Hámarksútsvar hækkað um 0,22 prósentustig og tekjuskattur lækkaður á móti

Fjármála- og efnahags­ráðuneytið útfærði tillögur um hækkun hámarks­útsvars og lækkun tekju­skatts til að koma til móts við útgjalda­aukningu sveitar­félaga vegna mála­flokks fatlaðs fólks. Hámarks­útsvar má verða 14,74 prósent á næsta ári.

Sveitarfélögin munu geta lagt á allt að 14,74 prósenta útsvar á næsta ári.
Sveit­ar­fé­lögin munu geta lagt á allt að 14,74 pró­senta útsvar á næsta ári. Mynd: Úr safni

Fjármála- og efnahags­ráðuneytið lagði á fimmtudag fram breytingar­tillögur við fjárlaga­bandorminn svokallaða, sem fela í sér að leyfilegt hámarks­útsvar sveitar­félaga verði hækkað um 0,22 prósentu­stig og hlutfall tekju­skatts lækki um samsvari hlutfall í öllum skatt­þrepum einstaklinga. Meirihluti fjár­laganefndar gerði tillögurnar að sínum og voru þessar breytingar samþykktar í þinginu síðdegis í gær.

Með þessu er verið að færa um 5 milljarða króna skatt­tekjur frá ríkinu til sveitar­félaga á árinu 2023, í því skyni að koma til móts við ákall sveitar­félaga um aukið fé til þess að standa straum af útgjöldum vegna mála­flokks fatlaðs fólks.

Frekari tillögur mótaðar í samtali ríkis og sveitarfélaga

Áfram verður þó unnið að frekari skoðun á kostnaðar­skiptingu ríkis og sveitar­félaga í mála­flokknum, en í umfjöllun með breytingar­tillögum ráðuneytisins kemur fram að ekki liggi fyrir „fullnægjandi greining á orsökum þeirrar útgjalda­þróunar sem átt hefur sér stað
í mála­flokknum á undan­förnum árum“.

Starfs­hópur er að störfum, sem á að móta frekari tillögur um kostnaðar­skiptingu ríkis og sveitar­félaga í mála­flokknum, en það verður gert á grund­velli kort­lagningar á kostnaðar­þróun mála­flokksins. Starfs­hópurinn hefur einnig það hlutverk að „setja fram valkosti um hvernig stuðla megi að hagkvæmni í þjónustunni og hægja á útgjalda­vexti“.

Sveit­ar­fé­lög lands­ins hafa reiknað sig niður á það að gliðnun tekna og útgjalda í mál­efnum fatl­aðra, sem voru færð frá ríki til sveit­ar­fé­laga í byrjun árs 2011, hafi verið orðinn níu millj­arðar árið 2020 og nýverið kom fram af hálfu sveit­ar­fé­laga að gliðn­unin stefni í 12-13 millj­arða króna á þessu ári.

Hækkunin gangi til hlutdeildar Jöfnunarsjóðs í útsvarinu

Sigurður Ingi Jóhannsson innviða­ráðherra var búinn að boða þær aðgerðir sem nú hafa verið lagðar til af hálfu fjármála- og efnahags­ráðuneytisins, en það gerði hann í ræðu á fjármála­ráðstefnu sveitar­félaga í október­mánuði. Þar nefndi hann reyndar ögn hærri prósentu, eða 0,26 prósentu­stiga hækkun á hámarks­útsvarinu.

Hann sagði í ræðu sinni að öll hækkun útsvars­prósent­unnar þyrfti að ganga til hækkunar á hlutdeild Jöfnunar­sjóðs sveitar­félaga og er það lagt til af hálfu fjármála- og efnahags­ráðuneytisins, en í umfjöllun með breytingar­tillögum ráðuneytisins segir að gert sé ráð fyrir að hlutdeild Jöfnunar­sjóðs sveitar­félaga í útsvari aukist til jafns við hækkun hámarks­útsvarsins og hlut­fallið fari úr 0,99 prósentum upp í 1,21 prósent.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár