Það kostar hálfan milljarð að auka viðbúnað lögreglu vegna leiðtogafundar Evrópuráðsins

Ísland tók við formennsku í Evrópu­ráðinu í nóvember. Í maí á næsta ári verður haldinn fjórði leiðtoga­fundur þess í tæplega 74 ára sögu þess haldinn á Íslandi. Búist er við tugum þjóðar­leiðtoga til landsins.

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra á vettvangi Evrópuráðsins fyrr á þessu ári. Ísland tók við formennsku í ráðinu í nóvember af Írum.
Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra á vett­vangi Evr­ópu­ráðs­ins fyrr á þessu ári. Ísland tók við for­mennsku í ráð­inu í nóv­em­ber af Írum. Mynd: Stjórnarráðið

Alls 500 milljónum króna verður veitt úr ríkis­sjóði til að auka viðbúnað lögreglu í tengslum við leiðtoga­fund Evrópu­ráðsins sem haldinn verður í Reykjavík 16.-17 maí árið 2023. Þetta kemur fram í nýju meirihluta­áliti fjár­laganefndar, sem stjórnar­þingmenn skrifa undir, og birt var í gærkvöldi.

Gert er ráð fyrir því að tugir þjóðar­leiðtoga, ráðherra og embættis­manna frá flestum ríkjum Evrópu muni sækja fundinn sem verður fjórði leiðtoga­fundur í sögu Evrópu­ráðsins. Hann verður auk þess sá umfangs­mesti sem nokkru sinni hefur verið haldinn.

Aðeins þrír leiðtoga­fundir Evrópu­ráðsins hafa verið haldnir í tæplega 74 ára sögu ráðsins. Fundurinn verður sá umfangs­mesti sinnar tegundar sem Ísland hefur nokkurn tímann haldið.

Evrópu­ráðið var stofnað 5. maí 1949. Samkvæmt stofnskrá þess er því ætlað að efla samvinnu aðildar­ríkjanna með það að markmiði að standa vörð um mann­réttindi, styrkja lýðræðis­lega stjórnar­hætti, efla mannleg gildi og almenn lífsgæði Evrópubúa. Rík áhersla hefur verið lögð á að auka skilning og samkennd meðal íbúa álfunnar á grund­velli sameiginlegrar arfleifðar.

Evrópu­ráðið hefur höfuð­stöðvar í Strassborg og tengist ekki Evrópu­sambandinu, þótt öll aðildar­ríki þess séu einnig í ráðinu. Alls eru aðildar­ríkin 46 talsins og helstu stofnanir þess eru þing og ráðherra­nefnd Evrópu­ráðsins.

Ísland opnaði nýja fasta­nefnd í Evrópu­ráðinu þann 1. september 2020 eftir að engin slík hafði verið til staðar frá árinu 2009. Ísland tók svo við formennsku í Evrópu­ráðinu í nóvember 2022 og í aðdrag­anda þess tók fasta­fulltrúi Íslands sæti í yfir­stjórn Evrópu­ráðsins þegar á árinu 2021 og gegndi formennsku á mann­réttinda­fundum ráðherra­nefndar Evrópu­ráðsins hálfu ári áður en Ísland tók við formennskunni.

Ísland hefur tvisvar áður gegnt formennsku í Evrópu­ráðinu, árin 1955 og 1999.

Sjálfsagt að svara kalli um að leiðtogar komi saman

Katrín Jakobs­dóttir forsætis­ráðherra og Þórdís Kolbrún R. Gylfa­dóttir utan­ríkis­ráðherra tilkynntu um það 7. nóvember síðastliðinn að Evrópu­ráðið hefði tekið ákvörðun um að efna til leiðtoga­fundar undir formennsku Íslands í ráðinu. Þær tvær verða gest­gjafar fundarins.

Í tilkynningu á vef stjórnar­ráðsins vegna þessa sagði að aðildar­ríki Evrópu­ráðsins hefðu sammælst um að ríkt tilefni væri til að leiðtogar ríkjanna 46 kæmu saman á þeim viðsjár­verðu tímum sem nú væru uppi.

Þar var haft eftir Katrínu að Evrópu­ráðið snerist um grunn­gildi samfélaga okkar; lýðræði, mann­réttindi og réttar­ríkið. „Innrásin í Úkraínu, heims­faraldur og efnahags­þrengingar skapa áskoranir fyrir þessi grunn­gildi og því hefur aldrei verið mikil­vægara að leiðtogar Evrópu­þjóða endurnýi heitin og séu samtaka um að standa vörð um þessi gildi. Ísland mun taka formennsku­hlutverk sitt alvarlega enda tökumst við á við þetta verkefni á krefjandi tímum.“

Þórdís Kolbrún sagði á sama stað að Ísland myndi að sjálfsögðu svara því kalli Evrópu­ríkja um að leið­togarnir komi saman. „Ljóst er að sú staða sem upp er komin í álfunni í kjölfar innrásar Rússlands í Úkraínu verður í brennidepli á leiðtoga­fundinum. Aðstæður til að halda slíkan fund gætu því varla verið meira knýjandi og augu umheimsins munu án efa beinast að Íslandi þessa daga á vori komanda."

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár