Spánverjar hafa kolrangar hugmyndir um Ísland

Katalónski blaða­maðurinn Èric Lluent stefnir að því að verða leiðandi í umfjöllun um Ísland í hinum spænsku­mælandi heimi. Næg séu tækifærin, þar sem umfjöllun um Ísland í erlendum miðlum sé almennt skökk og einhliða. Á fyrsta mánuði frétta­miðilsins El Faro de Reykjavík litu 13 þúsund manns inn og lásu fréttir af pólitík, efnahags- og menningar­málum á Íslandi.

Íslenskur fréttamiðill á spænsku
Íslenskur frétta­mið­ill á spænsku El Faro de Reykja­vík er nýr frétta­mið­ill, þar sem fluttar eru fréttir af Íslandi á spænsku. Á fyrsta mán­uði hans heim­sóttu 13 þús­und manns frétta­vef­inn. Mynd: Úr einkasafni

„Ég valdi reyndar ekki Ísland,“ svarar Èric þegar hann fær þessa klassísku spurningu, hvernig það kom til að hann fór frá hinni lifandi og vinsælu borg, Barcelona, til að búa hér uppi á Íslandi. „Það hefði getað verið hvaða staður sem er. Ég var að vinna á dagblaði í Barcelona og í þeirri vinnu hitti ég fólk frá öllum heims­hornum. Þar á meðal voru blaðamenn og spænsku­kennarar frá Íslandi. Þeir buðu mér í heimsókn til Íslands á gamlárs­kvöld og þannig æxlaðist það að Ísland varð hluti af lífi mínu. Ég verð að viðurkenna að áður vissi ég ekkert um Ísland. Ég vissi af tilvist þess, þarna lengst í norðri, en það er allt og sumt.“

Erlendir miðlar mistúlka Ísland

Það, að Spán­verjar viti almennt lítið sem ekkert um Ísland, er einmitt ástæðan fyrir því að átta árum eftir að hann heimsótti Ísland í fyrsta sinn ákvað Èric að búa til nýjan fjölmiðil. Með því vildi hann freista þess að breyta því hversu einhliða umfjöllunin um Ísland er á Spáni og annars staðar í hinum spænsku­mælandi heimi. 

Eftir áramóta­heimsóknina kom hann aftur að sumri og eftir það varð ekki aftur snúið, hann kom aftur og aftur, hvenær sem hann hafði fé eða tíma til, þangað til að hann fluttist hingað alfarið með kærustunni fyrir nokkru. „Hér líður mér í fyrsta sinn eins og ég sé raun­verulega heima. Ég get ekki útskýrt hvers vegna en ég trúi því að rætur mínar liggi hér, þó ég hafi enga sönnun fyrir því, aðra en þá að ég lít ekki út eins og hinn hefð­bundni Spánverji.“

Það var líka hér á landi sem blaða­maðurinn innra með honum tók að vaxa og heimta sitt pláss. Og það var einmitt vegna þess að hann upplifði sterkt hversu skakkt bæði spænskir miðlar og grasrótar­hreyfingar þar túlkuðu eftirmál hrunsins á Íslandi. Í djúpri niður­sveiflu á Spáni litu margir til Íslands sem fyrir­myndar, héldu að á Íslandi væri fullkomið dæmi um hvernig bregðast ætti við spillingu. „Ég fór að gera mér grein fyrir því að margt af því sem sagt var um Ísland á Spáni var alls ekki satt. Þarna sá ég svart á hvítu hvernig fjöl­miðlar geta skekkt heimsmynd okkar. Ég fylgdist með þessum öflugu félags­legu hreyfingum á Spáni líta til Íslands sem full­kominnar fyrir­myndar, meðan ég vissi að fyrir­myndin var í raun og veru aldrei til.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár