Dagur: Mesta hækkun lægstu launa sem samið hefur verið um í kjarasamningum

Borgar­stjórinn í Reykjavík opinberaði hvað felst í tilboði borgarinnar til ófag­lærðra starfs­manna Eflingar í sjónvarps­viðtali í kvöld. Hann segir tilboðið upp á mestu hækkun lægstu launa í Íslands­sögunni.

Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, og Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri í Reykjavík.
Sólveig Anna Jóns­dóttir, for­maður Eflingar, og Dagur B. Egg­erts­son, borg­ar­stjóri í Reykja­vík. Mynd: Samsett

Dagur B. Eggertsson, borgar­stjóri í Reykjavík, segir að grunnlaun ófag­lærðra starfs­manna í leik­skólum Reykja­víkur muni hækka úr 310 þúsund krónum á mánuði í 420 þúsund krónur á líftíma þess kjara­samnings sem borgin hefur boðið. Ofan á þetta myndu bætast 40 þúsund krónur á mánuði vegna álags­greiðslna. Ófag­lærðir starfs­menn myndu því verða með 460 þúsund krónur á mánuði í laun við lok samnings­tímans.

Ófag­lærður deildar­stjóri, sem í dag er með 417 þúsund á mánuði, á að hækka í 520 þúsund krónur á mánuði. Grunndag­vinnulaun ófaglærðs deildar­stjóra á leikskóla í lok samnings­tíma, með álags­greiðslum, yrðu þá 572 þúsund krónur. Ofan á þetta myndi koma til að mynda stytting vinnu­vikunnar.

Þetta kom fram í viðtali við Dag í Kastljósi í kvöld.

Hann sagði að stundum þegar hann heyrði full­yrðingar forsvars­manna Eflingar um tilboð borgarinnar í deilunni, að hann efaðist um að tilboðið hefði verið sæmilegt kynnt. „Mér finnst ekki ganga að tala eins og þetta sé ekki neitt vegna þess að þetta er líklega mesta hækkun lægstu launa sem nokkurn tímann hefur verið samið um í kjara­samningum á Íslandi. Mest hækkun í krónutölu og ef að grunnur lífs­kjara­samninganna heldur þá er þetta langmesta kaupmáttar­hækkun sem við höfum séð.“

Samn­inga­nefnd Efl­ingar gagn­vart Reykja­vík­ur­borg birti fyrr í dag yfir­lýs­ingu þar sem hún lýsti von­brigðum með við­brögð Reykja­vík­ur­borgar við til­boði sem samn­inga­nefndin lagði fram á fundi hjá Rík­is­sátta­semj­ara í gær, þriðju­dag­inn 18. febr­ú­ar. „Reykja­vík­ur­borg hefur enn á ný slegið á sátt­ar­hönd lág­launa­fólks. Ótíma­bundið verk­fall heldur áfram,“ sagði í yfir­lýs­ing­unni.

Til­boð Efl­ingar var lagt fram í gær á fundi hjá Rík­is­sátta­semj­ara. Við­brögð borg­ar­innar komu fram í dag og voru þau nei­kvæð. Efl­ing sagði að þetta væri í þriðja sinn sem samn­inga­nefnd Efl­ingar leggur fram við­ræðu­grund­völl til lausnar á deil­unni sem borgin hafn­ar.

Í til­boð­inu hafi verið lagt til að greiða starfs­fólki sér­stakt starfs­tengt leið­rétt­ing­ar­á­lag til við­ur­kenn­ingar á fag­legri ábyrgð, álagi, starfs­tengdum kostn­aði og fleiri þáttum sem félags­menn hafa lagt áherslu á í við­ræð­un­um. „Upp­hæðir og for­sendur álags­ins yrðu ákvarð­aðar út frá ein­stökum starfs­heitum og vinnu­stöð­um. Álagið yrði sér­stök auka­greiðsla og kæmi ekki inn í grunn­laun til útreikn­ings á yfir­vinnu- og vakta­álög­um.

Einnig var gert ráð fyrir upp­bótum vegna sér­greiðslna frá fyrra samn­ings­tíma­bili sem borgin hefur kraf­ist að falli út. Lagt var til að upp­hæðir nýrra álaga og upp­bóta taki sam­bæri­legum hækk­unum og launa­taxtar á samn­ings­tím­an­um. Fall­ist var á til­lögu borg­ar­innar um breytta launa­töflu.

Samn­inga­nefnd og starfs­fólk Efl­ingar lögðu mikla vinnu í til­lög­una og var hún lögð fram að höfðu sam­ráði við trún­að­ar­menn félags­ins hjá borg­inn­i.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár