Segja borgina hafa slegið á sáttarhönd láglaunafólks – Verkfallið heldur áfram

Engin lausn er í sjón­máli í deilum Eflingar við Reykja­vík­ur­borg eftir að til­boði sem Efling lagði fram í gær til lausnar á deil­unni var ekki tekið.

Frá baráttufundi á vegum Eflingar fyrr í mánuðinum.
Frá bar­áttufundi á vegum Eflingar fyrr í mán­uð­inum. Mynd: Efling

Samn­inga­nefnd Eflingar gagn­vart Reykja­vík­ur­borg hefur birt yfir­lýs­ingu á Facebook-síðu stétt­ar­fé­lags­ins þar sem hún lýsir von­brigðum með við­brögð Reykja­vík­ur­borgar við til­boði sem samn­inga­nefndin lagði fram á fundi hjá Rík­is­sátta­semj­ara í gær, þriðju­dag­inn 18. febr­úar. „Reykja­vík­ur­borg hefur enn á ný slegið á sátt­ar­hönd lág­launa­fólks. Ótíma­bundið verk­fall heldur áfram,“ segir í yfir­lýs­ing­unni.

Tilboð Eflingar var lagt fram í gær á fundi hjá Rík­is­sátta­semj­ara. Viðbrögð borg­ar­innar komu fram í dag og voru þau nei­kvæð. Efling segir að þetta sé í þriðja sinn sem samn­inga­nefnd Eflingar leggur fram við­ræðu­grund­völl til lausnar á deil­unni sem borgin hafnar.

[adspot]Í til­boð­inu hafi verið lagt til að greiða starfs­fólki sér­stakt starfstengt leið­rétt­ing­ar­á­lag til við­ur­kenn­ingar á fag­legri ábyrgð, álagi, starfstengdum kostn­aði og fleiri þáttum sem félags­menn hafa lagt áherslu á í við­ræð­unum. „Upphæðir og for­sendur álags­ins yrðu ákvarð­aðar út frá ein­stökum starfs­heitum og vinnu­stöðum. Álagið yrði sér­stök auka­greiðsla og kæmi ekki inn í grunn­laun til útreikn­ings á yfir­vinnu- og vakta­álögum.

Einnig var gert ráð fyrir upp­bótum vegna sér­greiðslna frá fyrra samn­ings­tíma­bili sem borgin hefur kraf­ist að falli út. Lagt var til að upp­hæðir nýrra álaga og upp­bóta taki sam­bæri­legum hækk­unum og launa­taxtar á samn­ings­tím­anum. Fallist var á til­lögu borg­ar­innar um breytta launa­töflu.

Samn­inga­nefnd og starfs­fólk Eflingar lögðu mikla vinnu í til­lög­una og var hún lögð fram að höfðu sam­ráði við trún­að­ar­menn félags­ins hjá borg­inni.“

Samn­inga­nefnd Eflingar hefur sömu­leiðis sent bréf til borg­ar­stjórn­ar­meiri­hlut­ans í Reykja­vík.

Þar segir að samn­inga­nefnd Reykja­vík­ur­borgar hafi í þeirra umboði hafnað í þriðja sinn til­lögum um lausn á yfir­stand­andi kjara­deilu félags­menna Eflingar við Reykja­vík­ur­borg. Þetta hafi komið fram í dag á samn­inga­fundi með Rík­is­sátta­semj­ara. „Tilboðið sem við lögðum fram í gær er sann­gjarnt og hóf­samt. Við leggjum til að þið komið til móts við okkur með hóf­legum álags­greiðslum, skil­greindar á for­sendum þess að meta ábyrgð, aðstæður og þarfir sem snerta okkar ein­stöku störf og vinnu­staði sér­stak­lega. Við höfum því komið til móts við áhyggjur ykkar af því að kjara­bætur í almennri mynd verði of for­dæm­is­gef­andi, og höfum auk þess slegið af kröfum okkar.

Í Meiri­hluta­sátt­mála sem þið und­ir­rit­uðuð og senduð frá ykkur þann 12. júní 2018 segir: „Við ætlum að leið­rétta laun kvenna­stétta.“ Við metum það svo að bar­átta okkar síð­ast­liðnar vikur og mán­uði hafi skapað sátt í sam­fé­lag­inu um þörf­ina á því að end­ur­meta illa launuð störf hjá borg­inni sem eru að meiri­hluta kvenna­störf. Drífa Snædal, for­seti ASÍ, benti í gær­kvöldi í fréttum á að kjara­deila okkar við ykkur snýst um sögu­legt van­mat og und­ir­verð­lagn­ingu á stör­f­unum sem við vinnum. Það er stuðn­ingur í sam­fé­lag­inu við að þið efnið lof­orð ykkar í tengslum við end­ur­nýjun kjara­samn­ings.

Eina málsvörn ykkar gegn kröfum okkar hefur verið að vísa í kjara­samn­ing á almennum vinnu­mark­aði, svo­kall­aðan Lífs­kjara­samn­ing. Það er ljóst að aðilar þess samn­ings úr röðum verka­lýðs­hreyf­ing­ar­innar líta ekki svo á að hann leysi ykkur undan þeirri skyldu að semja við okkur á sjálf­stæðum for­sendum. Stjórn og for­maður VR, stærsta stétt­ar­fé­lags­ins sem und­ir­rit­aði Lífs­kjara­samn­ing­inn, hafa opin­ber­lega lýst yfir óyggj­andi stuðn­ingi við rétt okkar til sjálf­stæðrar kjara­samn­ings­gerðar. Sama hefur fjöldi ann­arra stétt­ar­fé­laga gert.

Í okkar hópi eru þeir sem fá lægstu útborg­uðu laun allra á íslenskum vinnu­mark­aði sökum þess að lágir taxtar eru þakið í launa­setn­ingu okkar og vegna þess að mörg okkar hafa ekki aðgang að yfir­vinnu eða vakta­vinnu. Meiri­hluti okkar eru konur sem eru dæmdar til að lifa á barmi fátæktar, þrátt fyrir að vera í fullri vinnu og halda úti grunn­þjón­ustu sem er svo mik­il­væg að jafn­vel örfárra daga verk­fall setur allt úr skorðum.

Á leik­skól­unum einum sparið þið 1000 millj­ónir á ári með því að láta okkur ganga í störf fag­lærðra sem hafa flúið vinnu­staði borg­ar­innar. Þá er ótalið það sem þið sparið á sama hátt á öðrum sviðum borg­ar­innar. Við öxlum við­bót­ar­á­lagið og ábyrgð­ina launa­laust, en þið notið pen­ing­ana sem spar­ast til fram­úr­keyrslu og eft­ir­lits­lauss fjár­aust­urs í gælu­verk­efni.

Þið hafið látið þá skömm við­gang­ast að full­trúar Samtaka atvinnu­lífs­ins mæti í við­töl í fjöl­miðlum í ykkar stað, jafn­vel til að mæta for­manni félags­ins okkar. Þið látið ekki ná í ykkur á sama tíma og Samtök atvinnu­lífs­ins verja millj­ónum í að brjóta bar­áttu okkar á bak aftur með áróð­urs­her­ferð. Sum ykkar segj­ast aðhyll­ast jafn­að­ar­mennsku og félags­hyggju, en stað­reyndin er að þið hafið gefið auð­stétt­inni umboð til að heyja stríð fyrir ykkar hönd gegn okkur, lág­launa­fólki og kvenna­stéttum.

Við for­dæmum hræsni ykkar, þögn og ábyrgð­ar­leysi.

Kröfur okkar eru rétt­látar. Bar­áttu­vilji okkar er mik­ill. Verkfall er okkar réttur.

Tækifæri ykkar til að kom­ast frá þess­ari kjara­deilu án frek­ari van­sæmdar eru að renna út.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár