Hlýjasta sumar í Bretlandi frá upphafi mælinga

Annað árið í röð mælist sumarhiti í Bretlandi hærri en nokkru sinni fyrr.

Heitasta sumar frá upphafi mælinga var í Bretlandi, annað árið í röð. Frá því greinir breska veður­stofan í dag, eftir að hverja hita­bylgjuna á fætur síðustu vikur og víðtæka þurrka.

„Sumarið 2026 er, samkvæmt bráðabirgða­niðurstöðum, það hlýjasta sem mælst hefur í Bretlandi. Loftslags­breytingar af manna­völdum gerðu það um 130 sinnum líklegra að meðalhiti sumarsins yrði svo hár,“ sagði breska veður­stofan, Met Office.

Frá júní og til ágúst mældist meðalhiti í Bretlandi 16,5°C og sló fyrra met, sem sett var í fyrra, 16,1°C. Nærri þrír fjórðu hlutar Englands og allt Wales glímdu jafnframt við þurrka þar sem úrkoma varð afar lítil.

Júlí var sá næst­heitasti frá upphafi mælinga í Bretlandi og í Englandi mældist hlýjasti júní­mánuður frá upphafi fyrr í sumar. Fjöldi hitameta féll í miklum hita­bylgjum.

Vísinda­menn vara við því að loftslags­breytingar geri öfga­kennda veður­atburði ákafari og valdi því að hitamet falli sífellt oftar. 

…

Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár