1.200 íbúða byggð í Nýja Skerjafirði samþykkt

Tillaga að ramma­skipulag fyrir byggð 1.200 íbúða hjá Reykja­víkur­flugvelli, auk skóla, verslunar og þjónustu, hefur verið samþykkt af Borgar­ráði.

Nýja hverfið verður milli Reykjavíkurflugvallar og Skeljaness í Skerjafirði.
Nýja hverfið verður milli Reykja­vík­ur­flug­vallar og Skelja­ness í Skerja­firði. Mynd: Birgir Þór

Borgarráð samþykkti tillögu að ramma­skipulag fyrir byggð 1.200 íbúða við Skerja­fjörð og Reykja­víkur­flugvöll. Í tillög­unni er einnig gert ráð fyrir nýjum skóla, verslun og þjónustu. Þetta kemur fram í nýrri tilkynningu Reykja­víkurborgar.

Samkvæmt tilkynningunni lýtur tillagan að byggð í Nýja Skerja­firði og afmarkast af götunni Skeljanesi til vesturs en af öryggis­svæði Reykja­víkur­flugvallar til norðurs og austurs. Við suðurenda byggðarinnar er síðan strand­lengja Skerja­fjarðar.

Ramma­skipulaginu er ætlað að vera leiðar­ljós varðandi uppbyggingu byggðar á þróunar­reit 5 í Aðal­skipulagi Reykja­víkur 2010-2030, en sá reitur nær yfir allan Reykja­víkur­flugvöll. Þannig verði hugsað fyrir tengingu hverfisins við áfram­haldandi uppbyggingu í Vatnsmýri þegar flug­völlurinn víkur þaðan.

Í tillög­unni er einnig gert ráð fyrir tengingu almennings­samgangna við Kársnes í Kópavogi með byggingu brúar yfir Fossvog fyrir gangandi, hjólandi og almennings­samgöngur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár