Bræður sem taldir eru hafa sprengt sig í loft upp í Brussel nafngreindir

Í gær voru birtar myndir af tveimur meintum gerendum í árásinni á flugvöllinn í Brussel. Í dag hafa tveir hryjðuverkamenn verið nafngreindir.
Í gær voru birtar myndir af tveimur meintum ger­endum í árásinni á flug­völl­inn í Brussel. Í dag hafa tveir hryjðu­verka­menn verið nafn­greindir.

Belgíska sjón­varps­stöðin RTBF hefur greint frá því að tveir þeirra sem frömdu sjálfs­morðsárás á flug­vell­inum í Brussel í gær hafi verið bræð­urnir Khalid og Ibrahim el-Bakraoui. Bræð­urnir eru belgískir rík­is­borg­arar og góð­kunn­ingjar lög­reglu þar í landi. Þeir voru enn fremur taldir hafa skýr tengsl við hryðju­verkin sem framin voru í París í nóv­em­ber í fyrra. Ef þeir sem frömdu voða­verkin í Brussel í gær eru hluti af sömu sellu og þeir sem réð­ust á París í fyrra þá mun það velta upp mjög alvar­legum spurn­ingum um frammi­stöðu lög­reglu og leyni­þjón­usta land­anna tveggja, enda voru bræð­urnir báðir eft­ir­lýstir vegna mögu­legra tengsla við hryðju­verk. The Guardian segir frá.

Þá hefur verið greint frá því að árás­armað­ur­inn sem tók þátt í árásinni á flug­völl­inn í Brussel, en leikur enn lausum hala, sé tal­inn vera Najim Laachraoui. Hann var þegar eft­ir­lýstur af lög­regl­unni í Belgíu eftir að erfða­efni hans fannst í íbúðum sem rann­sak­aðar voru vegna árásanna í París í fyrra. Eft­ir­lits­mynda­vélar náðu mynd af manni á flug­vell­inum í Brussel í gær­morgun sem þykir mjög líkur Laachraoui.

Tvær spreng­ingar, sem taldar eru hafa verið sjálfs­morðs­sprengju­árásir, urðu í brott­far­ar­sal Zavantem flug­vell­inum í Brussel um klukkan 8 að stað­ar­tíma í morgun, nálægt inn­rit­un­ar­borði American Airlines. Stuttu síðar var þriðja sprengjan í neð­an­jarð­ar­lesta­kerfi Brussel. Nýjustu fregnir herma að 31 hafi lát­ist og um 230 manns slasast í árás­unum í Brussel í gær. 

Annar bræðr­anna sem borin hafa verið kennsl á leigði íbúð í Forest, í suð­vestur hluta Brussel, sem lög­reglan réðst til inn­göngu í á þriðju­dag í síð­ustu viku, nákvæm­lega einni viku áður en hryðju­verkin í Brussel voru framin. Salah Abdeslam, einn höf­uð­paura Par­ís­ar­árásanna sem var hand­tek­inn nýverið, hafði dvalið í íbúð­inni. Við hús­leit fund­ust skot­vopn, fáni Íslamska rík­is­ins (ISIS) og einn með­limur þeirrar sellu sem skipu­lagði Par­ís­ar­árás­irnar, Mohamed Belkaïd frá Alsír, var skot­inn til bana af leyniskyttu lög­regl­unnar. Annar el-Bakraoui bræðr­anna leigði einnig íbúð sem tveir árás­armann­anna sem frömdu hryðju­verkin í París hitt­ust áður en þeir hófu sína hinstu ferð í nóv­em­ber, sem leiddi til árása sem drápu 130 manns. Íbúðin var í Charleroi í Belgíu og menn­irnir tveir hétu Abdel­hamid Abaaoud, meintur höf­uð­paur árásanna, og Bilal Hadfi, einn þeirra sem sprengdi sig í loft upp fyrir utan Stade de France völl­inn. Þá er talið að annar el-Bakroui bróð­ir­inn hafi séð Par­ís­ar­árás­ar­mönn­unum fyrir skot­færum og vopnum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

4
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár