Hart sótt að Starmer: Skipaði sendiherra sem hafði fallið á öryggisprófi

Peter Mandelson féll á öryggis­prófi þegar verið var að meta hæfi hans til þess að gegna sendiherra­stöðu í Washington,. Þrátt fyrir það fékk hann stöðuna. Eftir að þetta var afhjúpað í The Guardian sætir Keir Starmer, forsætis­ráðherra Bretlands, vaxandi þrýstingi um að segja af sér.

Sótt hefur verið að Starmer mánuðum saman vegna málsins sem vakið hefur reiði, eftir að Mandelsons var árið 2024 tilnefndur í sendiherra­stöðuna, þrátt fyrir náin tengsl hans við kynferðis­brota­manninn, Jeffrey Epstein.

Mandelson hefur lengi verið innmúraður í Verkamanna­flokknum, stjórnar­flokki Starmers. Á sínum ferli hefur hann gegnt mörgum ráðherra­embættum, en verið hundeltur af hneykslis­málum. Í tvígang hefur hann þurft að segja af sér ráðherra­embætti. Þrátt fyrir það tók hann við sendiherra­stöðunni í fyrra. 

Kröfur stjórnar­andstöðunnar um að forsætis­ráðherrann segði af sér voru skýrar síðastliðinn fimmtudag þegar ríkis­stjórnin staðfesti afhjúpun Guardian um að sendi­herrann hefði verið skipaður þrátt fyrir að hafa fallið á öryggis­athugun.

Kenna embættismönnum um

Ríkis­stjórnin kennir embættis­mönnum utan­ríkis­ráðuneytisins um og segir að hvorki Starmer né utan­ríkis­ráðherrann hafi verið upplýstir um misheppnaða öryggis­athugun Mandelsons fyrr en í vikunni.

Æðsti embættis­maður utan­ríkis­ráðuneytisins, Olly Robbins, hefur sagt af sér eftir á þeim forsendum að Starmer treysti honum ekki lengur, því hann tilkynnti forsætis­ráðherra ekki um þá ákvörðun ráðuneytisins að leyfa skipun Mandelsons að halda áfram „gegn tilmælum bresku öryggis­athugunarinnar“.

Sendiherra­embættið í Washington er talið virtasta og mikil­vægasta sendiherra­embætti Bretlands..

Forsætisráðherra sagður öskureiður

Fyrr á árinu sögðu tveir af helstu pólitísku aðstoðar­mönnum Starmers af sér vegna hneykslis­málsins, mitt í pólitískum stormi.

Starmer hefur ítrekað þurft að svara fyrir dómgreind sína vegna skipunar Mandelson, sem hann rak síðan í september aðeins nokkrum mánuðum eftir að ráðherrann fyrr­verandi tók við sendiherra­embættinu. Kemi Badenoch, leiðtogi hægri­sinnaða Íhalds­flokksins í stjórnar­andstöðu, skrifaði á X: „Starmer hefur svikið þjóðar­öryggi okkar. Hann ætti að fara.“

Forsætis­ráðherrann hefur sakað Mandelson um að ljúga um umfang tengsla sinna við Epstein í öryggis­athugunar­ferlinu. Ráðherrann Darren Jones kom forsætis­ráðherranum til varnar og sagði að það væri „óásættanlegt“ að utan­ríkis­ráðuneytið hefði hunsað öryggis­athugunar­ferlið. Neitaði hann því að forsætis­ráðherrann hefði villt um fyrir þinginu og kallaði hið mistæka ferli „brest ríkisins“. „Þú getur ímyndað þér að forsætis­ráðherrann hafi verið ösku­reiður, eins og búast mátti við, yfir því að honum hafi aðeins verið tilkynnt um þetta á þriðjudags­kvöld,“ sagði Jones við Sky News.

Hann þvertók einnig fyrir að staða Starmers væri í hættu. „Almenningur getur séð í Keir Starmer að hann er sterkur, trúverðugur leiðtogi sem hefur áhrif á heimsvísu,“ fullyrti hann.

Lögreglurannsókn hafin 

Starmer rak Mandelson sem sendi­herra eftir að ný skjöl voru birt sem innihéldu nýjar upplýsingar um tengsl hans við Epstein. Lögreglan hefur hafið rannsókn á ásökunum um embættis­brot af hálfu Mandelsons, sem var hand­tekinn og látinn laus gegn tryggingu í febrúar. Hann hefur ekki verið ákærður og neitar refsiverðri háttsemi.

Lögreglan rannsakar Mandelson vegna ásakana um að hann hafi lekið viðkvæmum skjölum til Epsteins þegar hann var ráðherra í ríkis­stjórn, meðal annars í fjármála­hruninu 2008.

Í áreiðanleika­könnun sem lögð var fyrir Starmer í desember 2024 var bent á röð skýrslna sem lýstu tengslum Mandelsons við Epstein, sem var dæmdur fyrir kynferðis­brot í Flórída árið 2008, þar á meðal fyrir að hafa tælt ólögráða einstakling.

Þar kom fram að samband þeirra hófst þegar Mandelson var ráðherra í ríkis­stjórn og hélt áfram eftir lok síðustu ríkis­stjórnar Verkamanna­flokksins í Bretlandi árið 2010. Þar var einnig tekið fram að Mandelson „dvaldi að sögn í húsi Epsteins á meðan hann var í fangelsi í júní 2009“.

Þingmenn skipuðu ríkis­stjórn Verkamanna­flokksins fyrr á þessu ári að birta tugþúsundir tölvu­pósta, skilaboða og skjala sem lýsa því hvernig Mandelson var metinn fyrir embættið. Búist er við að seinni hluti skjalanna verði gefinn út á næstu vikum.

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár