Fyrirtæki í Bandaríkjunum mótmæla harðlega banni Trumps

Tækni­fyrirtæki, bankar og einstök ríki Banda­ríkjanna eru æf yfir komubanni á fólk frá sjö ríkjum sem öll eru með múslima í meirihluta.

Bandarískur efnahagur á allt undir fjöl­breytileika og alþjóð­legu tengingum. Þetta hefur glögglega sést undan­farna daga eftir að Donald Trump Bandaríkja­forseti fyrir skipaði komubann á alla borgara frá sjö ríkjum heimsins, Sýrlandi, Sómalíu, Súdan, Líbíu, Írak, Íran og Jemen. Í öllum ríkjunum er múslimatrú í meirihluta.

Mótmæli og málsóknir

Ákvörðunin hefur valdið gríðar­legum titringi í Banda­ríkjunum og á heimsvísu sömuleiðis. Mótmælt hefur verið á öllum stærstu flug­völlum Banda­ríkjanna en fjölmennustu mótmælin hafa verið á JFK flug­vellinum í New York.

Þar hafa auk þess lögmenn frá lögmanns­stofum í borginni unnið frítt að því að aðstoða þá sem hafa orðið fyrir skaða vegna bannsins ekki komist inn í Banda­ríkin.

Þau fyrirtæki sem hafa látið einna mest í sér heyra eru stærstu fyrirtæki landsins, Google, Microsoft, Amazon og Facebook ekki síst. Amazon og Microsoft hafa ákveðið að fara í mál við Donald Trump og styðja þannig ákvörðun heima­ríkisins fyrir­tækjanna, Washington, í þeim efnum en það var fyrsta ríkið til að höfða mál vegna bannsins og var það gert fyrir alríkis­dómstóli í Seattle. Málsókn ríkisins og fyrir­tækjanna byggir á því að bannið feli í sér brot gegn stjórnar­skrár­vörðum rétti fólksins sem sé mismunað á grund­velli þjóðernis með ólöglegum hætti. Farið er fram á að úrskurður liggi fyrir innan fjórtán daga.

Gengu út

Starfs­menn Google, um tvö þúsund talsins, gerðu hlé á störfum sínum í gær og mótmæltu banninu með táknrænum hætti, en Sundar Pichai, forstjóri Google, sagði bannið ná til um 200 starfs­manna fyrir­tækisins. Hann mótmælti því harðlega en sagði að fyrir­tækið myndi styðja starfs­menn með öllum ráðum. Fyrir­tækið hefur jafnframt lagt um fjórar milljónir Bandaríkja­dala, tæplega 500 milljónir króna, í sjóð sem mun aðstoða þá sem verða fyrir áhrifum af banninu.

Viðbrögðin hafa verið svipuð hjá tugum annarra fyrir­tækja sem eru með starfs­menn frá þessum löndum. Microsoft setti strax saman lögfræði­teymi sem vinnur fyrir fólkið, og ver hagsmuni þess. Svipaða sögu er að segja af Amazon, Goldman Sachs, Bank of America, JP Morgan og fleiri alþjóð­legum fyrir­tækjum í Banda­ríkjunum. Lloyd Blankfein, forstjóri og stjórnar­formaður Goldman Sachs, sendi starfs­mönnum pistil á hljóðskrá á sunnu­daginn þar sem hann sagði bannið ekki í takt við gildi bankans og það ylli honum áhyggjum.

Mótmælt við háskóla vítt og breitt

Bannið hefur mikil áhrif á starfs­fólk háskóla og nemendur. Samkvæmt Quartz þá kemur bannið verst við meistara­nema en um 12.260 slíkir eru við nám í Banda­ríkjunum frá löndunum sjö. Nemendur í BA námi eru um 2.300 talsins og nemendur sem eru á svonefndur OPT-Visa, sem þeir fá að lokinni útskrift og veitir rétt til að dvelja í landinu í eitt ár, eru 1.940 talsins.

Samtals hefur bannið áhrif á um 90 þúsund einstaklinga sem höfðu leyfði til að dveljast í Banda­ríkjunum, fyrir utan síðan alla hina sem búa ekki í Banda­ríkjunum. Í umfjöllun Washington Post í gær kemur fram að stærsti hópurinn komi frá Íran eða um 42 þúsund manns. Bannið náði einnig til flótta­manna frá Sýrland sem lokað var á. Megin­skýring Trump að baki þessari ákvörðun hefur verið sú að þetta þurfi að gera af öryggis­ástæðum, en þær eru meira en lítið umdeilanlegar. Þvert á móti hafa sumir sagt, þar á meðal John McCain, þingmaður Repúblikana, að bannið geti aukið á óöryggi og skapað meiri hættu á hryðju­verkum.

Trump segir bannið hafa reynst vel og neita með öllu að afnema það, en þó er það ekki jafn strangt nú og það var í fyrstu. Þeir sem hafa svonefnt grænt kort hafa heimild til þess að koma til landsins, en þannig var það ekki í fyrstu.

Trump rak í gær starfandi dómsmála­ráðherra Banda­ríkjanna, Sally Yates, eftir að hún hafði efast um lögmæti ákvörðunar Trumps um að banna komu fólks frá löndunum sjö til landsins. Dana Boente hefur tekið við starfinu tíma­bundið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár