Trump segist ekki líða tilraunir til að hægja á vexti gervigreindar

Donald Trump Bandaríkja­forseti segir ekkert mega standa í vegi fyrir vexti gervi­greindar­iðnaðarins. Hann ætlar að stofna sérstaka „gervi­greindar­sérsveit“ stjórn­valda og ætlar að skipa sérstakan samræmingar­aðila í mála­flokknum.

Donald Trump Bandaríkja­forseti réðst á laugardag harkalega gegn gagn­rýnendum gervi­greindar og gagnavera og sagðist ekki ætla að leyfa „eyði­leggingu“ greinarinnar. Jafnframt tilkynnti hann um stofnun nýrrar „gervi­greindar­sérsveitar“ á vegum stjórn­valda.

Trump er á öndverðum meiði við vaxandi efasemdir almennings um gervi­greind og alvarlegar öryggis­viðvaranir leiðtoga í gervi­greindar­iðnaðinum. Hann sagði frjáls­lynda vilja „rústa eða eyði­leggja gervi­greind“.

„Ég, sem forseti Banda­ríkjanna, mun ekki sitja hjá og láta þetta gerast,“ skrifaði hann á samfélags­miðil sinn Truth Social.

„Við munum á engan hátt hindra eða kæfa vöxt þessarar ótrúlegu atvinnu­greinar. Þvert á móti munum við hlúa að henni, hjálpa henni og vaka yfir henni á meðan hún vex!“

Trump bætti við, án þess að útskýra nánar, að hann hygðist stofna „gervi­greindar­sérsveit“ sem fengi það verkefni að „leita að SLÆMUM“ aðilum. Þá sagðist hann brátt ætla að tilkynna um sérstakan samræmingar­aðila, eða „keisara“, í málefnum gervi­greindar.

Þessi afdráttar­lausa stuðnings­yfirlýsing …

Kjósa
6
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár