Áhrifa verkfalls farið að gæta í miðborginni – Rusl flæðir úr tunnum

Verkfall Eflingar hefur ekki einungis áhrif á velferðar­þjónustu í Reykja­víkurborg heldur má sjá, eftir viku­verkfall, að sorp er farið að safnast upp á götum borgarinnar.

Eftir sex daga verkfall mátti sjá í miðbæ Reykjavíkurborgar yfirfullar ruslatunnur.
Eftir sex daga verk­fall mátti sjá í miðbæ Reykja­vík­ur­borgar yfir­fullar rusla­tunnur. Mynd: Bára Huld Beck

Ótíma­bundið verkfall starfs­manna Reykja­víkurborgar, sem eru félags­menn í Eflingu, hefur staðið yfir í viku á miðnætti. Hreinsun og sorphirða á vegum borgar­starfsmanna liggur niðri í verk­fallinu en til að byrja með hafði það mest áhrif á starfsemi leikskóla borgarinnar. Um 1.850 manns í Eflingu starfa hjá borginni á um 129 starfs­stöðvum.

Reykja­víkurborg hefur varað við langtíma­áhrifum verkfalls en Sólveig Anna Jóns­dóttir, formaður Eflingar, sagði þegar það hófst að allt útlit væri fyrir að það yrði langt.

Eftir því sem verk­fallið lengist mun það hafa aukin áhrif á sorphirðu í Reykjavík og aðra umhirðu borgar­landsins en það er þegar farið að sýna sig á götum borgarinnar.

Mikilvægt að íbúar skilji ekki eftir poka með blönduðum úrgangi við grenndarstöðvar

Engin sorphirða er jafnframt við heimili í Reykjavík vegna verk­fallsins en samkvæmt upplýsingum á vefsíðu borgarinnar er hægt að losa sig við flokkaðan úrgang á grenndar­stöðvum víðsvegar um borgina og endur­vinnslu­stöðvum Sorpu.

Þá kemur fram að hægt sé að losa sig við pappír og pappa, plast, gler, textíl og skilagjalds­umbúðir á grenndar­stöðvum eins og alltaf.

Mikilvægt sé að íbúar skilji ekki eftir poka með blönduðum úrgangi við stöðvarnar. Af því skapist óþrifnaður og hætta á að hann dreifist um nágrennið.

Á endur­vinnslu­stöðvum Sorpu megi enn fremur losa sig við allan flokkaðan úrgang og blandað heimilis­sorp „sé ófremdar­ástand að skapast í sorp­geymslum.“ Greitt sé fyrir blandað sorp umfram 2 rúmmetra á endur­vinnslu­stöðvum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár