Einn umdeildasti maður Bretlands sem reyndi að kaupa skuldir Baugs á slikk

Philip Green var líklega manna fegnastur þegar Brexit-niður­staðan lá fyrir og sviðs­ljósið færðist af greiðslu­stöðvum BHS, fyrir­tækis sem hann losaði sig við fyrir eitt pund. Green reyndi einu sinni að kaupa allar skuldir Baugs á bruna­útsölu.

Philip Green þegar hann kom fyrir þingnefnd breska þingsins fyrir skemmstu.
Philip Green þegar hann kom fyrir þing­nefnd breska þings­ins fyrir skemmstu. Mynd: Úr safni

Philip Green, einn ríkasti maður Bretlands, hefur verið mikið í sviðs­ljósinu þar í landi vegna greiðslu­stöðvunar BHS, eða British Home Store, verslunar­keðju sem stofnuð var fyrir 88 árum síðan. Hann hefur verið harðlega gagn­rýndur fyrir hvernig hann hélt á þeim málum, grun­semdir eru uppi um að hann hafi meðvitað reynt að komast hjá því að greiða áfallnar lífeyris­skuld­bindingar starfs­manna BHS og framkoma Green fyrir þingnefnd þótti dónaleg og yfirlætisleg.

Þessi sami Philip Green hefði getað orðið fyrir­ferðamikill maður í íslensku þjóðlífi. Hann reyndi fyrir tæpum átta árum að kaupa allar skuldir Baugs Group og tengdra aðila, stærsta smásölu­veldis Íslands á þeim tíma, á brotabrot af virði þeirra. Sú áætlun hans tókst ekki.

Skulda 571 milljón pund í lífeyrisgreiðslur

BHS fór í greiðslu­stöðvun í apríl og í júní var tekin sú ákvörðun að vinda ofan af rekstri þess með því að loka verslunum, í ljósi þess að fyrir­hugaðar björgunar­aðgerðir tókust ekki. Niður­staðan var mikið áfall fyrir ellefu þúsund starfs­menn keðjunnar, en hún rak alls 164 verslanir víðs vegar um Bretland.

Skuldir BHS námu 1,3 milljörðum punda þegar fyrir­tækið fór í greiðslu­stöðvun. Tæpur helmingur þeirrar upphæðar, 571 milljón pund, var vegna lífeyris­skuld­bindinga starfs­manna BHS. Nær útilokað er talið að sala eigna muni ná að standa undir nema brota­broti af endur­greiðslu skulda og lífeyris­skuld­bindinga. Við blasa því miklar afskriftir kröfuhafa og skertar lífeyris­greiðslur til núverandi og fyrr­verandi starfs­manna BHS.

Það sem vakti einna mesta athygli varðandi greiðslu­stöðvun BHS var að rúmu ári áður en hún skall á hafði fyrir­tækið verið selt til fyrrum kappaksturs­ökumannsins Dominic Chappell á eitt pund. Goldman Sachs fjár­festinga­bankinn var milli­liður í kaupunum fyrir hönd seljandans, Philip Green. Hann hafði keypt BHS árið 2000 og afskráð það af markaði. Ein ástæða þess að salan vakti mikla athygi var sú að Dominic Chappell þótti ekki merki­legur pappír í fjár­festingar­heiminum og þar af leiðandi ekki líklegur til að snúa við slöku gengi BHS. Hann hafði orðið gjald­þrota þrisvar og hafði aldrei komið að neins konar rekstri sem hafði gengið vel. Því voru grun­semdir uppi um að eitthvað annað hafi ráðið því að BHS hafi verið selt á þessum tíma, í mars 2015.

Á síðustu vikum hefur sá grunur fyrst og síðast snúist um að Green hafi verið að reyna að koma sér undan því að greiða lífeyris­skuld­bindingar um 20 þúsund núverandi og fyrr­verandi starfs­manna BHS. Þessar grund­semdir fengu vængi þegar punktar af fundi Green með Chris Martin, formanni stjórnar sjóðsins sem hélt utan um lífeyris­skuld­bindingar starfs­manna BHS, snemma árs 2015. Í punktunum kemur fram að helsta ástæða þess að Green vildi losna væri sú að áætlun um að laga stöðu lífeyris­mála starfs­manna fyrir­tækisins væri of dýr. Green hafði þá eytt mörgum mánuðum í að reyna að semja um hvernig hann gæti mögulega mætt þeim halla sem skapast hafði vegna vanfjármagnaðra lífeyris­skuld­bindinga.

Býr í Mónakó

Green var kallaður fyrir þingnefnd breska þingsins vegna málsins þar sem þingmenn spurðu hann erfiðra spurninga. Samkvæmt frásögn breskra fjölmiðla af nefndar­fundinum sýndi Green ítrekað af sér hroka og yfirlæti í tilsvörum sínum. Hann greip ítrekað frammí fyrir þing­nefndar­mönnum og sýndi óánægju sína með spurningar þeirra á köflum mjög skýrt.

Á meðal þess sem Green hefur verið gagn­rýndur fyrir, utan þess að hafa selt manni sem virðist ekki hafa haft neina burði né bolmagn til að reka risastóra verslunar­keðju, er að hann tók um 400 milljónir punda í arð út úr BHS á þeim tíma sem hann átti fyrir­tækið. Green hefur á móti sagt að hann hafi sett enn hærri upphæð inn í fyrir­tækið í formi nýs hlutafjár og lána frá Arcadia Group, smásölu­risa sem rekur meðal annars verslanir undir merkjum Dorothy Perkins, Miss Selfridge, Evans, Burton, Wallis og Topman. Arcadia Group er í eigu félags sem skráð er á skatta­skjóls­eyjunni Jersey. Eigandi þess er skráð Tina Green, eiginkona Philip Green. Hjónin búa þó ekki á Jersey, heldur í Mónakó, þar sem þau þurfa ekki að greiða neina skatta.

Sögðu Baugsmálið hafa hindrað yfirtöku

Það var í gegnum yfir­tökuna á Arcadia Group sem Philip Green skaut fyrst upp kollinum í íslenskri umræðu. Árið 2002, þegar Green keypti Arcadia Group á 850 milljón pund, þá átti Baugur Group, fjár­festinga­félag Jóns Ásgeirs Jóhannessonar og fjöl­skyldu, 20 prósent hlut í fyrir­tækinu og hafði ætlað sér að ná fullum yfirráðum yfir því. Á endanum tókst Baugi Group ekki að fjármagna yfir­tökuna og Green keypti þess í stað nær allt hlutafé í Arcadia. Stjórn­endur Baugs Group sögðu það þó ekki hafa verið ástæðuna.

Sama dag og þeir lögðu fram tilboð sitt í Arcadia hafi ríkis­lögreglu­stjóri gert húsleit í höfuð­stöðvum Baugs á Íslandi í aðgerð sem markaði upphaf Baugs­málsins svokallaða. Jón Ásgeir hélt því ítrekað fram að húsleitin hefði spillt kaupunum og tveimur dögum eftir hana lýsti stjórn Arcadia því yfir að hún tæki ekki til íhugunar neinn samning sem gengi út á að selja til Baugs Group. Í viðtali við Morgun­blaðið sagði Jón Ásgeir um Green og Arcadia-viðskiptin: „Green veit hver lét hann fá lykilinn að Arcadia og hann mun meta það. Við komum með hugmyndina inn á borð til hans og allar upplýsingar á sínum tíma."

Mætti eftir hrunið og hótaði að beita forseta Íslands

Helgina eftir setningu neyðar­laganna í október 2008 lenti einka­flugvél á Reykja­víkur­flugvelli. Um borð var áður­nefndur Philip Green. Hann var kominn til landsins í einum tilgangi: Að kaupa skuldir Baugs Group á mjög lágu verði.

Í bókinni Ísland ehf. - auðmenn og áhrif eftir hrun sem kom út 2013, er greint frá því að með þann vilja fyrir augum mætti Green á Kirkju­sand í höfuð­stöðvar Glitnis, sem þá hafði verið tekinn yfir af skila­nefnd. Með honum í för voru Jón Ásgeir og eiginkona hans og viðskipta­félagi, Ingibjörg Stefanía Pálma­dóttir. Jón Ásgeir og fjöl­skylda hans voru á þessum tíma aðal­eigendur Baugs.

Green tókst að fá fund með umsjónar­mönnum þrota­búsins. Ingibjörg fór með honum inn á fundinn en Jón Ásgeir, sem hafði þar til skömmu áður verið stærsti eigandi Glitnis, bæði beint og óbeint, beið frammi á meðan. Það var ekki talið styrkja stöðu Green að hafa Jón Ásgeir með, enda hafði hann verið útmálaður í opinberri fjölmiðla­umræðu sem einn þeirra sem settu Ísland á hausinn.

Á fundinum lagði Green fram tilboð um að kaupa allar skuldir Baugs og tengdra aðila við bankann á um fimm prósent af virði þeirra. Þegar tilboðið fékk litlar undir­tektir lét hann öllum illum látum og hótaði að allir sem væru inni í herberginu yrðu reknir. Hann gæti látið það gerast. Hann hótaði einnig að tala við forseta Íslands, Ólaf Ragnar Grímsson, ef tilboðið yrði ekki skoðað betur. Hvað forsetinn átti að gera kom ekki fram.

Green var á mikilli hraðferð, enda beið einka­þotan eftir honum á vellinum. Hann átt enn eftir að hitta aðra banka í sömu erinda­gjörðum, auk þess sem hann átti bókaðan fund með Björgvini G. Sigurðs­syni, þáverandi viðskipta­ráðherra. Þess vegna gilti tilboð hans einungis í nokkrar mínútur.

Fundar­höldin, ferðin og öll lætin voru þó til einskis. Green flaug af landi brott tómhentur og án þess að forsetinn hlutaðist til um málið. Bankarnir voru ekki til viðræðu um að selja skuldirnar frá sér. Sá hluti þeirra sem Green hafði mestan áhuga á voru þær skuldir sem Baugur og tengdir aðilar höfðu stofnað til við að kaupa erlend fyrirtæki, mest megnis verslana­keðjur í Bretlandi. Fyrir utan þær hafði Baugs-samsteypan einnig skuldsett sig mikið vegna innlendra fjár­festinga.

Þess í stað fór Baugur Group í gjaldþrot á árinu 2009. Gert er ráð fyrir að sjö milljarðar króna fáist upp í alls 240 milljarða króna kröfur á það.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár