Erfðamengi mannsins rýrnar um tæp 20 prósent

Í ljós hefur komið að raun­verulegur fjöldi gena í erfða­mengi mannsins er mun minni en hugmyndir vísinda­manna gerðu ráð fyrir.

DNA-mengi
DNA-mengi Erf­aða­mengi manns­ins var fyrst rað­greint upp úr síð­ustu alda­mótum. Mynd: Shutterstock

Erfða­mengi mannsins var fyrst raðgreint rétt upp úr síðustu aldamótum. Tilkynningin barst eftir mikið kapphlaup milli bandarískra rannsóknar­hópa sem annars vegar voru styrktir af National Institutes of Health í Banda­ríkjunum og hins vegar einka­fyrirtækinu Celera Genomics.

Áður en raðgreining hófst höfðu margir reynt að giska á hversu mörg gen erfða­mengi mannsins teldi. Til að útskýra þá gríðar­legu yfirburði sem maðurinn hafði yfir aðrar dýra­tegundir þótti augljóst að gena­fjöldi hlyti að vera margfalt meiri. Eftir fjölda ágiskana, sem yfirleitt voru byggðar á einhvers konar rannsóknar­vinnu, komust hóparnir að þeirri niður­stöðu að líklegur fjöldi væri milli 25.000 og 50.000 gen. Einhverjir vildu þó halda því fram að þau væru nær 100.000. Það voru því talsverð vonbrigði fyrir marga þegar raðgreiningu lauk og í ljós kom að fjöldinn var sennilega rétt um 25.000 gen.  

Tilkoma raðgreininganna

Raðgreining á erfðaefni er að mestu leyti samvinna tveggja mikil­vægra þátta: nákvæmra efna­hvarfa og …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Þekking

Þekking

Alheimurinn í nýju og skarpara ljósi

Nýjasta stórvirki mann­kynsins, James Webb geim­sjónaukinn, er ætlað að skoða myndun fyrstu stjarna og vetrar­brauta alheimsins. Hvar og hvenær kviknaði fyrsta ljósið í alheiminum? Hvernig verða stjörnur og sólkerfi til? Hvernig mynduðust vetrar­brautirnar? Hvaða eðlis- og efna­fræðilega eigin­leika þurfa plánetur og sólkerfi að hafa til að geyma líf? Fyrstu myndir sjón­aukans eru komnar. „Þær voru enn skýrari, skarpari og glæsilegri en ég átti von á,“ segir Sævar Helgi Bragason.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

4
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár