Fréttablaðið hefur misst tvo af hverjum þremur lesendum undir fimmtugu á tólf árum

Lestur Frétta­blaðsins hefur rúmlega helmingast á einum áratug. Mestur er samdrátt­urinn hjá yngri lesendum en lesturinn fór undir 20 prósent hjá þeim í fyrsta sinn í vor. Morgun­blaðið er nú lesið af 8,4 prósent lands­manna undir fimmtugu.

Helgi Magnússon er aðaleigandi og stjórnarformaður Torgs, útgáfufélags Fréttablaðsins.
Helgi Magn­ús­son er aðal­eig­andi og stjórn­ar­for­maður Torgs, útgáfu­fé­lags Frétta­blaðs­ins. Mynd: Samsett

Lestur Frétta­blaðsins mælist nú 28,4 prósent í heild. Hann fór í fyrsta sinn undir 30 prósent í janúar á þessu ári og hefur haldið áfram að dala í hverjum mánuði síðan þá. Alls hefur lesturinn helmingast á einum áratug.

Blaðið var fyrst gefið út árið 2001 og náði fljótt mik­illi fót­­festu á dag­­blaða­­mark­aði með til­­heyr­andi sneið af aug­lýs­inga­­tekjukök­unni. Vorið 2007 sögð­ust til að mynda 65,2 pró­­sent lands­­manna lesa Frétta­­blað­ið.

Undir lok árs 2015 fór lestur blaðs­ins í fyrsta sinn undir 50 pró­­sent og tæpum þremur árum siðar fór hann undir 40 pró­­sent.

Mestur er samdrátturinn hjá yngri lesendum. Hjá aldurs­hópnum 18 til 49 ára mælist hann nú 18,5 prósent eftir að hafa farið undir 20 prósent í fyrsta sinn í apríl síðastliðnum. Fyrir tólf árum lásu 64 prósent lands­manna í þessum aldurs­hópi Frétta­blaðið. Lesturinn í dag er einungis 29 prósent af því sem hann var hjá full­orðnum undir fimmtugu vorið 2010.

Þetta mál lesa út úr nýjum tölum Gallup um lestur prent­miðla sem voru birtar í liðinni viku.

Frétta­blaðið er í eigu útgáfu­fé­lags­ins Torgs og er flagg­skip þess félags. Félagið rekur einnig vefmiðlana dv.is, eyjan.is, pressan.is, 433.is, hringbraut.is, frettabladid.is og sjón­­varps­­stöð­ina Hring­braut.

Útgáfu­­­dögum Frétta­blaðsins var fækkað úr sex í fimm á viku á árinu 2020 þegar hætt var með mán­u­­­dags­út­­­­­gáfu blaðs­ins. Auk þess hefur dreif­ing frí­­blaðs­ins dreg­ist saman úr 80 í 75 þús­und ein­tök á dag.

Torg er í eigu tveggja félaga, Hof­­­garða ehf. og HFB-77 ehf. Eig­andi fyrr­­­nefnda félags­­­ins er fjár­­­­­fest­ir­inn Helgi Magn­ús­­­son og hann á 82 pró­­­sent í því síð­­­­­ar­­­nefnda. Helgi er auk þess stjórn­­­­­ar­­­for­­­maður Torgs. Aðrir eig­endur þess eru Sig­­­urður Arn­gríms­­­son, fyrr­ver­andi aðal­­­eig­andi Hring­brautar og við­­­skipta­­­fé­lagi Helga til margra ára, Jón G. Þór­is­­­son, fyrr­ver­andi rit­­­stjóri Frétta­­­blaðs­ins, og Guð­­­­­­­mundur Örn Jóhanns­­­­­­­son, fyrr­ver­andi sjón­­­­­­­varps­­­­­­­stjóri Hring­brautar og nú fram­­­­­­­kvæmda­­­­­­­stjóri sölu, mark­aðs­­­­­­­­mála og dag­­­­­­­­skrár­­­­­­­­gerðar hjá Torg­i. Hlutur ann­­arra en Helga er hverf­andi.

Hóp­­ur­inn keypti Torg í tveimur skrefum á árinu 2019. Kaup­verðið var trún­­­að­­­ar­­­mál en í árs­­­reikn­ingi HFB-77 ehf. fyrir árið 2019 má sjá að það félag keypti hluta­bréf fyrir 592,5 millj­­­­­ónir króna á því ári. Torg var og er eina þekkta eign félags­­­ins.

Tapað rúmum milljarði á þremur árum

Hlutafé í Torgi var svo aukið um 600 millj­­ónir króna í lok árs 2020 og aftur um 300 millj­ónir króna um síð­ustu ára­mót. Með nýju hluta­fjár­­aukn­ing­unni er ljóst að settir hafa verið 1,5 millj­­arðar króna í kaup á Torgi og hluta­fjár­­aukn­ingar frá því að Helgi og sam­­starfs­­menn hans komu að rekstr­inum fyrir þremur árum síð­an.

Torg hefur ekki skilað ársreikningi fyrir árið 2021 til ársreikninga­skráar en í mars var birt frétt í Frétta­blaðinu þar sem sagði að félagið hefði tapað 240 milljónum króna í fyrra. Árið áður var end­an­legt tap Torgs 599 millj­ónir króna og því tap­aði það sam­tals 839 millj­ónum króna á tveimur árum. Þá er búið að gera ráð fyrir 146 millj­ónum króna sem Torg fékk í rekstr­ar­styrk úr rík­is­sjóði á árunum 2020 og 2021.

Þegar end­an­legu tapi árs­ins 2019 er bætt við nemur tapið á þriggja ára tíma­bili rúmum millj­arði króna.

Stöðu­gildum hjá Torgi fækkaði um tíu um síðustu mánaðamót. Þá var fimm manns sagt upp og ekki verður ráðið í stað fimm annarra sem sögðu starfi sínu lausu. Sigmundur Ernir Rúnarsson, ritstjóri Frétta­blaðsins, sagði við Morgun­blaðið að aðgerðirnar fælu í sér samlegðar­áhrif og ættu að skila sér í hagræðingu í rekstri blaðsins.

Kostar 100 þúsund krónur á ári

Hitt dagblaðið á Íslandi, Morgun­blaðið, er selt í áskrift. Almenn áskrift kostar 8.383 krónur á mánuði, eða 100.596 krónur á ári. Upplýsingar um fjölda áskrifenda eru almennt ekki aðgengilegar en á lestrar­tölum sem Gallup safnar saman má ljóst vera að þeim hefur fækkað gríðar­lega á undan­förnum árum.

Lestur blaðsins hjá öllum aldurs­hópum mælist nú 17,7 prósent, og hefur aldrei mælst minni. Rúmt ár er síðan að lesturinn fór í fyrsta sinn undir 20 prósent. Vorið 2009, þegar nýir eig­endur komu að Árvakri, útgáfu­fé­lagi Morg­un­blaðs­ins, var lestur þess yfir 40 pró­sent.

Hjá lands­mönnum á aldr­inum 18 til 49 ára mælist lestur blaðs­ins nú 8,4 pró­sent en í byrjun árs 2009 lásu um þriðj­ungur lands­manna í þeim ald­urs­hópi blað­ið.

Kjarninn greindi frá því í síðasta mánuði að rekstr­ar­tap Árvak­urs, útgáfu­fé­lags Morg­un­blaðs­ins, á síð­asta ári hafi verið 113 millj­ónir króna. Það er lægra rekstr­ar­tap en árið áður, þegar útgáfu­fé­lagið tap­aði 210 millj­ónum króna.

Í fyrra fékk Árvakur þó 81 millj­ónir króna í rekstr­ar­styrk úr rík­is­sjóði auk þess sem félagið frest­aði greiðslu á stað­greiðslu launa starfs­­manna og trygginga­gjaldi í fyrra upp á alls 122 millj­­ónir króna. Um er að ræða vaxta­­laust lán úr rík­­is­­sjóði sem þarf að end­­ur­greið­­ast fyrir mitt ár 2026. Greiðslur eiga að hefj­­ast síðar á þessu ár.

Í frétt sem birt­ist í Morg­un­­blað­inu í byrjun maí var greint frá því að hefði skilað 110 millj­­óna króna hagn­aði í fyrra. Í þeirri frétt var ekki minnst á vaxta­lausa lán­töku hjá rík­is­sjóð­i.

Í árs­reikn­ingi Árvakur sést hvernig sá hagn­aður myndast, en hann er ekki til­kom­inn vegna reglu­legs rekst­urs, af honum er áfram sem áður tap.

Hluta­fjár­­aukn­ing í byrjun árs

Kjarn­inn greindi frá því í mars að hlutafé í Morg­un­blaðs­sam­stæð­unni hafi verið aukið um 100 millj­­­­ónir króna þann 31. jan­úar síð­­­­ast­lið­inn. Aðilar tengdir Ísfé­lagi Vest­­­­manna­eyja og félag í eigu Kaup­­­­fé­lags Skag­­­­firð­inga greiddu stærstan hluta henn­­­ar.

Þetta var í þriðja sinn frá árinu 2019 sem nýtt hlutafé er sett inn í rekstur fjöl­miðla­­­­sam­­­­steypunnar til að mæta tap­­­­rekstri henn­­­­ar. Í byrjun árs 2019 var hluta­­­­féð aukið um 200 millj­­­­ónir króna. Kaup­­­­­­fé­lag Skag­­­­­­firð­inga og félög tengd Ísfé­lagi Vest­­­­­­manna­eyja lögðu til 80 pró­­­­­­sent þeirrar aukn­ing­­­­ar. Sum­­­­­­­arið 2020 var hluta­­­­féð aukið um 300 millj­­­­ónir króna og kom allt féð frá þeim eig­enda­hópi sem var þegar til stað­­­­ar. Að við­bættri þeirri hluta­fjár­­­­aukn­ingu sem ráð­ist var í í upp­­­­hafi árs hefur móð­­­­ur­­­­fé­lagi Árvak­­­­urs því verið lagt til 600 millj­­­­ónir króna á þremur árum.

Frá því að nýir eig­endur tóku við rekstri Árvak­­­urs í febr­­­úar 2009 undir hatti Þór­s­­­merkur og til loka árs 2020 hefur útgáfu­­­­fé­lagið tapað yfir 2,5 millj­­­­örðum króna. Eig­enda­hóp­­­­ur­inn, sem hefur tekið ein­hverjum breyt­ingum á tíma­bil­inu, hefur nú lagt Árvakri til sam­tals tvo millj­­­­arða króna í nýtt hluta­­­­fé.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár