Noregur hækkar stýrivexti í 4,5 prósent

Noregs­banki hækkaði stýri­vexti um 0,25 prósentu­stig í morgun til að vinna gegn verðbólgu. Bankinn segir að frekari vaxta­hækkanir kunni að reynast nauðsynlegar.

Noregs­banki tilkynnti í dag að stýri­vextir hefðu verið hækkaðir um 0,25 prósentu­stig í 4,50 prósent til að vinna gegn verðbólgu. Bankinn sagði jafnframt að frekari vaxta­hækkanir gætu reynst nauðsynlegar.

„Verðbólga hefur verið yfir markmiði í nokkur ár. Með því að hækka stýri­vexti stuðlum við að því að draga úr verðbólgu,“ sagði Ida Wolden Bache, seðla­bankastjóri Noregs, í yfir­lýsingu.

„Líklega verður nauðsynlegt að halda stýri­vöxtum háum um tíma og nefndin er reiðubúin að hækka þá frekar ef þess gerist þörf til að ná verðbólgu niður í tveggja prósenta markmiðið innan hæfilegs tíma,“ sagði hún og vísaði þar til peninga­stefnu- og fjármála­stöðugleika­nefndar bankans.

Norska krónan styrktist eftir tilkynninguna enda gera hærri vextir norskt skulda­bréf og aðrar norskar eignir eftirsóknar­verðari fyrir erlenda fjárfesta.

Hagfræðingar höfðu verið ósammála um hvort bankinn myndi hækka vexti.

„Líklega verður nauð­syn­legt að halda stýri­vöxtum háum um tíma“
…
Kjósa
4
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár