Framkvæmdastjóri Samtaka fjármálafyrirtækja í uppstillingarnefnd hjá Samfylkingunni

Katrín Júlíusdóttir var þingkona Samfylk­ing­ar­innar í 13 ár en starfar nú fyrir hagsmuna­samtök fjármála­fyrirtækja. Hún situr í þriggja manna uppstillingar­nefnd fyrir Suðvestur­kjördæmi.

Katrín Júlíusdóttir, fyrr­verandi ráðherra, situr í þriggja manna uppstillingar­nefnd vegna framboðs Samfylkingarinnar í Suðvestur­kjördæmi fyrir komandi Alþingis­kosningar. 

Katrín var þingkona flokksins á tíma­bilinu 2003 til 2016 en hefur starfað sem framkvæmda­stjóri Samtaka fjármála­fyrirtækja frá því í nóvember 2016.

Sem starfs­maður fyrir hagsmuna­samtök fjármála­fyrirtækja hefur það komið í hlut Katrínar að beita sér fyrir því að sköttum sé létt af fjármála­fyrirtækjum, meðal annars að skatt­breytingar sem gerðar voru í tíð vinstri­stjórnarinnar verði aftur­kallaðar. Sjálf var hún iðnaðar­ráðherra í umræddri ríkis­stjórn á árunum 2009 til 2012 og fjármála- og efnahags­ráðherra frá 2012 til 2013.

Gera tillögu um sigurstranglegan framboðslista

Kjördæmis­þing Samfylkingarinnar í Suðvestur­kjördæmi kaus um tilhögun við val á framboðs­lista í kjör­dæminu á sunnudags­kvöld. Niður­staðan er sú að framboðs­listinn verður valinn með uppstillingu. 

„Í þriggja manna uppstillingar­nefnd sitja: Katrín Júlíusdóttir, fv. alþingi­maður, Anna Sigríður Guðna­dóttir, bæjar­fulltrúi og Gunnar Svavarsson, fv. alþingis­maður sem jafnframt er formaður nefndarinnar,“ segir í tölvu­pósti sem flokks­mönnum barst í gær.

„Kallað er eftir tilnefningum að fram­bjóðendum frá flokks­félögum og fanga leitað víða innan flokks sem utan. Jafnframt verði horft til framboðs­lista vegna síðustu kosninga. Uppstillingar­nefnd gerir tillögu að framboðs­lista sem hún telur sigur­stranglegan og mun leitast við að tryggja að listinn í heild endur­spegli fjöl­breytni samfélagsins.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár