Nef- og munntóbakssala ÁTVR aldrei verið meiri í byrjun árs

ÁTVR, sem fram­leiðir og selur gróf­kornað nef- og munntóbak og er í einokunar­stöðu á íslenska markaðnum, seldi meira af slíku á fyrstu tveimur mánuðum ársins en fyrir­tækið hefur nokkru sinni gert áður.

Áfengis- og tóbaks­verslun ríkisins (ÁTVR), sem hefur einkarétt á að framleiða og selja gróf­kornað nef- og munntóbak, seldi 37,6 tonn af slíku í fyrra. Það er aðeins minna en fyrir­tækið seldi árið 2016, þegar salan var rétt tæplega 40 tonn, sem var sölumet. Þetta má sjá yfirliti yfir mánaðarlegar sölutölur ÁTVR.

Þar kemur einnig fram að á fyrstu tveimur mánuðum ársins hefur selst meira af nef- og munn­tóbaki en nokkru sinni áður á því tímabili. Á metárinu 2016 seldust 5,3 tonn af nef- og munn­tóbaki. Í janúar og febrúar 2018 hafa selst 6,2 tonn, eða 17 prósent meira en á fyrstu tveimur mánuðum ársins 2016.

Fjórfaldast frá aldarmótum

Ástæðu þess að tóbaks­sala dróst saman í fyrra má ugglaust rekja til þess að tóbaks­gjald var hækkað í byrjun árs 2017. Við það hækkaði verð á dós af nef- og munn­tóbaki sem ÁTVR fram­leiðir, og er oftast kallað „Ruddi“, um 60 prósent í verði. Algengt smásölu­verð eftir þá hækkun var um þrjú þúsund krónur á dós.

Svo virðist sem að notendur tóbaksins setji þá hækkun ekki lengur mikið fyrir sig því að neyslan hefur aukist á ný það sem af er árinu 2018.

Salan á gróf­kornuðu tóbaki hefur aukist feykilega mikið á undan­förnum árum. Árið 2000 seld­ust til að mynda ríf­­lega 10 tonn af nef­tó­baki, og því hefur salan fjór­faldast frá þeim tíma.

Það hefur áður gerst að hækkun á tóbaks­gjaldi hefur hægt á sölu tóbaksins. Það gerðist árin 2012 og 2013 eftir að tóbaks­gjald var tvöfaldað. Eftir þau ár fór salan hins vegar að aukast aftur á ný og náði, líkt og áður sagði, 40 tonnum árið 2016.

Ein­okun lengi

Árið 1996 var fínkornað munn- og nef­tó­bak bannað með lögum á Íslandi. Það þýðir að ­tó­bakið sem ÁTVR fram­­­­leiðir hefur verið í nán­­­­ast ein­ok­un­­­­ar­­­­stöðu á mark­aðnum síðan lögin voru sett. Sam­hliða hefur neysla á munn­tó­baki auk­ist tölu­vert og þeir sem neyta þess kaupa ann­að­hvort smygl­varn­ing á svörtum mark­aði, þar sem er mikið fram­­­­boð, eða nota ­tó­bakið sem ÁTVR fram­­­­leið­ir sem munn­tó­bak.

Þessi aukna neysla hefur skilað auknum tekjum í vasa hins opin­bera svo um mun­­­­ar, bæði vegna hækk­­­­unar á tóbaks­­­­gjaldi og stór­auk­innar eft­ir­­­­spurn­­­­ar. Í fyrra skilaði til að mynda tóbaks­gjald, sem leggst á allar tóbaks­vörur, hvort sem um er að ræða vind­linga og sígar­ettur eða hið gróf­kornaða nef- og munntóbak sem ÁTVR fram­leiðir og sel­ur, um sex milljörðum króna í ríkis­kassann. Því er um umtals­verða tekjulind að ræða fyrir ríkissjóð.

Miklar tekjur af sölu á rík­is­fram­leiddu tóbaki

Tekjur ÁTVR af sölu tóbaks dróg­ust í heild saman á árinu 2016. Þær voru tveimur pró­sentum lægri en árið 2015 eða alls 9,3 millj­arðar króna. Þar munaði mestu um að sala á sígar­ettum dróst saman um 6,1 pró­sent og á vindlum um 7,5 pró­sent.

Sala á nef­- og munntó­baki hélt hins veg­ar, líkt og áður sagði, áfram að aukast og jókst sam­tals um 10,7 pró­sent á árinu. Salan skil­aði alls 827,6 millj­ónum króna í kass­ann árið 2016 án virð­is­auka­skatts. Árið 2015 var selt rík­is­fram­leitt tóbak fyrir 748 millj­ónir króna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár