Ásgeir Brynjar: Vextir eru verð á peningum

„Vextir eru einfald­lega verðið á peningum, þeir eru verðið sem þú þarft að borga til að fá pening lánaðan. Eins ef þú leggur pening inn á bankabók, þá ertu að lána bankanum peninga, þá færð þú borgaða vexti af peningunum sem þú leggur inn,“ sagði Ásgeir Brynjar Torfason, lektor við Háskóla Íslands, í sjötta þætti Ferðar til fjár sem sýndir voru á RÚV og eru aðgengi­legir hér.

Vöffin þrjú voru til umfjöllunar í þættinum, það eru verðbólga, verð­trygging og vextir.


Helgi Seljan, annar umsjónar­manna þáttanna, spurði Ásgeir Brynjar hvers vegna hann fái lægri vexti frá bankanum heldur en hann greiðir þegar hann tekur lán hjá bankanum. Munurinn á innláns- og útláns­vöxtum rennur til bankans sem þarf að reka sig, sagði Ásgeir Brynjar. „Síðan er mismun­andi áhætta á lánunum. Til dæmis þarftu að borga hærri vexti af bíla­láninu en húsnæðis­láninu vegna þess að það eru betri veð að baki húsnæðis­láninu,“ skýrði hann. Eftir því sem lánið er öruggara fyrir bankann, því lægri eru vextirnir.


ferd-til-fjar_bordi
ferd-til-fjar_bordi
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár