Hefur verið 16 daga í hungurverkfalli: Útlendingastofnun leyfir Raisan ekki að fá vini sína í heimsókn

„Við óttumst að brátt verði ör hnignun þegar næringar­skorturinn fer virkilega að segja til sín,“ segir vinur Raisans Al-Shimani í samtali við Stundina. Útlendinga­stofnun hótar hælis­leitendum refsingu.

Vinum Raisans var meinaður aðgangur.
Vinum Raisans var mein­aður aðgangur.

Írakski hælis­leitandinn Raisan Al-Shimani hefur verið í hungur­verkfalli í meira en tvær vikur og er verulega af honum dregið. Þegar vinir hans ætluðu að þiggja heimboð hans í gær, veita honum félags­skap, umönnun og andlegan stuðning, var þeim meinaður aðgangur á grund­velli banns sem Útlendinga­stofnun hefur sett við gesta­komum til hælis­leitenda.

Til að hitta félaga sína þurfti því Raisan, sem er mátt­farinn eftir að hafa ekki neytt matar í 16 daga, að fara út og hitta fólkið fyrir utan húsið. „Á einhvern ótrúlegan hátt hafði hann orku í það,“ segir einn vinanna í samtali við Stundina. 

Á innan­verðri hurðinni á dvalar­stað hælis­leitenda að Grensás­vegi blasir við tilkynning frá Útlendinga­stofnun þar sem fram kemur að hælis­leitendum sé strang­lega bannað að fá heim­sóknir og verði reknir burt ef þeir óhlýðnast.

Engin undan­tekning var gerð á reglunni þrátt fyrir bágt ástand Raisans í gær. „Við komum að lokuðum dyrum og öryggis­vörður meinaði okkur um inngöngu. Raisan kom út fyrir. Hann drekkur vatn en nú er farið að draga af honum og við óttumst að brátt verði ör hnignun þegar næringar­skorturinn fer virkilega að segja til sín,“ segir Gunnar Örvarsson, einn af félögum Raisans, í samtali við Stundina. 

Létu Útlendingastofnun
vita þremur dögum áður

Vinir Raisans höfðu gert Útlendinga­stofnun viðvart um heim­sóknina með þriggja daga fyrirvara. Á þriðjudaginn afhentu þeir stofnuninni formlegt bréf þar sem fram kemur að mikilvægt að sé Raisan fái notið stuðnings og umönnunar vina sinna. „Vitaskuld verður tekið fyllsta tillit til annars heimilis­fólks,“ segir meðal annars í bréfinu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár