Lilja Rafney telur hvalveiðar vera eðlilegar

Þing­maður Vinstri grænna leggst gegn fyrri sam­þykktum flokks­ins síns með því að verja rétt Íslend­inga til hval­veiða.

Lilja Rafney Magnúsdóttir, þingmaður Vinstri grænna.
Lilja Rafney Magn­ús­dóttir, þing­maður Vinstri grænna. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Lilja Rafney Magn­ús­dóttir, for­maður atvinnu­vega­nefndar og þing­maður Vinstri grænna, segir eðli­legt að veiða hval hér við land og telur orð­spor Íslands ekki hafa skað­ast af slíkum veiðum. Þessi við­horf stang­ast á við sam­þykkt Vinstri grænna á flokks­þingi árið 2015 þar flokk­ur­inn lagð­ist gegn hval­veiðum. Vísir greinir fyrst frá.

Opinberu fé „kastað á glæ“ til áhugamanna

Í frétt Vísis er vísað til lands­fund­ar­á­lykt­ana Vinstri grænna eftir flokks­þing á Selfossi árið 2015, en þar stendur að flokk­ur­inn legg­ist „ein­dregið gegn hval­veiðum við Íslands­strendur.“ Stefnu sinni til stuðn­ings nefnir flokk­ur­inn að ómann­úð­legum veiði­að­ferðum sé beitt við veið­arnar, „til að við­halda áhuga­máli örfárra útgerð­ar­manna.“ Enn fremur sé opin­beru fé kastað á glæ til að styrkja þessa áhuga­menn, þrátt fyrir að veið­arnar séu litnar horn­auga innan margra alþjóð­legra stofn­ana.

Samkvæmt Vísi telur Lilja Rafney þó eðli­legt að lög um hval­veiðar verði end­ur­metin með það sjón­ar­mið í huga að hval­veiðar séu eðli­legar. „Ég hef verið inni á þeirri skoðun að Íslend­ingar eigi að við­halda sínum rétti til sjálf­bærra veiða á þeim hvala­teg­undum og þeim stofn­unum sem taldir eru sjálf­bærir og nýt­an­legir,“ segir þing­mað­ur­inn.

„Enginn rökstuðningur“ fyrir slæmu orðspori

Hins vegar telur Lilja Rafney eðli­legt að ríkið skoði þessar veiðar ef ein­hver óskar þess. „Það geta komið ábend­ingar frá ferða­þjón­ust­unni til dæmis og mér finnst sjálf­sagt ef það kemur ósk um slíkt að stjórn­völd taki stöð­una og skoði það,“ bætir hún við. Aðspurð um hvort hún telji orð­spor Íslands hafa skað­ast af þessum veiðum telur Lilja ekki svo vera og segir: „Ég hef ekki for­sendur til að meta það og hef ekki séð rök­stuðn­ing sem segir að það skaði okkar orð­spor heilt yfir.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Hvalveiðar

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

4
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár