Við hvert ferðalag vex ég sem manneskja

Þórir Snær Hjaltason fæddist um aldamótin og er þess vegna að verða 24 ára á þessu ári. Hann hefur ferðast víða og búið bæði á Íslandi og í Banda­ríkjunum. Í hvert skipti sem hann ferðast finnst honum hann víkka sjóndeildar­hringinn sinn og vaxa sem manneskja.

Þórir Snær Hjaltason
Þórir Snær Hjalta­son Mynd: Alma Mjöll Ólafsdóttir

„Ég heiti Þórir Snær Hjaltason og við erum í Corner market í Aðal­stræti. Ég vinn við sölu og dreifingu hjá samloku­fyrirtæki og ákveð hversu margar samlokur fara í búðirnar. Í dag er einn bílstjóri veikur svo ég hljóp í skarðið eldsnemma í morgun með sendinguna. Vanalega sit ég við tölvu og horfi á tölur. Ég er frekar nýbyrjaður og mér finnst þetta bara mjög gaman.

Ég útskrifaðist í desember úr stjórn­mála- og viðskipta­fræði í háskólanum með stjórnmál sem aðalgrein og viðskipti sem auka. Það skemmtilegasta við námið var að fara í skiptinám til Seattle í Banda­ríkjunum. Námið var þrisvar sinnum erfiðara en hérna heima en það fékk mann til þess að þurfa og vilja læra meira. Ég myndi segja að ég hafi lært meira á þessari einu önn í University of Washington en öll árin hérna heima. 

Það er mikill menningar­munur á Íslandi og Banda­ríkjunum, sérstak­lega í djamminu en allt djammið þar snerist í kringum íþróttir. Ef það var partí var það eftir leik. Það var ekkert svo óhugnanlegt að flytja út því ég bjó í Banda­ríkjunum mjög lengi, frá tveggja til níu ára aldurs í Connecticut. Banda­ríkin hafa alltaf verið mitt annað heimili. 

„Svo kom ég hingað í fjórða bekk og þá eru allir að segja fokk og piss og eitt­hvað svona í skól­anum.“

Það var meira menningar­sjokk að koma níu ára aftur til Íslands, sérstak­lega hvað skóla­kerfið varðar. Það var svo mikill agi í skólanum úti. Ef þú réttir upp hönd máttir þú ekki yrða á neinn fyrr en á þig var bent og þér sagt að þú mættir tala. Maður bar virðingu fyrir öllum kennurum og ef maður blótaði bara smá var maður sendur til skóla­stjórans. Svo kom ég hingað í fjórða bekk og þá eru allir að segja fokk og piss og eitthvað svona í skólanum. Ég vissi ekki hvað sneri upp né niður þegar ég kom hingað sem krakki. En við vorum alltaf með mjög sterka tengingu við Ísland. Við fórum alltaf heim á sumrin í þrjá mánuði og mér leið alltaf vel hér. Ég aðlagaðist mjög hratt eftir að ég flutti og eignaðist góða vini. 

Sem betur fer kynntist ég ekki miklum stjórnmála­óróa í Banda­ríkjunum þegar ég var þar í skipti­námi. Ég ákvað að fara á stað sem er frekar einsleitur pólitískt séð. Washington er mjög blátt ríki og Seattle er ein bláasta borg í Banda­ríkjunum. Ég fann ekki þessa togstreitu þar sem er víða um Banda­ríkin. Ég held að þar séu svæði annaðhvort mjög rauð eða mjög blá, þannig að innan ákveðinna svæða er ekki það mikil togstreita, nema auðvitað í sveiflu-ríkjunum. Þar er meiri togstreita á milli svæða. 

En ég held að eins og núna með stríðið í Palestínu þá er það ekki eins svart-hvítt út frá því hvort þú sért repúblikani eða demókrati. Það er fullt af demó­krötum sem styðja Ísrael en líka fullt af demó­krötum sem styðja Palestínu og ég get ímyndað mér að togstreitan sé að aukast, sérstak­lega innan Demókrata­flokksins. Því það er mikið af eldri demó­krötum sem styðja Ísrael mjög mikið og yngri demó­kratar sem gera það alls ekki. Ég hef ekkert heyrt frá vinum mínum úti en ég ímynda mér að stemningin sé frekar spennu­þrungin, sérstak­lega hvað þetta málefni varðar, ólíkt á Íslandi þar sem einhver segist styðja Palestínu og það er ekkert það umdeilt, sérstak­lega kannski meðal yngra fólks. En í Banda­ríkjunum finnst mér mjög fáir vera að skoða báðar hliðar, þar ertu annaðhvort stuðnings­maður Ísraels eða ekki. 

Ætli það séu ekki foreldrar mínir sem hafa mótað mig mest. Ég er rosalega heppinn með foreldra, þau eru alveg yndisleg. Ég kem úr mikilli lækna­fjölskyldu. Flestir halda að pabbi vilji að ég fari í lækninn líka og mamma mín og amma og afi og allir sem eru læknar í fjöl­skyldunni. Ég hef aldrei fundið fyrir slíkri pressu og er mjög heppinn með það. Ég er líka frjáls frá áhrifum frá þeim, margir halda að þótt foreldrar mínir segi mér ekki að fara í lækninn sé samt ætlast til þess. Ég er mjög ánægður með að hafa farið í stjórn­mála- og viðskipta­fræði. Ég er frjáls ferða minna og sama hvað ég ákveð eru foreldrar mínir stoltir af mér.   

Sú reynsla sem hefur mótað mig mest? Góð spurning. Ég fór á interrail þarsíðasta sumar. Það mótaði mig mjög mikið, víkkaði sjóndeildar­hringinn minn á heiminn og annars konar menningar­heima og fólk. Ferðir mínar hafa mótað mig, ég hef verið mjög heppinn og ferðast víða. Ég hef farið víða í Asíu, Evrópu og, ég myndi segja, að undan­tekningar­laust, að í hvert einasta skipti sem ég ferðast, þá vex ég sem manneskja.“

Kjósa
11
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Fólkið í borginni

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár