Brexit verður að veruleika

Bretar ganga úr Evr­ópu­sam­band­inu í dag. Boris Johnson for­sæt­is­ráð­herra mun ávarpa þjóð­ina í sjón­varpi, um leið og það ger­ist, um klukkan 23:00 að stað­ar­tíma.

Bretland fer úr Evr­ópu­sam­band­inu form­lega í dag, en for­sendur útgöng­unnar eiga þó eftir að teikn­ast upp, t.d. þegar kemur að við­skipta­kjörum og fleiri þáttum, sem snúa að við­skipta­sam­bandi við Evr­ópu­sam­bands­þjóð­irnar 27.

Með útgöngu Bret­lands hverfa sam­tals 66 millj­ónir manna af heildar íbúa­fjölda Evr­ópu­sam­bands­landa, sem er nú komin niður í um 460 millj­ónir.

Bretland hefur verið hluti af Evr­ópu­sam­band­inu frá því árið 1973, og því er útgangan sögu­leg vegna þess hve rót­gróið sam­band Bret­lands hefur verið við Evr­ópu­þjóð­irnar sem mynda Evr­ópu­sam­bandið.

Boris Johnson, for­sæt­is­ráð­herra Bret­lands, hefur barist fyrir útgöngu Bret­lands frá því árið 2016, þegar kosið var um málið í þjóð­at­kvæða­greiðslu.

Nið­ur­staðan sýndi algjöran klofn­ing meðal þjóð­ar­innar, 52 pró­sent vildu Brexit, en 48 pró­sent vildu vera áfram í sam­band­inu.

Sér­stak­lega var mik­ill munur á við­horfum fólks í borgum ann­ars vegar - sem vildu ekki útgöngu - og lands­byggð hins vegar - sem var meira fylgj­andi útgöngu - og síðan var afger­andi meiri stuðn­ingur við Brexit meðal fólks yfir 55 ára aldri heldur en hjá yngra fólki - sem í miklum meiri­hluta vildi vera áfram í sam­band­inu.

Eftir þrjár mis­heppn­aðar til­raunir til að fá samn­ing um útgöngu Bret­lands við Evr­ópu­sam­bandið sam­þykktan í þing­inu, þurfti Theresa May, þáver­andi for­sæt­is­ráð­herra, að segja af sér.

Boris Johnson tók þá við taumunum, og lagði áherslu á að hraða ferl­inu og boða til kosn­inga. Það var gert, og eftir kosn­ingsigur hans og Íhalds­flokks­ins, varð eft­ir­leik­ur­inn auð­veld­ari í þing­inu. Útganga Bret­lands var sam­þykkt, og talað um 31. jan­úar sem stóra dag­inn. Það gekk eftir og útgangan nú að verða stað­reynd.

Vicki Young, frétta­rit­ari breska rík­is­út­varps­ins BBC á sviði stjórn­mála, segir á vef BBC að eng­inn viti enn með vissu, hvað Brexit þýðir. Margir lausir endar þegar kemur að við­skipta­samn­ingum og alþjóða­sam­skiptum yfir­leitt, séu fyrir hendi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

2
Viðtal

Ef við kveðjum tungu­málið, þá týnum við vídd draumanna

Í sögu íslenskra bók­mennta í þús­und ár er lögð áhersla á raddir inn­flytj­enda, þá sem nú. Höf­und­ur­inn, Halldór Guð­munds­son, öðl­að­ist tveggja heima sýn ungur í Þýska­landi. Að læra lat­ínu frá 10 ára aldri lam­inn af kenn­ara sem skildi hann ekki, í sárum eftir heims­styrj­öld. Seinna spurði hann sig: „Hver má tala?" Í dag segir hann: „Íslend­inga­sögur dags­ins í dag eru að hluta til sagðar af fólki sem hingað hefur flutt."

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár