Yfirgáfu heimili sín í þriðja skipti á innan við mánuði

Hundruð íbúa í Sydney yfirgáfu heimili sín í dag og margir í þriðja skiptið á einum mánuði. Nú bíða þeir milli vonar og ótta um hvort árnar Hawkesbury og Nepean flæði aftur yfir bakka sína líkt og þær gerðu í mars og þar áður árið 1988.

Síðustu vikur hafa einkennst af gríðarlegum rigningarveðrum í Sydney.
Síðustu vikur hafa ein­kennst af gríð­ar­legum rign­ing­ar­veðrum í Sydney. Mynd: EPA

Það rignir og það rignir. Og rignir svolítið meira. Stundum heilmikið meira. Jarð­vegurinn er löngu orðinn mettaður af vatni og ef úrkoman heldur áfram að aukast, eins og spáð hefur verið, gætu orðið svokölluð skyndi­flóð.

Þannig var ástandið í Sydney í Ástralíu í dag. Veður­stofan óttast að flóðin ánum Hawkesbury og Nepean verði meiri en þekkst hafa hingað til. Úrkoman í Sydneyhefur þegar náð ársmeðaltali – og apríl er rétt að byrja.

Rigningunum miklu á samkvæmt spám að slota á morgun, föstudag, og á sunnudag er von á sólskini. En þangað til eru nokkrar klukku­stundir sem gætu skipt sköpum fyrir marga. Og í næstu viku er aftur spáð mikilli úrkomu.

Simone Baluch var meðal þeirra sem þurftu að yfirgefa heimili sitt í dag. Hún býr í hverfi sem kallast Chipping Norton – í húsi sem afi hennar og amma keyptu á áttunda áratug síðustu aldar. Á öllum þeim tíma sem fjöl­skyldan hefur búið þar hefur aðeins þurft að rýma það tvisvar áður. En á síðustu vikum hefur Baluch þurft að flýja undan vatninu í þrígang. Hún lýstir því í samtali við dagblaðið The Sydney Morning Herald hvernig hún hafi verið að færa hluti milli hæða, til að forða þeim frá skemmdum, er vatnið hóf að flæða inn og það mun hraðar en hún átti von á. George-áin er skammt frá heimili hennar og hún flæddi yfir bakka sína í dag. Og veður­stofan óttast að hún eigi eftir að verða enn vatns­meiri í kjölfar þrumu­veðurs sem væntanlegt er í nótt.

Veðrið í og við Sydney í Nýja Suður-Wales á austur­strönd Ástralíu, hefur einkennst af miklum öfgum í úrkomu síðustu vikurnar. Sem dæmi þá hafði vatnsborð Nepean-árinnar við Menangle-brúna náð 16,75 metrum í morgun sem er sambærileg hæð og áin náði í hamfara­veðri árin 1988. Og enn vex vatnið.

Íbúar hafa verið beðnir að vera sérstak­lega á varðbergi, vera ekki á ferð um vegi og brýr og tilbúnir að yfirgefa heimili sín ef ástandið heldur áfram að versna. Jarð­vegurinn er þegar orðinn full­mettaður af vatni og síðdegis í dag átti enn eftir að bæta í sem gæti þýtt hættuleg skyndi­flóð. Slík flóð hafa þegar orðið og þar sem vatnið á enga leið niður í jörðina þá flæðir það inn á milli húsa og fram af klettum í hverfunum við sjávar­síðuna.

Árlega falla að meðaltali rúmlega 1.213 mm af úrkomu í Sydney. En á fyrstu þremur mánuðum ársins hefur úrkoman þegar mælst 1.226 mm.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár