ESB krefst rannsóknar á Danske Bank

Stærsti banki Danmerkur er nú í vondum málum vegna ásakana um peninga­þvætti.

Í gegnum útibú Danske Bank í Eistlandi komu fjármunir frá ýmsum huldu­félögum sem gert er ráð fyrir að hafi verið liður í umfangs­miklu peningaþvæti. Samtals var um að ræða um 30 þúsund milljarða króna, sé miðað við gengi krónu gagnvart evru nú, en starfsemi hófst fyrir alvöru 2007 og stóð fram til 2015.

Danska fjármála­eftirlitið hafi vitneskju um hluta af umfanginu en ekkert var aðhafst. Samkvæmt skýrslu sem kynnt var í vikunni má búast við að stór hluti af þessum fjármunum hafi verið ólölega til komnir, að miklu leyti frá Rússlandi.

Framkvæmda­stjórn Evrópu­sambandsins hefur kallað sérstak­lega eftir því að hið samevrópska eftirlit með banka­starfsemi rannsaki þessa starfsemi Danske Bank, að því er fram kemur í umfjöllun FT. Banka­stjóri Danske Bank, Thomas Borgen, hefur þegar sagt af sér vegna málsins, og er búist við því að miklar breytingar verði á helstu stjórnenda­hlutverkum innan bankans, í stjórn og einnig í hluthafa­hópi.

Danske Banka stóð tæpt fyrir áratug, þegar fjármála­kreppan stóð sem hæst, en danska ríkið greip til þess ráðs á haust­mánuðum 2008 að ríkis­tryggja allt danska fjármála­kerfið til tveggja ára, og sinna lausafjár­fyrir­greiðslu á þeim grund­velli.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár