Útgerðarfólk og YouTube-stjarna tekjuhæst á Suðurnesjum

Tækni­lausn fyrir notendur Youtube hefur reynst ábatasöm yfir einn Suður­nesjamann. Tekju­hæstu einstak­ling­arnir á síðasta ári eru flestir tengdir sjávar­útvegi.

Bæði fugl og fiskur
Bæði fugl og fiskur Útgerð­ar­fólk er tekju­hæsti hóp­ur­inn á Suð­ur­nesjum. Það er þó ein und­an­tekn­ing, en í öðru sæti list­ans er tækni­fröm­uður.

Hermann Thorstensen Ólafsson er skatta­kóngur á Suðurnesjum í ár en hann er fyrr­verandi framkvæmda­stjóri og einn eigandi Stakka­víkur, sem er fiskvinnslu­útgerð í Grindavík.

Fiskur er áberandi arðbær á Suðurnesjum en sjö af tíu tekju­hæstu einstaklingunum eiga silfri hafsins að þakka auðæfi sín þetta árið. Hermann var með 419 milljónir króna í árstekjur og greiddi 88 milljónir í fjármagns­tekjuskatt. Hann nær þó ekki inn á topp fimmtíu listann á landinu öllu en litlu má þó muna þar sem hann er í 58. sæti yfir þá tekju­hæstu á landinu öllu.

Það er þó ekki fiskur heldur nýsköpun sem situr í öðru sæti listans. Hinn tæplega þrítugi Grétar Ágúst Agnarsson er í öðru sæti samkvæmt lista Heimildarinnar en hann er með 344 milljónir í árstekjur. Hann eigandi fyrir­tækisins AppStarMe sem býður upp á tækni­lausn fyrir þá sem vilja geta snérsniðið YouTube-áhorfið sitt að sínum smekk auk þess sem appið tryggir að …

Kjósa
5
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Hátekjulistinn

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár