Sektað vegna grímuskyldu í Ásmundarsal

Eigendur Ásmund­ar­salar hafa sent frá sér til­kynn­ingu vegna máls sem kom upp á Þor­láks­messu í fyrra er varðar brot á grímu­skyldu. Lög­reglan neit­aði að greina frá nið­ur­stöð­unni fyrr í dag.

Aðstand­endur Ásmund­ar­salar, Aðal­heiður Magn­ús­dóttir og Sig­ur­björn Þor­kels­son, greina frá því í yfir­lýs­ingu sem þau sendu á fjöl­miðla í dag að ekki hafi verið brotið gegn reglum um fjölda­tak­mark­anir í salnum á Þor­láks­messu á síð­asta ári.

Enn fremur segir í til­kynn­ing­unni að ekki hafi verið brotið gegn reglum um opn­un­ar­tíma umrætt kvöld og að ekk­ert sam­kvæmi hafi verið haldið í lista­safn­inu umrætt kvöld. Aftur á móti hafi verið brotið gegn ákvæði um grímu­skyldu.

Þetta komi fram í nið­ur­stöðu lög­reglu­rann­sóknar vegna lista­sýn­ingar umrætt kvöld í Ásmund­ar­sal. „Við höfum áður geng­ist við því að ekki var nægi­lega gætt að því að allir gestir bæru grímu öllum stundum í öllum rýmum lista­sýn­ing­ar­innar. Munum við því greiða sekt­ina og ljúka mál­inu, sem nú hefur verið til rann­sóknar í um hálft ár, með þeim hætti.“

Fram kom í fjöl­miðlum fyrr í dag að ákæru­svið lög­regl­unnar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu væri búið að afgreiða málið og nið­ur­staða í því lægi fyrir. Lög­reglan neit­aði hins vegar að upp­lýsa um hver nið­ur­staðan væri og bar fyrir sig að hún gæti ekki upp­lýst um afgreiðslu ein­stakra mála.

Nefnd um eftirlit með lögreglu tók starfshætti lögreglu til skoðunar

Fram kemur hjá Aðal­heiði og Sig­ur­birni að nið­ur­staða lög­reglu stað­festi að dag­bók­ar­færsla um afskipti lög­reglu­þjóna af fólki á lista­sýn­ing­unni hafi verið efn­is­lega röng.

„Engar ávirð­ingar um brot á opn­un­ar­tíma eða fjölda­tak­mörk­unum koma fram í nýfeng­inni nið­ur­stöðu emb­ætt­is­ins vegna máls­ins. Í nið­ur­stöð­unni er aðstand­endum safns­ins boðið að ljúka máli vegna brots á 4. grein reglu­gerðar um tak­mörkun á sam­komum vegna far­sóttar með sekt­ar­gerð. Umrætt ákvæði snýr að grímu­skyldu. Önnur brot á sótt­varn­ar­reglum voru ekki framin umrætt kvöld, líkt og stað­fest er í nið­ur­stöð­unni.

Nið­ur­staðan er í sam­ræmi við það sem við höfum bent á allt frá birt­ingu dag­bók­ar­færslu lög­reglu á aðfanga­dags­morgun, þar sem full­yrt var að haldið hefði verið sam­kvæmi, of margir verið á staðnum og lög­boðnum lok­un­ar­tíma ekki sinnt,“ segir í yfir­lýs­ing­unni.

Þá hafi reglur um fjölda­tak­mark­anir ekki verið brotnar, „enda máttu versl­anir taka á móti 5 manns á hverja 10 m² en að hámarki 100 manns umrætt sinn. Enn fremur máttu versl­anir hafa opið til klukkan 23 á Þor­láks­messu, eins og víða var í mið­borg Reykja­víkur.“

Að lokum greina þau frá því að nefnd um eft­ir­lit með lög­reglu hafi tekið starfs­hætti lög­reglu til skoð­unar og gert alvar­legar athuga­semdir við hátt­semi lög­reglu­þjóna og vinnu­brögð emb­ætt­is­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

2
Viðtal

Ef við kveðjum tungu­málið, þá týnum við vídd draumanna

Í sögu íslenskra bók­mennta í þús­und ár er lögð áhersla á raddir inn­flytj­enda, þá sem nú. Höf­und­ur­inn, Halldór Guð­munds­son, öðl­að­ist tveggja heima sýn ungur í Þýska­landi. Að læra lat­ínu frá 10 ára aldri lam­inn af kenn­ara sem skildi hann ekki, í sárum eftir heims­styrj­öld. Seinna spurði hann sig: „Hver má tala?" Í dag segir hann: „Íslend­inga­sögur dags­ins í dag eru að hluta til sagðar af fólki sem hingað hefur flutt."

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár