Málmar i í túrtöppum taldir skaðlausir

„Þó að snefil­magn af málmum sé til staðar í túrtöppum, þá er magnið sem losnar við notkun of lítið til að valda skaða,“ segir matvæla- og lyfja­eftirlit Banda­ríkjanna, FDA. Ný rannsókn sýnir að málmar eru undir leyfilegu hámarki í ellefu tegundum af túrtöppum.

Málmar á borð við blý og arsen teljast nú undir mörkum í túrtöppum og því ekki talið að þau geti valdið skaða. Þetta kemur fram í nýrri rannsókn á vegum matvæla- og lyfja­eftirlits Banda­ríkjanna, FDA. „Þó að snefil­magn af málmum sé til staðar í túrtöppum, þá er magnið sem losnar við notkun of lítið til að valda skaða,“ sagði stofnunin um niður­stöðuna á mánudag.

Í rann­sókninni voru ellefu tegundir af túrtöppum, sem seldar eru í Banda­ríkjunum, rann­sakaðar. Nítján málm­tegundir fundust í mismiklum mæli í vörunum en sextán þeirra þóttu vera af mælanlegum styrk. Hins vegar taldist engin þeirra vera yfir leyfi­legum mörkum.

Brugðist við fyrri rannsókn

Rannsókn FDA var gerð í kjölfar þess að árið 2024 fundust málmar í sextán tegundum túrtappa frá ólíkum fram­leiðendum í annarri bandarískri rannsókn. Munur var á því í hversu miklum styrk málmarnir voru eftir tegund túrtappa sem og hvaða málmar …

Kjósa
4
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár