Bjarni hefur ákveðið að hefja söluferli Íslandsbanka

Ákvörðun ráðherra byggir á fyrir­liggjandi greinar­gerð sem lögð var fyrir fjár­laganefnd og efnahags- og viðskipta­nefnd Alþingi og felur í sér að bankinn skuli seldur í áföngum fyrir árslok 2023.

Bjarni Benediktsson fjármála- og efnahagsráðherra.
Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

Bjarni Benediktsson fjármála- og efnahags­ráðherra hefur ákveðið að hefja framhald sölu­meðferðar á hlutum í Íslands­banka í samræmi við tillögu Banka­sýslu ríkisins frá 20. janúar síðastliðnum. Ráðherrann sendi Banka­sýslunni bréf um ákvörðunina í dag.

Þetta kemur fram á vef Stjórnar­ráðsins í dag en rík­is­sjóður seldi 35 pró­sent hlut í bank­anum síðastliðið sumar.

Ákvörðun ráðherra byggir á fyrir­liggjandi greinar­gerð sem lögð var fyrir fjár­laganefnd og efnahags- og viðskipta­nefnd Alþingi og felur í sér að bankinn skuli seldur í áföngum fyrir árslok 2023.

Bankasýslan telur að ófriður í Austur-Evrópu raski ekki meginforsendum söluáforma

Fram kemur hjá fjármála- og efnahags­ráðuneytinu að umsagnir nefndanna liggi nú fyrir en meirihlutar þeirra beggja mæli með því að hafist verði handa við framhald sölu.

Þá telur Seðla­bankinn að telja megi að jafnræði bjóðenda verði tryggt og er salan talin hafa takmörkuð áhrif á gjaldeyris­markað, gjaldeyris­forða bankans og laust fé í umferð.

Framhald sölu verður háð því að markaðs­aðstæður séu hagfelldar. Þrátt fyrir að ófriður í Austur-Evrópu hafi haft marg­háttuð áhrif á eigna- og fjármála­markaði á heimsvísu telur Banka­sýslan að það raski ekki megin­forsendum sölu­áformanna að svo stöddu. Þannig hafi verð á hlutum í bankanum ekki verið hærra en það er um þessar mundir.

­Rík­is­sjóður seldi 35 pró­sent hlut í bank­anum í sumar fyrir 55,3 millj­arða króna. Mark­aðsvirði þess hlutar er í dag 86,1 millj­arðar króna. Hann hefur því hækkað um 30,8 millj­arða króna á nokkrum mán­uð­um. Sú hækkun lendir hjá nýjum eig­endum hlut­ar­ins.

Á móti fékk ríkið mark­aðsvirði á eign sína í bank­an­um, sem var skráður á markað sam­hliða söl­unni í sum­ar. Nú er 65 pró­sent hlutur rík­is­sjóðs met­inn á um 160 millj­arða króna.

Mikill hagnaður í fyrra og stefnt á tugmilljarða útgreiðslur

Íslands­banki hagn­að­ist um 23,7 millj­arðar króna á árinu 2021. Arð­semi eigin fjár var 14,2 pró­sent og sem var vel yfir tíu pró­sent mark­miði bank­ans. Kostn­að­ar­hlut­fall bank­ans lækk­aði úr 54,3 pró­sent í 46,2 pró­sent milli ára.

Eigið fé Íslands­banka var 203,7 millj­arðar króna um síð­ustu ára­mót og eig­in­fjár­hlut­fall bank­ans 25,3 pró­sent. Útlán til við­skipta­vina Íslands­banka juk­ust um 7,9 pró­sent á síð­asta ári. Þá aukn­ingu má að mestu rekja til auk­inna umsvifa á hús­næð­is­mark­aði. Vaxta­munur bank­ans var 2,4 pró­sent. Hreinar vaxta­tekjur voru 34 millj­arðar króna og hækk­uðu um tvö pró­sent milli ára. Þókn­ana­tekjur hækk­uðu hins vegar um 22,1 pró­sent og voru sam­tals 12,9 millj­arðar króna.

Á grund­velli þess­arar afkomu var ákveðið að greiða hlut­höfum sínum 11,9 millj­arða króna í arð. Þar af fóru 65 pró­sent til stærsta ein­staka eig­and­ans, íslenska rík­is­ins, eða rúm­lega 7,7 millj­arðar króna. Þeir sem eiga 35 pró­sent hlut í bank­anum fengu svo sam­an­lagt tæpa 4,2 millj­arða króna í arð­greiðslu. Auk þess stefnir stjórn bank­ans að því að greiða út 40 millj­arða króna í umfram eigið fé á næstu 12-24 mán­uð­um. Sú veg­ferð hófst með því að aðal­fundur bankans samþykkti í gær að hefja end­ur­kaup á bréfum fyrir 15 millj­arða króna á næstu mán­uð­um.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár