Eiríkur og Jón fá bætur vegna skipunar dómsmálaráðherra í Landsrétt

Tveir umsækj­endur um stöðu dóm­ara í Lands­rétti, Eiríkur Jónsson og Jón Hösk­ulds­son, sem voru metnir á meðal þeirra hæf­ustu en Sigríður Á. Andersen ákvað að skipa ekki, unnu mál sitt gegn íslenska rík­inu vegna skip­un­ar­innar í dag.

Eiríkur Jónsson er annar þeirra sem stefndi ríkinu vegna ólögmætra athafna Sigríðar Á. Andersen.
Eiríkur Jónsson er annar þeirra sem stefndi rík­inu vegna ólög­mætra athafna Sigríðar Á. Andersen. Mynd: Samsett

Íslenska ríkið þarf að greiða Jóni Hösk­ulds­syni og Eiríki Jónssyni bætur vegna ólög­­­mætra athafna Sig­ríðar Á. And­er­sen dóms­­­mála­ráð­herra þegar hún skip­aði dóm­­­ara í Lands­rétt. Jón og Eiríkur voru á meðal þeirra fjög­­­urra umsækj­enda sem dóm­­­nefnd hafði talið á meðal 15 hæf­­­ustu til að starfa í rétt­inum en Sig­ríður vék til hlið­­­ar. Hér­aðs­dómur Reykja­víkur dæmdi Jóni fjórar millj­ónir króna í skaða­bætur, 1,1 milljón króna í miska­bætur auk þess sem ríkið greiðir 1,2 milljón króna máls­kostnað hans.

Dómurinn féllst á bóta­skyldu rík­is­ins gagn­vart Eiríki en hann mun þurfa að höfða skaða­bóta­mál til að inn­heimta þá bóta­skyldu. Ríkið greiðir 1,2 milljón króna máls­kostnað hans.

Aðal­með­ferð mál­anna tveggja fór fram í sept­em­ber. Vitna­leiðslur í þeim fóru fram sam­hliða í ljósi þessi að sömu vitni voru kölluð fyrir.

Á meðal þeirra sem báru vitni í mál­inu voru. núver­andi og fyrr­ver­andi þing­menn Við­reisn­ar, sem sat á þessum tíma í rík­is­stjórn. Mál­flutn­ingur í máli Eiríks, sem er laga­pró­fessor við Háskóla Íslands og deild­ar­for­seti laga­deild­ar, fór síðan fram í gær, sam­kvæmt upp­lýs­ingum frá dóms­mála­ráðu­neyt­inu.

Braut gegn ákvæðum stjórn­sýslu­laga

Sig­ríður Á. And­er­sen dóms­­mála­ráð­herra ákvað að víkja frá hæfn­is­mati dóm­­­­nefndar um skipun 15 dóm­­­­ara í Lands­rétt í lok maí 2017. Hún ákvað að til­­­nefna fjóra ein­stak­l­inga dóm­­ara sem nefndin hafði ekki metið á meðal 15 hæf­­ustu og þar af leið­andi að skipa ekki fjóra aðra sem nefndin hafði talið á meðal þeirra hæf­­ustu. Alþingi sam­­þykkti þetta í byrjun júní 2017.

Ást­ráður Har­alds­­­son og Jóhannes Rúnar Jóhanns­­­son, sem urðu báðir af dóm­­­ara­­­sæti í Lands­rétti vegna ákvörð­unar Sig­ríð­­­ar, stefndu rík­­­inu vegna ákvörð­unar Sig­ríð­­ar. Hæst­i­­réttur komst að þeirri nið­­ur­­stöðu í des­em­ber að Sig­ríður hafi brotið gegn stjórn­sýslu­lögum þegar hún ákvað að fara gegn áliti dóm­­nefnd­­ar­inn­­ar.

Þeir eru báðir starf­andi lög­­­­­menn og lögðu ekki fram nein gögn sem gátu sýnt fram á fjár­­­hagstjón vegna ákvörð­unar ráð­herra. Skorað var á þá fyrir dómi að leggja fram skatt­fram­­­töl og þar með upp­­­lýs­ingar um tekjur sínar þannig að unnt væri að taka afstöðu til þess hvort þeir hefðu beðið „fjár­­­tjón vegna þeirra ákvarð­ana dóms­­­mála­ráð­herra sem um ræðir í mál­in­u“. Hvor­ugur þeirra gerði slíkt og þess vegna var íslenska ríkið sýknað af við­­­ur­­­kenn­ing­­­ar­­­kröfu um fjár­­­tjón. Íslenska rík­­inu var hins vegar gert að greiða þeim miska­bæt­­ur.

Tveir aðrir stefndu

Tveir aðrir menn sem voru á lista dóm­­­nefndar yfir þá sem átti að skipa dóm­­­ara höfð­uðu ekki slík mál. Annar þeirra, Jón Hösk­­­ulds­­­son hér­­­aðs­­­dóm­­­ari, sendi hins vegar kröfu á íslenska ríkið eftir að dómur Hæsta­réttar lá fyrir þar sem hann krafði það um skaða- og miska­bætur vegna skip­unar í Lands­rétt. Þeirri kröfu var ekki svarað og í kjöl­farið höfð­aði Jón það mál sem dæmt var í í dag.

Jón krafð­ist þess að fá bætt mis­­­mun launa, líf­eyr­is­rétt­inda og ann­­­arra launa­tengdra rétt­inda dóm­­­ara við Lands­rétt ann­­­ars vegar og hér­­­aðs­­­dóm­­­ara hins veg­­­ar. Jón krafð­ist þess að fá þennan mun greiddan út starfsævi sína, eða í níu ár. Lands­rétt­­­ar­­­dóm­­­arar fá 1,7 millj­­­ónir króna í laun á mán­uði en hér­­­aðs­­­dóm­­­arar 1,3 millj­­­ónir króna.

Eiríkur ákvað að fylgja í fót­spor Jóns snemma á þessu ári og stefndi rík­inu. Hann er fæddur árið 1977 og er því rúm­lega fer­tugur að aldri. Eiríkur átti því um 27 ár eftir á vinn­u­­­­mark­aði þegar skipað var í Lands­rétt miðað við hefð­bund­inn eft­ir­­­­launa­ald­­­­ur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

4
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár