Ríkisstjórnin rannsakar viðhorf almennings til stjórnarskrárinnar

Sjö árum eftir að grunnur að nýrri stjórnar­skrá var samþykktur í þjóðar­atkvæða­greiðslu verður haldinn rökræðu­fundur um nýja stjórnar­skrá. Í viðhorfs­könnun á vegum stjórn­valda var ekki spurt út í viðhorf til tillagna stjórnlaga­ráðs.

Katrín Jakobsdóttir
Katrín Jak­obs­dóttir For­sæt­is­ráð­herra leggur áherslu á að ná breiðri sátt á Alþingi um breyt­ingar á stjórn­ar­skránni, þar sem Alþingi þurfi að sam­þykkja breyt­ing­arnar. Mynd: Shutterstock

Forsætis­ráðherra hefur kynnt að rökræðu­fundur verði haldinn fyrir almenning 9. til 10. nóvember næst­komandi í þeim tilgangi að þingmenn geti kynnst viðhorfi almennings til breytinga á stjórnar­skránni. Þrjú hundruð manns er boðið til fundarins.

Samráðið á sér stað sjö árum eftir að 67 prósent kjósenda samþykkti í þjóðar­atkvæða­greiðslu að „tillögur stjórnlaga­ráðs yrðu lagðar til grund­vallar frumvarpi að nýrri stjórnar­skrá“. Þetta er í fyrsta sinn í Íslands­sögunni sem niður­stöðum ráðgefandi þjóðar­atkvæða­greiðslu er ekki fylgt. Núverandi ferli byggir hins vegar á annarri aðferðar­fræði en fyrra ferli. Undir­liggjandi eru áhyggjur af því að almenningur hafi ekki nægilega þekkingu á stjórnar­skránni til að taka ákvarðanir um hana.

Rökræðufundur almennings

Katrín Jakobs­dóttir forsætis­ráðherra útskýrði samráðið í grein í Frétta­blaðinu fyrr í vikunni og sagði að spurninga­könnun Félags­vísinda­stofnunar meðal almennings sem kynnt var í september, væri undanfari almennings­samráðsins. Í könnuninni kom fram að þótt 37 prósent svarenda væru ánægð með stjórnar­skrána, en 27 prósent óánægð, vildi mikill meirihluti breyta henni, eða 59 prósent svarenda, á meðan 17 prósent svarenda töldu litla eða enga þörf á breytingum. Telur Katrín frekara ferli munu leiða fram hvers vegna almenningur vill breyta stjórnar­skránni, þótt ánægja sé með hana.

„Markmiðið er þannig að fá betri mynd af viðhorfi almennings“

„Könnunin sjálf er einungis fyrsta skref í umfangs­meiri rannsókn. Ætlunin er að virkja nýjar aðferðir við almennings­samráð með rökræðu­fundinum sem áður var nefndur. Þar mun fólk geta átt samræður við sérfræðinga og aðra um ýmis stjórnar­skrár­tengd málefni og er ætlunin síðan að meta hvort þær samræður breyta skoðunum eða viðhorfum fólks í viðkomandi máli. Markmiðið er þannig að fá betri mynd af viðhorfi almennings og dýpri skilning á því hvað ræður því, til dæmis af hverju fólk sem er ánægt með stjórnar­skrána sýnir einnig ríkan vilja til að endur­skoða hana,“ segir í grein Katrínar.

Skoða hvernig viðhorf breytast við umræðu

Katrín sagði áður frá fyrir­huguðum rökræðu­fundi í umræðum á Alþingi í febrúar síðastliðnum. „Þetta virkar þannig að þátt­takendur fá boð um að taka þátt í rökræðu­fundi um tiltekin mál, þeir eru látnir svara sömu könnun og þeir svöruðu áður en fundurinn hefst og svo svara þeir henni í þriðja sinn áður en fundinum lýkur. Þannig má kanna hvernig viðhorf manna breytast eftir því sem þeir kynnast málinu, fá tækifæri til að ræða við sérfræðinga og eiga samtal um viðfangs­efnið í smærri hópi. Þegar við erum spurð í almennri viðhorfa­könnun byggjum við á þeim viðhorfum sem við höfum fyrirfram og erum kannski ekki mikið búin að ígrunda og því er rökræðu­könnunin ákveðið tæki til að eiga almennings­samráð um tiltekin viðfangs­efni og kanna hvert rökræðan leiðir okkur,“ sagði hún.

Lítil þekking á stjórnarskránni

Aðeins fjögur prósent svarenda í könnun Félags­vísinda­stofnunar í sumar, sem kynnt var í síðasta mánuði, kváðust hafa „mikla þekkingu á stjórnar­skránni“. Samtals sagðist minni­hluti, eða 42 prósent, hafa nokkra eða mikla þekkingu á stjórnar­skránni.

13 prósent svarenda sögðust enga þekkingu hafa. Þetta gildir um hlutfall þeirra sem svöruðu yfirhöfuð. Aðeins 48 prósent úr úrtaki Félags­vísinda­stofnunar svaraði spurningunni af 4.566 manna úrtaki.

Athygli vekur að ekki var spurt út í viðhorf til tillagna stjórnlaga­ráðs í könnun Félags­vísinda­stofnunar. Spurt var hvort fólk hefði tekið þátt í þjóðar­atkvæða­greiðslu almennt, sem 77 prósent höfðu gert, og hvort fólk hefði áhuga á stjórn­málum, en 44 prósent hafði „nokkurn áhuga“ og restin skiptist í tvö horn, þótt töluvert færri hefðu „engan áhuga“ en „mjög mikinn áhuga“.

Þess ber að geta að 48 prósent kjósenda kusu í kosningu til stjórnlaga­ráðs, en ekki var spurt út í það í könnun Félags­vísinda­stofnunar hvort fylgni væri milli þekkingar og þátttöku í þjóðar­atkvæða­greiðslunni. Gera má ráð fyrir því að þeir sem hafa þekkingu og áhuga á stjórnar­skránni hafi kosið í þjóðar­atkvæða­greiðslunni.

Lægst svar­hlutfall náðist úr yngsta hópnum, 18 til 25 ára, en þeir námu 8,4 prósent svarenda þrátt fyrir að vera 14,5 prósent þýðis. Svar­hlutfallið fór síðan stig­hækkandi með aldri upp í 22,8 prósent hjá þeim sem  eru 66 ára og eldri, sem þó eru 17,3 prósent þýðisins. Þar sem niður­stöður eru birtar eftir mismun­andi breytum er hægt að sjá að mun færri 18 til 40 ára eru „mjög ánægðir“ með stjórnar­skrána, eða aðeins fjögur prósent.

Misjafnir hagsmunir þingmanna og kjósenda

Þegar ákveðið var að stofna til sérstaks stjórnlaga­þings eftir efnahags­hrunið árið 2009, var hugmyndin ekki síst að þannig mætti sneiða hjá hagsmuna­árekstri í gerð nýrrar stjórnar­skrár. Mörg atriði stjórnar­skrárinnar hafa bein áhrif á þingmenn á Alþingi, sem og ákveðna stjórn­málaflokka. Til dæmis hafa flokkar sem eru sterkir á lands­byggðinni, en veikari á höfuð­borgar­svæðinu, verulega, beina hagsmuni af því að viðhalda núverandi mismun á atkvæða­vægi fólks eftir búsetu. Auk þess er aukið beint lýðræði um leið valda­tilfærsla frá þingi til þjóðar.

En almenningur vill hins vegar breyta þessu. 64 prósent svarenda í áður­nefndri könnun segja að frekar eða mjög mikil þörf sé á að breyta kjördæma­skipan og atkvæða­vægi, en aðeins 16% mjög eða frekar litla þörf á breytingum. 74 prósent svarenda vilja að atkvæða­magn vegi jafnt á öllu landinu.

Þá vekur athygli, í samhengi við beint lýðræði, að yfir­gnæfandi meirihluti vill að kjósendur geti safnað undir­skriftum til að skylda Alþingi til að taka þingmál til meðferðar, eða 74 prósent gegn 8 prósentum.

Stjórnar­skrár­félagið gagnrýndi sérstak­lega orð forsætis­ráðherra á grund­velli þess að núverandi ferli væri ekki lýðræðislegt. „Það að hefja nýtt almennings­samráð um stjórnar­skrá án þess að virða niður­stöður þjóðar­atkvæða­greiðslu (um að leggja skuli nýju stjórnar­skrána til grund­vallar) getur því miður ekki talist lýðræðisleg aðgerð,“ sagði í Facebook-færslu félagsins.

Katrín Jakobs­dóttir forsætis­ráðherra ítrekar hins vegar að stjórnar­skrár­ferlið sé á forræði Alþingis. „Samkvæmt gildandi stjórnar­skrá verður stjórnar­skrá ekki breytt nema þannig að Alþingi samþykki breytingarnar, boðað sé til kosninga, og nýtt Alþingi staðfesti breytingarnar. Þess vegna er svo mikilvægt að vinna að sem breiðastri samstöðu alþingis­manna um breytingar á stjórnar­skrá.“

Síðasta samráðsferli haft til hliðsjónar ásamt almennri umræðu

Kjósendur hafa þegar samþykkt tillögur stjórnlaga­ráðs sem grunn nýrrar stjórnar­skrár í þjóðar­atkvæða­greiðslu, sem framkvæmd var í kjölfar beinnar kosningar í sérstakt stjórnlaga­þing eða stjórnlagaráð. Í aðdrag­anda þeirrar vinnu var haldinn þjóð­fundur 6. nóvember 2010, þar sem 950 manns af öllu landinu mættu. Tilgangur þjóð­fundarins var að „kalla eftir megin­sjónarmiðum og áherslum almennings um stjórn­skipan landsins, stjórnar­skrá og breytingar á henni“. Niður­stöðum Þjóð­fundarins var síðan safnað saman og þær formlega afhendar stjórnlaga­ráði, en sem fyrr segir ákváðu stjórn­völd að fylgja ekki niður­stöðum þess ferlis nema til „hliðsjónar“, rétt eins og gildir um nefndar­vinnu á Alþingi og „þá miklu samfélags­legu umræðu sem átt hefur sér stað“, eins og sagði í minnis­blaði forsætis­ráðherra til flokks­formanna á Alþingi í fyrra.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Stjórnarskrármálið

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár