göng­unar í ár eru „Ég er ekki ofbeldið sem ég varð fyrir” og „Þú ert sama mann­eskjan fyrir mér”. Með þessu er tekið á algengri til­finn­ingu þolenda um breytta sýn þeirra og ann­arra á sjálf sig eftir að hafa orðið fyrir ofbeldi og ítrekað að skömmin er ekki þolenda að bera.

„Við erum ekki að sjá þessi brot, sem betur fer“

Páley sagði að flestar nauðg­anir ger­ist á milli fólks sem þekk­ist og fari ekki fram í almanna­rými. Því stafi ekki almannaógn af þeim sem fremji brotin.

„Flest þess­ara brota eiga sér stað á milli tveggja ein­stak­linga í lok­uðum rýmum þangað sem fólk fer yfir­leitt sjálf­vilj­ugt. Það er bara stað­reyndin. Við erum ekki að sjá þessi brot, sem betur fer og von­andi munum við ekki sjá það og reynum að fyr­ir­byggja með öfl­ugri gæslu og svona, þessi almanna­fær­is­brot. Og það er nátt­úr­lega það sem sífellt er verk­efni lög­reglu. Að reyna að tryggja lög­gæslu á almanna­færi og alls staðar svo fólk sé óhult þar sem það er á gangi á ýmsum vett­vangi. En það er erf­ið­ara við að eiga, og þess vegna eru þetta svona við­kvæm brot, þau ger­ast mjög oft á milli tengdra og nátengdra aðila inni í lok­uðu rými.“

Þá sagði Páley einnig að þar sem Ísland sé svo lítið land að „um leið og það er búið að til­kynna að það hafi orðið brot þá fer fólk að leggja saman tvo og tvo.“

Páley sagði við RÚV síð­degis í dag að ummælin hefðu verið tekin úr sam­hengi.

Ummælin harðlega gagnrýnd

Páley var gagn­rýnd harð­lega á sam­fé­lags­miðlum í gær og dag. Formaður lands­sam­bands lög­reglu­stjóra neit­aði að tjá sig um málið við RÚV í hádeg­inu, en Frétta­blaðið birti í morgun frétt þar sem fram kom að sjö af níu umdæmum lög­reglu ætli að upp­lýsa um fjölda mögu­legra kyn­ferð­is­brota eftir versl­un­ar­manna­helg­ina.

Vefsíðan Knúz.is og Aðgerð­ar­hóp­ur­inn Aktí­vismi gegn nauðg­un­ar­menn­ingu sendu frá sér mót­mæla­bréf þar sem fram kom að þolendur hafi lengi, og alveg sér­stak­lega und­an­farnar vikur og mán­uði, „gert hverjum þeim sem kýs að hlusta á raddir þeirra ræki­lega ljóst, að þögnin hefur aldrei verið þeim í hag, að þögnin er í raun enn frekara ofbeldi gegn þeim. Tilmæli um að upp­lýsa ekki um kyn­ferð­is­brot, jafn­vel þótt eftir verði spurt, virð­ast í raun til­raun til að breiða yfir þá stað­reynd að á Þjóð­há­tíð er kyn­ferð­is­of­beldi við­var­andi vanda­mál og að hátíð­ar­stjórn­endur hafa aldrei gert nóg, né virst hafa áhuga á að gera nóg, til að vernda gesti sína gegn ofbeld­is­mönnum.“

Í þessu sam­hengi má vitna í skipu­leggj­endur Druslu­göng­unnar:

„Það er það ein­læg trú okkar sem skipu­leggjum göng­una að með þess­ari bar­áttu getum við ekki ein­ungis hjálpað þeim sem orðið hafa fyrir ofbeldi heldur einnig komið í veg fyrir það. Á síð­ustu árum hefur orðið gríð­ar­leg vakn­ing í sam­fé­lag­inu um kyn­ferð­is­of­beldi og afleið­ingar þess. Þögnin hefur verið rofin af þús­undum ein­stak­linga sem hafa varpað ljósi á hversu gríð­ar­lega stórt sam­fé­lags­vanda­mál kyn­ferð­is­of­beldi er,“ segir í til­kynn­ingu frá skipu­leggj­endum Druslu­göng­unnar.

Þrjár nauðganalausar Þjóðhátíðir frá 2004

Það er svo sem gömul saga og ný að und­ar­leg umræða komi upp í kring um nauðg­anir á Þjóð­há­tíð. Páll Scheving, þáver­andi for­maður Þjóð­há­tíð­ar­nefndar, sagði árið 2011 að starfs­fólk Stíga­móta ættu ekki að vera sýni­leg á Þjóð­há­tíð þar sem hann teldi að það „magn­aði upp þann vanda sem nauðg­anir eru á úti­há­tíð­inni.“ „Það er eins og sam­tökin nær­ist á því að vanda­málið sé til staðar og það reyni frekar að ýta undir það heldur en hitt. Vanda­málin eru alltaf miklu fleiri og stærri þegar Stígamót eru á staðnum," sagði Páll. Aldrei hafa fleiri nauðg­anir verið til­kynntar og þetta sama ár, en þær voru fimm. Frá árinu 2004 hafa 19 nauðg­anir verið til­kynntar til lög­reglu. Þrjár Þjóð­há­tíðir hafa verið haldnar á tíma­bil­inu án þess að nauðgun sé til­kynnt.

„Minnum fólk á að nauðga bara heima hjá sér“

Töluverð umræða skap­að­ist á net- og sam­fé­lags­miðlum í morgun þegar Margrét Erla Maack, einn þátta­stjórn­andi Morg­un­út­varps Rásar 2, sagði í loka­orðum sínum í þætt­inum í morgun: „Minnum fólk á að nauðga bara heima hjá sér í Vest­manna­eyjum,“ þegar þátta­stjórn­endur kynntu inn Þjóð­há­tíð­ar­lagið 2016.

Margrét baðst síðar afsök­unar á ummælum sínum og sagði þau hafa verið óvið­eig­andi í beinni útsend­ingu í Rík­is­út­varp­inu. Frank Hall, dag­skrár­stjóri Rásar 2, sagði í kjöl­farið að mál­inu væri lokið. Í sam­tali við Mbl.is sagði Margrét Erla að um hafi verið að ræða kald­hæðn­is­lega athuga­semd um ljótan veru­leika og að henni sé nóg boðið hvað varðar hvernig tekið er á kyn­ferðis­brot­um í Vest­manna­eyj­um. Hún við­ur­kenndi að kald­hæðni skili sér þó illa í útvarpi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

drusluganga

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár