Áformað að stöðva rekstur United Silicon 10. september

Verksmiðjan verður ekki ræst aftur fyrr en að úrbætur hafa verið gerðar. Arion banki afskrifaði hlutafé upp á einn milljarð í United Silicon í nýbirtum árshluta­reikningi. Fyrir­tækið skuldar Arion banka enn átta milljarða.

Áform eru uppi um að stöðva rektur kísilmálm­verksmiðju United Silicon í Helguvík 10. september næst­komandi til að gera umbætur á búnaði hennar. Þetta kemur fram í bréfi sem Umhverfis­stofnun sendi fyrir­tækinu í gær og greint er frá í Frétta­blaðinu í dag.

Þar er haft eftir Sigrúnu Ágústs­dóttur, svið­stjóra hjá Umhverfis­stofnun, að ekki verði gefin heimild til að ræsa verksmiðjuna að nýju ef úrbætur verða ekki gerðar.

Blaðið ræðir einnig við Björt Ólafs­dóttur, umhverfis- og auðlindar­ráðherra. Hún segir að rekstur United Silicon hafi verið ein sorgar­saga alveg frá byrjun og að henni þyki undarlegt að þeir sem fari með fé almennings fjárfesti í fyrirtæki sem almenningur í nágrenninu sé á móti. Þar vísar Björt í að nágrannar kísilmálm­verksmiðjunnar hafa ítrekað kvartað yfir lykta­mengun frá henni og þess að þrír íslenskir lífeyris­sjóðir hafa fjárfest fyrir samtals 2,2 milljarða króna í United Silicon, annað hvort í formi hlutafjár eða lána.

Skuldar Arion banka átta milljarða

United Silicon rekur kís­il­málm­verk­smiðju í Helgu­vík. Félagið óskaði eftir greiðslu­stöðvun 14. ágúst síð­ast­lið­inn. Ástæðan eru erf­ið­leikar í rekstri kís­il­málm­verk­smiðj­unni sem hóf fram­leiðslu í nóv­em­ber 2016, og rekja má til síend­ur­tek­inna bil­ana í bún­aði sem hafa valdið félag­inu miklu tjóni. Nýfall­inn gerð­ar­dómur í deilu félags­ins við ÍAV hf. eykur enn á óvissu félags­ins. Sam­kvæmt honum þarf United Silicon að greiða ÍAV um einn millj­arð króna.

Kjarninn greindi frá því í gær að Arion banki hafi fært niður 16,3 pró­sent eign­ar­hlut sinn í United Silicon að fullu í bókum sín­um. Virði hlutarins var um einn milljarður króna.

Bank­inn er auk þess með átta millj­arða króna útistand­andi við félag­ið, þar með talið lánslof­orð og ábyrgð­ir. Nið­ur­færslu­þörf á þeim lánum er enn óljós og háð fjár­hags­legri end­ur­skipu­lagn­ingu United Silicon. Þetta kom fram í árs­hluta­reikn­ingi Arion banka sem birtur var í gær.

Þrír sjóðir með 2,2 milljarða undir

Í síð­­­ustu viku var greint frá því að þrír íslenskir líf­eyr­is­­sjóðir hefðu fjár­­­fest fyrir sam­tals 2,2 millj­­arða króna í verk­efn­inu. Sjóð­irnir sem um ræðir eru Festa líf­eyr­is­­­­sjóð­­­ur, Frjálsi líf­eyr­is­­­­sjóð­­­ur­­inn og Eft­ir­­­­launa­­­­sjóður fé­lags ís­­­­lenskra at­vinn­u­flug­­­­manna (EFÍA). Frjálsi líf­eyr­is­­sjóð­­ur­inn hefur fjár­­­fest mest, eða fyrir 1.178 millj­­ónir króna. Festa lagði félag­inu til 875 millj­ónir króna í hlutafé og skulda­bréfa­lán. Allir þrír sjóð­irnir tóku þátt í hluta­fjár­­­aukn­ingu í apríl og lögðu þá 460 millj­­­ónir króna til við­­­bótar í United Silicon.

Arion banki rekur auk þess Frjálsa líf­eyr­is­­­­sjóð­inn og hann er til húsa í höf­uð­­­­stöðvum bank­ans í Borg­­­­ar­­­­túni. Bank­inn skipar þrjá af sjö stjórn­­­ar­­mönnum Frjálsa líf­eyr­is­­sjóðs­ins sam­­kvæmt sam­­þykktum hans.

EFÍA er líka rek­inn af Arion banka.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár