Ég fór í fallhlífarstökk

Árni Már Erlingsson fékk símtal frá vini sínum sem bjó í Noregi sem bauð honum að leggja leið sína þangað til að fara með honum í fallhlífar­stökk. Árni þáði boðið með þökkum og vott af skelfingu.

Ég fékk símtal frá vini mínum, honum Hansa, sem býr úti í Noregi. Hann vekur mig á laugardags­morgni og spyr hvort ég vilji koma í fallhlífar­stökk.

Svo förum við þarna út og um kvöldið förum við á einhverja lista­hátíð við einhvern sveitabæ og það er rosa partí. Ég geri þau mistök að ég fæ mér orkudrykk þannig að ég sofna ekki neitt. Klukkan er orðin fjögur þegar við erum að reyna að sofna og við eigum að leggja af stað klukkan sex til að vera komnir klukkan átta og ég er gjör­samlega ekki búinn að sofa í mínútu. 

Það er ekkert rosalega bjart yfir svo mér fannst ekkert sérstak­lega líklegt að við værum á leið í fallhlífar­stökk, það var massív þoka og eitthvað. Svo kem ég á staðinn og við förum í fallhlífar­stökk.

Áður en við stígum fæti í flug­vélina er tuttugu mínútna kynning á norsku og …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Fólkið í borginni

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár